Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1997, Page 37

Frjáls verslun - 01.02.1997, Page 37
KERFIÐ! Hæstaréttar um að ekki varðandi iðgjöld í illa við vegna þess að ég þóttist hafa alveg hreint mjöl og gat eiginlega ekki setið kyrr eftir að hafa verið bent á þetta,“ segir Helgi og bætir við að rekstrarreikningur í svo einföldu framtali, eins og í hans tilviki, sé alveg gegnsær. „Það er ekkert vafamál hvemig tölumar em fengnar. I launa- framtali koma fram laun launþeganna og lífeyrissjóðsgreiðslur þeirra lengst af,“ segir hann og játar að hafa haft lúmskt gaman af að hafa haft sigur yfir ríkinu. LÁSU LÖGIN ÖÐRUVÍSI Málareksturinn byrjaði árið 1992 þegar Skattstofa Reykjanesumdæm- is gerði athugasemdir við gjaldfærslu Helga á rekstrarreikningi fyrir verk- fræðistofu hans og fullyrti að greiðsla hans í lífeyrissjóð væri ekki frádrátt- arbær á rekstrarreikningi og vitnaði í 31. grein laga um tekju- og eignaskatt þar sem segði að lífeyrisgjöld væm ekki til öflunar tekna í atvinnurekstri. Helgi hafði talið fram hluta atvinnu- rekandans í lífeyrisgreiðslum sem frádráttarbæran í mörg ár, eða frá því þessi lög vom sett árið 1981, og var ósammála þessari túlkun. Hann kærði álagningu opinberra gjalda fyrir rekstrarárið 1991 til yfirskattanefnd- ar. „Þetta var alltaf fullyrðing. Þeir lásu þessa lagagrein öðmvísi en ég og það kom aldrei fram neinn rökstuðn- ingur. Það út af fyrir sig er lögleysa," segir Helgi. Yfirskattanefnd tók kæm Helga fyrir í nóvember 1993 og staðfesti þá úrskurð skattstjóra á þá leið að gjald- fært tillag væri eingöngu vegna líf- Helgi G. Sigurðsson verkfræðingur. Hann segir að menn hafi ekki viljað hreyfa við þessu máli því að þeir hafi ekki talið sig hafa hreint mjöl í pokahominu. „Það sætti ég mig illa við vegna þess að ég þóttist hafa alveg hreint mjöl og gat eiginlega ekki setið kyrr eftir að hafa verið bent á þetta.“ eyriskaupa Helga sjálfs, þessi kostn- aður væri ekki til öflunar tekna í sjálf- stæðri starfsemi hans og því ekki frádráttarbær samkvæmt 31. grein laga um tekju- og eignaskatt. Helgi sætti sig ekki við þessa niðurstöðu og kærði til héraðsdóms þó að honum væri kunnugt um að fyrri úrskurðir nefndarinnar allt frá 1988 væm þessu samhljóða. Þar áttu í hlut byggingar- meistari og læknir í Reykjavík. ÓHJÁKVÆMILEGUR KOSTNAÐUR Kæran var dómtekin í héraðsdómi haustið 1995 og vom dómkröfur þær að úrskurður yfirskattanefndar yrði úr gildi felldur og réttur Helga til að gjaldfæra eigin lífeyriskaup á skatt- framtali viðurkenndur. í október 1995 komst dómurinn að þeirri niðurstöðu að skýrt væri í lögum að vinnuframlag atvinnurekanda væri sambærilegt vinnuframlagi launþega. í skattalegu 37

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.