Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1997, Side 46

Frjáls verslun - 01.02.1997, Side 46
NÆRMYND SIGFUS í HEKLU ann er afskaplega vel þekktur í viðskiptalífmu og stýrir einu stærsta bílaumboði landsins, Heklu. Hér er auðvitað átt við Sigfus Ragnar Sigfússon, eða Sigfús í Heklu, eins og hann er almennt kallaður. Hekla er gamalgróið fyrirtæki sem í meira en hálfa öld hefur flutt inn bíla, þungavinnu- og bátavélar, ásamt heimilistækjum fyrir landsmenn. Þekktustu bflategundimar, sem Hekla flytur inn, em Mitsubishi og Volkswagen sem hafa fylgt þjóðinni gegnum árin, en Caterpillar, Scania og General Electric eru einnig þekkt merki. Rekstur Heklu hefur verið farsæll frá upphafi en fyrir fimm ámm gekk fyrirtækið í gegnum nokkrar þreng- ingar. Árin 1993 og 1994 voru talsvert erfið og umsvifin drógust saman í kjölfarið fylgdu aðhaldsaðgerðir og uppsagnir því Heklusystkinin íjögur, sem stýrt höfðu fyrirtækinu, brugð- ust hart við því til bjargar. í þeim umskiptum skildu leiðir þeirra þegar Ingimundur, elsti bróðirinn, sem staðið hafði við stjómvöl lengi vel, Nafn: Sigfús Ragnar Sigfússon Starf: Forstjóri Heklu hf. Aldur: 53 ára. Fæddur: 7. október 1944 í Reykjavík. Foreldrar: Sigfús Bergmann Bjarnason og Rannveig Ingimundardóttir. Systkini: Þriðji í röð fjögurra systkina. Fjölskylduhagir: Kvæntur Guðrúnu Norberg, á sex börn og þrjú barnabörn. Menntun: Viðskiptafræðingur frá University of Wisconsin f Bandaríkjunum árið 1967. Áhugamál: Skógrækt, fornbílar og vinnan. Stjórnandi: Vill hafa góða yfirsýn en treystir undirmönnum einnig ágætlega. Afslappaður og laus við formfestu. seldi sinn hlut í fyrirtækinu og gerðist sendiherra íslands í Þýskalandi. Síðar keypti svo Tryggingamiðstöðin hlut Margrétar Sigfúsdóttur í fyrirtækinu, þannig að bræðumir Sigfús og Sverrir em tveir eftir af Heklusystkinunum innan fyrirtækisins. Ljóst er að að- haldsaðgerðir þær, sem gripið var til, hafa verið árangursríkar. Á þessum tíma ákváðu stjórnendur Heklu að einbeita sér að sínu sérsviði, hverfa aftur til uppranans, sem er innflutn- ingur og sala bfla og tækja, ásamt skyldum rekstri og þjónustu í tengsl- um við þessa starfsemi. Hér var um talsverða stefnubreytingu að ræða því að áður fyrr hafði verið farið út í margs konar skyldan rekstur sem skilaði ekki hagnaði. Þessi ákvörðun, ásamt öðrum aðhaldsaðgerðum, hafa skilað góðum árangri, því að þegar á árinu 1995 sáust skýr merki þess að búið væri að snúa vöm í sókn: Rekst- ur fyrirtækisins stóð með töluverðum 46

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.