Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1997, Side 33

Frjáls verslun - 01.02.1997, Side 33
Garðar Siggeirsson hættir rekstri eftir baráttu í aldarfjórðung - og aðeins 54 ára að aldri. „Margir félagar mínir dást að þeirri ákvörðun minni að þora að selja á þessum aldri. Þetta er hlutur sem ég veit að marga á mínum aldri langar til að gera.“ FV-mynd: Kristín Bogadóttir. HVAD ÆTLAR GARÐAR AÐ GERA? að sem vakir fyrir mér er fyrst og fremst að njóta lífsins. í 25 ár hef ég unnið hörðum hönd- um, tók mér aldrei sumarfrí og finnst ég hafa unnið fyrir því að njóta ávaxt- anna af erfiði mínu, - sagði Garðar Siggeirsson, til skamms tíma kaup- maður í Herragarðinum, í viðtali við Frjálsa verslun. Garðar er aðeins 54 ára gamall og hefur rekið Herragarðinn í 25 ár. I aldarfjórðung hefur hann selt íslensk- um karlmönnum þeirra finustu föt og meðal viðskiptavina hans hafa verið ráðherrar og verkamenn, bankastjór- ar og bflstjórar, alþingismenn og sjó- menn. Þegar hann steig sín fyrstu skref á sviði verslunarreksturs var hann á lfluim aldri og þeir ungu menn sem nú taka við af honum. „Maður tekur ekki stigann í stórum stökkum heldur verður að taka eina tröppu í senn. Samkvæmt þessu vann ég og nú finnst mér verkefninu vera lokið og tími kominn til að yngri menn taki við. Þótt ég sé ungur enn hef ég ekki sama kraft og ég hafði en það hafa þeir. Þegar ég byrjaði fannst mér ólíklegt að ég yrði í þessu starfi eftir fertugt en það hefur dregist að ég hætti.“ MEÐTVÆR HENDUR TÓMAR Garðar byrjaði ungur að vinna hjá herradeild P&Ó í Austurstræti og hefur höndlað með herraföt í um 37 ár. Þegar Miðbæjarmarkaðurinn við Aðalstræti var byggður var hann verslunarstjóri hjá P&Ó en ákvað að freista gæfunnar og hóf eigin verslun í 35 fermetra plássi þar. „Ég byrjaði með tvær hendur tóm- ar, átti ekkert nema mína starfs- reynslu og þekkingu á þessu sviði. Fyrstu átta árin var ég eini starfsmað- urinn. Þetta var ákaflega skemmti- legur tími sem hafði upp á margt að bjóða.“ Garðari gekk vel og eignaðist með tímanum húsnæðið sem hýsti Herra- garðinn í Aðalstræti og búðin stækk- aði og starfsmönnum fjölgaði. Önnur þáttaskil urðu síðan þegar hann tók þátt í byggingu Kringlunnar þar sem FJALLAGARPURINN GARÐAR „Þetta eru menn að mínu skapi og ef ég væri 25 árum yngri þá væri ég sjálfsagt með þeim í leiðangrinum á Everest. “ MYNDIR: KRISTÍN BOGADÓTTIR 33

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.