Frjáls verslun - 01.02.1997, Side 32
VERSLUN
HVERJIR HAFA HffTT OG HVERJUM
GENGURILLA?
Næsti flokkur fyrir neðan þann
efsta má segja að einkennist af fram-
boði á hefðbundnum fatnaði þar sem
áhersla er lögð á lágt verð. Dæmig-
erðar verslanir af þessu tagi er Guð-
steinn Eyjólfsson á Laugavegi, Andrés
á Skólavörðustíg og Verslun Birgis.
Til þessara beggja flokka mætti
nefna verslanir sem hafa hætt starf-
semi á undanfömum áratug, eins og
Andersen&Lauth, Herradeild PÓ,
Herraríkið, JMJ og ef til vill Adam og
Kamabæ. Herrahúsið og verslun
Sævars Karls era hvort tveggja
þekktar verslanir, - og era báðar í
vandaðri kantinum en fullyrt er að
samkeppni frá verslunarferðum hafi
komið niður á þeim. Þannig benda
kunnugir á að báðar þessar verslanir
séu hættar að versla á götuhæð held-
ur séu komnar upp á aðra hæð.
KEÐJURNAR KOMA
Þegar kemur neðar í verðpýramíd-
ann verður vöravalið jafnframt fjöl-
breyttara og ef til vill meira stílað upp
á yngri karlmenn. Þama era mjög
sterkar verslanir eins og 17 og 4YOU,
Deres og Motor sem era í eigu Bolla
Kristinssonar og Svövu Johansen,
Hanz og Joey’s eru í Kringlunni í eigu
Guðmundar Ólafssonar og ganga
mjög vel. Einnig mætti nefna keðju-
búðir eins og Jack&Jones og Dress-
mann og herradeild Hagkaups. Á
þessum hluta markaðarins hefur til-
koma erlendra verslanakeðja valdið
miklu fjaðrafoki undanfarin tvö ár og
samkeppnin verið gríðarlega hörð og
óvægin. Kunnugir segja að Dress-
mann, sem opnaði í fyrra á Lauga-
vegi, hafi tekið mjög mikið frá Hag-
kaup sem hyggi á sókn á þessum
markaði. Það tengist breytingum á
Hagkaupsversluninni í Kjörgarði en
þar er hætt að selja föt. Hagkaup leit-
ar að hentugu húsnæði við Laugaveg,
helst sem næst Dressmann til að
keppa við þá.
Á undanfömum árum hefur mátt
sjá verslanir flytja af Laugavegi í
Kringlu, aftur á Laugaveg og öfugt.
Togstreitan hefur staðið milli þessara
tveggja verslanasvæða. Kunnugir
segja að það séu ekki sömu viðskipta-
vinimir, sem versli í Kringlunni og á
Laugaveginum, og eigi verslun að
reiða virkilega vel af þurfi hún að hafa
bolmagn til þess að halda uppi verslun
á báðum stöðunum.
HVERNIG VERSLA
KARLMENN?
arlmenn fylgjast með tísku
ekkert síður en konur en
hafa ef til vill svolítið aðrar
aðferðir við að kaupa sér föt en
þær. Að sögn era þeir íhaldssam-
ari en konur og gætnari í fatavali,
hafa meiri áhyggjur af því að hin
eða þessi flíkin sé ekki viðeigandi
fyrir mann á „þeirra aldri“. Margir
telja að karlmenn séu ósjálfstæðari
en konur þegar kemur að fatavali
og geti þess vegna helst ekki
keypt sér föt nema konan sé með
þeim. Kaupmenn segja að í 70%
tilvika velji eiginkonan fötin á
manninn, 20% láti afgreiðslufólkið
ráðleggja sér en 10% viti hvað þeir
vilji og þurfi enga aðstoð.
Karlmaðurinn vill ekki eyða
miklum tíma í búðaráp þegar hann
er að kaupa sér föt. Hann vill geta
gert samanburð milli búða en hann
nennir ekki að aka langar leiðir til
að finna einhveija sérstaka búð
heldur vill hafa þær allar á sama
stað. Helst vill hann geta gert
þetta á 1-2 tímum og þá á laugar-
degi en kaupmönnum ber saman
um að það séu bestu dagamir í
herrafataverslunum.
Menn segja að af þessum
ástæðum séu svo margar herra-
fataverslanir í Kringlunni sem raun
ber vitni.