Frjáls verslun - 01.02.1997, Síða 31
VERSLUN
er staðreynd að verslunarferðir til út-
landa hafa orðið til þess að lækka verð
á fatnaði á íslandi. Þær hafa haft þau
áhrif að vandaður fatnaður, merkja-
vara, er orðin hvað ódýrastur hér mið-
að við Norðurlönd og Evrópu. Það ger-
ir að verkum að þeir, sem hafa verð-
skyn og vilja vandaðan fatnað, gera oft
góð innkaup hér. Þetta sjáum við í vax-
andi mæli, sérstaklega eru það karl-
menn frá Norðurlöndum og Þýskalandi
sem átta sig á góðu verði hér sem
verður enn betra þegar skatturinn er
dreginn frá. Þama erum við sannfærðir
um að vaxtarbroddurinn liggi í þessari
verslun. Það að koma á verslunarferð-
um útlendinga hingað til lands er fylli-
lega raunhæft, að minnsta kosti hvað
það varðar sem við erum að bjóða.“
Þeir félagar vildu reyndar halda því
fram að það væri aðeins vandaðri vara
sem stæðist verðsamanburð við út-
lönd.
MARKAÐURINN í HERRAFÖTUM
Óhætt mun að segja að markaður-
inn í herrafatnaði skiptist í nokkra
hluta. Efst á toppi pýramídans er
markaður fyrir dýran og vandaðan
fatnað sem er jafnframt sígildur og
framleiddur af þekktum framleiðend-
um eða vöruhúsum. A þessum hluta
markaðarins eru forstjórar, þing-
menn og menn í ábyrgðarstöðum.
Auk þess karlmenn sem þurfa eða
vilja eiga kjólföt og eða smóking. í
þessum verðflokki kosta jakkaföt
ekki mikið undir 50 þúsund krónum.
Á þessum markaði má segja að Hákon
og Sigurjón í Herragarðinum og Herr-
unum séu atkvæðamiklir.
MEÐ ÚTGERÐINA AÐ BAKHJARLI
Yfirleitt hafa verslanir á þessum
markaði byggt sig upp hægt og rólega
á löngum tíma. Segja má að hinir ungu
kaupmenn, Hákon og Siguijón, komi
því með nokkrum látum inn á markað-
inn með því að kaupa Herragarðs-
verslanirnar. Kaupverðið fæst ekki
gefið upp. Spyrja má hvernig ungir
menn með fárra ára reynslu geti lagt í
slíkar fjárfestingar og svarið er að
þeir hafa gríðarlega sterkan bakhjarl.
Fjölskylda Hákonar hefur rekið út-
gerð Húnarastarinnar árum saman í
samvinnu við Björgvin Jónsson en
íyrir fáum árum keypti fyrirtækið
Borgey á Homafirði hans hlut. Á síð-
asta ári seldi síðan Hákon Magnússon
og fjölskylda hans sinn hlut í skipinu,
kvóta þess og auk þess eignarhlut
sinn í fiskimjölsverksmiðjunni Skinn-
ey. Fyrirtæki í eigu fjölskyldunnar
keyptu 41% húseign við Laugaveg 13
þar sem ný Herragarðsverslun verð-
ur til húsa. Hluturinn í útgerðinni var
metinn á tæplega 300 milljónir svo
segja má að þama hafi fjármagn færst
úr sjávarútvegi upp á þurrt land.
Fjarlægur draumur ?... Kannski ekki!
Mercedes-Benz C - lína. Verð kr. 2.995.000
Búnaður:
► ABS hemlar
► Loftpúðar við bæði framsæti
► Hlífðarpanna undir vél og gírkassa
► Fjarstýrð samlæsing og þjófavöm
► Höfuðpúðar á aftursæti
► Hljómflutningstæki / 8 hátalarar
► Litaðgler
► Rafstýrðir, hitaðir útispeglar
► Hæðarstilling á ökuljósum
► Mælir fyrir útihita o.m.fl.
Fjölbreyttur valbúnaður fáanlegur, m.a:
5 þrepa sjáffskipting með hraðastilli (cmise control)
Aðeins í Mercedes - Benz!
Ymsir greiðslumöguleikar, bílalán eða kaupleiga.
Hafið samband við sölumenn okkar sem veita fúslega
allar nánari upplýsingar. Við emm líka á veraldarvefhum:
www.raesir.is
Mercedes-Benz
RÆSIR HF
SKÚLAGÖTU 59, SÍMI 561 9550
31