Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1997, Page 26

Frjáls verslun - 01.02.1997, Page 26
BÁÐIR GRÆÐA Á DJÖFLAEYJUNNI Ein vinsælasta kvik- mynd, sem kom frá Hollywood á síðasta ári, var Independence Day, eða ID4 eins og hún er kölluð. Jón Ólafsson hafði sýningarrétt á henni hérlendis og að- sóknin varð rúmlega 66 þúsund áhorfendur. Það var hinsvegar Djöflaeyja Friðriks Þórs sem sló met ID4 með rúmlega 70 þúsund áhorfendum en aðsókn að henni var með fádæmum góð og aðgangseyrir er hærri á íslenskar mynd- ir en erlendar. Djöflaeyjan var sýnd í Sambíóunum og Stjömubíó. Þannig hafði Ámi betur um stund. Skífan fær þó sinn hlut í velgengni Djöflaeyjunnar, sem gefur tón- listina úr myndinni út á geisladiski, og það er Skífan sem gefur hana út á myndbandi. JÓN HEFUR BETUR í ÚTVARPIOG SJÓNVARPI Jón Ólafsson kemur að útvarpsrekstri með því að eiga 35% hlut í íslenska útvarpsfélaginu sem á og rekur Bylgj- una, elstu einkaútvarpsstöð á Islandi. Jón er tvúnælalaust útvarpskóngurinn. Árni Samúelsson á og rekur útvarps- stöðina FM 95.7 sem veitt hefur Bylgjunni nokkra keppni í aldurshópnum 17 til 35 ára. Þetta er ■TíTWnTTTnTnB mJög rnikilvægur aldur fyrir afþrey- Biyyyjy^^yy^y| ingarmarkaðinn. Það er til dæmis fólk á þessum aldri sem sækir mest kvikmyndahús. FM 95.7 hefur verið mjög drjúg við að kynna þær kvikmyndir sem sýndar em í Sambíóunum hverju sinni. Á sama hátt hefur Skífunni verið stuðningur í Bylgjunni og Stöð 2 vegna kynningar og auglýsinga á efni fyrirtækisins. ÖNNURSVIÐ Varla er hægt að segja að þeir keppi á öðmm sviðum en þeim sem tengjast vitundariðnaði. Báðir hafa þó ítök á fleiri stöðum í viðskiptum og festa t.d. fé í fasteignum. Skífan flytur inn um 80% af öllum óáteknum myndbands- og segulbandsspólum til einkanota og í atvinnuskyni. Skff- an hefur umboð fyrir merki á borð við Ampex, sem eru allsráðandi á þessu sviði, svo og tæki frá Barco og Ace. Skífan hefur framleitt tvær íslenskar kvikmyndir: Eins og skepnan deyr eftir Hilmar Oddsson og Sódóma Reykjavík eftir Óskar Jónasson. Auk þess á Skffan hljóðverið Stúdíó Sýrland þar sem margar íslenskar hljómsveitir taka upp tónlist sína sem síðan er gefin út af t.d. Skífunni eða Spor. KEFLAVÍK TENGIR ÞÁ SAMAN Örlögin hafa búið svo um hnútana að Keflavík tengir þá Jón Ólafsson og Árna Samúelsson saman. Þeir hófu báðir feril sinn sem sjálfstæðir atvinnurekendur í af- þreyingariðnaði í Kefla- vík. Jón Ólafsson ólst þar upp og steig þar sín fyrstu skref á sviði eigin atvinnurekstrar sem framkvæmdastjóri vin- sælla popphljómsveita og með plötuútgáfu. Árni er Reykvíkingur, alinn upp í Hlíðunum. Eigin- kona hans, Guðný Sigur- ffn Ásberg Björnsdóttir, dóttir Bjöms Snæbjöms- sonar forstjóra, er hins vegar úr Keflavík og fjöl- skylda hennar var í at- vinnurekstri þar; rak til dæmis Nýja-Bíó, sem var fyrsta bíóið sem Ami sá um reksturinn á, en einnig átti fjöl- skyldan verslunina Víkurbæ ásamt fasteignum. Nokkur aldursmunur er á Árna og Jóni. Árni er 54 ára en Jón Ólafsson er 42 ára. Báðir stjórna þeir fjölskyldufyr- irtækjum. Helstu samstarfsmenn Áma eru synir hans, Bjöm og Alfreð. Helsti samstarfsmaður Jóns er eiginkona hans, Helga Hilmarsdóttir, en hún hefur annast rekstur verslana Skffunnar með miklum myndarbrag. VIÐTÖL í VARIETY 0G SCREEN Þótt undarlegt kunni að virðast eiga þeir Jón og Ámi það sameiginlegt að sækjast ekki eftir sviðsljósinu þótt þeir séu oftar en ekki í því miðju. Við báða hafa birst viðtöl í kunnum fagtímaritum erlendis. Þegar Samfiffn, fyrirtæki Ama Samúelssonar, varð 20 ára árið 1995 birtist vegleg afmælisgrein um fyrirtæki hans í tímaritinu Variety sem stundum er kallað biblía amerísks kvikmyndaiðnaðar. Er það eina íslenska fyrirtækið sem tímaritið hefur fjallað um. Þegar Skífan fagnaði 20 ára afmæli í fyrra birtist ítarleg og glæsileg umfjöllun um vöxt og viðgang Skífunnar í Screen Intemational sem er alþjóðlegt tímarit um kvikmyndir og afþr eyingariðnað. Til gamans má geta þess að Jón Ólafsson hefur rifjað það upp í viðtölum hvernig hann og eiginkona hans, Helga, hafi sjálf staðið innan við búðarborðið og selt hljómplötur á fyrstu árunum meðan þau voru að koma undir sig fótunum. Það er liðin tíð að Jón afgreiði plötur en Áma Samúelsson má enn sjá stundum við dymar í Bíóhöllinni að rffa af miðunum. SJÓAÐIR í LÍFSINS ÓLGUSJÓ! Það er sagt um þá báða að þeir séu frekir, sókndjarfir og kappsamir viðskiptajaxlar sem treysti helst engum nema sjáffum sér. Báðir vilja vera óskoraðir foringjar á sínu sviði og berjast af mikilli hörku. Báðir hafa hafist upp af sjálfum sér í viðskiptafffinu og hvomgur er langskólagenginn. Þeir eru sjóaðir í lífsins ólgusjó. Þeir er báðir kóngar - sem hafa einkar gaman af skylm- ingum viðskiptalffsins. Þannig er það líka með kónga. Frá opnun Virgin Megastore verslunarinnar í Kringlunni í byrjun nóvember sl. Sjá má popparana Jón Ólafsson (alnafna höfuðandstæðings Áma), lengst til vinstri, og nýkrýnda Söngkonu ársins á íslandi, Emiliönu Torrini. FV-mynd: Geir Ólafsson. 26

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.