Frjáls verslun - 01.02.1997, Qupperneq 48
----------« „X einhver táknrænasti bill i
Segja má að gamla goða „bjalla efurveriðíeigufjölskyld-
söguHeklu. Ekki sistþessi, R-24, FV.myndir: Geir Ólafsson.
unnar í áratugi.
Húsnæði Heklu við Laugaveginn
Þykir einkar glæsilegt - jafnvel
einurn of. Glæsilegur skúlptúrinn
blasir við þegar inn er komið.
1989 var Davíð Oddsson kosinn vara-
formaður Sjálfstæðisflokksins.
Samkvæmt lögmálum stjörnu-
spekinnar er Sigfús fæddur í merki
Vogarinnar. Vogarfólk er sagt glað-
lynt og jafnlynt, unnendur fagurra
lista og rómantískt. Vogarfólk vill
hafa frið og jafnvægi yfir hlutunum og
býður af sér góðan þokka. Sé gengið
um Heklu með þetta í huga sést
greinilega að þar stjómar fagurkeri.
Smekkvísi, snyrtimennska og ögun
einkenna fyrirtækið sem hefur fengið
umhverfisverðlaun Iðnlánasjóðs.
Heklusystkinin rekja ættir sínar
annars vegar norður í
Húnaþing en hins vegar
austur í Berufjörð. Faðir
þeirra, og stofnandi
Heklu, var Sigfús Berg-
mann Bjamason. Hann
fæddist 1913 í Núpsdals-
tungu í Miðfirði í Húnaþingi, sonur
Bjama Bjömssonar og Margrétar
Sigfúsdóttur, sem bjuggu víða á þess-
um slóðum, m.a. á Svertingsstöðum.
Þetta var ein grein þess sem kallað er
Bergmannsætt í Húnaþingi en um
hana segir Páll Kolka í bók sinni Föð-
urtún að margir af þeirri ætt hafi verið
marglyndari en títt er í Húnaþingi,
miklir búmenn og kvenskörungar.
Sigfús hleypti heimdraganum bráð-
ungur, yfirgaf sveitina og haslaði sér
völl í verslun og viðskiptum. Hann
lést, langt um aldur fram, árið 1967.
Segja má að Heklusystkinin haldi
vissum tengslum við heimaslóðir föð-
ur sfns, en Þingeyrar, eitt helsta höf-
uðból og hlunnindajörð sýslunnar, að
fomu og nýju, er nú í eigu Ingimundar
Sigfússonar. Sigfús eignaðist jörðina
fyrir hálfri öld og nú er hún einkaeign
Ingimundar, en Ingimundur á jafn-
framt Sigríðarstaði.
Eiginkona Sigfúsar eldri og bak-
hjarl var Rannveig Ingimundardóttir,
fædd 1912 á Karlsstöðum í Berufirði,
dáin í Reykjavík 1986. Foreldrar
Rannveigar vom Ingimundur Sveins-
son úr Mýrdal og Anna María Lúð-
víksdóttir sem fædd var í Hammers-
minni á Djúpavogi. Þessi ættkvísl
hefur breiðst víða um land og er
merkileg og sérstæð. Langafi Önnu
Maríu og langalangalangafi Sigfúsar
var nefnilega Hans Jónatan verslunar-
stjóri hjá 0mm og Wulff á Djúpavogi
1818-1827. Hans þessi var þeldökkur,
sonur Simmelmanns, landsstjóra á
Þrælaeyjum í Karíbahafinu, og
svartrar ambáttar hans ónefndrar.
Hann átti að minnsta kosti tvö böm á
íslandi sem frá er kominn mikill ætt-
bogi. Kynblendingar eru fátíðir í ætt-
um íslendinga og sú saga var mjög
þrálát að Davíð Oddsson forsætisráð-
herra væri meðal afkomenda hans, en
það er rangt.
Sigfús Ragnar, „bflakóngurinn
brosmildi“, ólst upp á Víðimel 66 í
Reykjavík þar sem foreldrar hans
reistu sér heimili. Hann er kvæntur
Guðrúnu Norberg sem er leikskóla-
kennari að mennt. Guðrún fæddist
14. aprfl 1942 á ísafirði og er dóttir
Aðalsteins Norberg verkfræðings og
Ásu Margrétar Bemdsen frá Skaga-
strönd. Sigfús og Guðrún hófu bú-
skap saman á Seltjamamesi en fluttu
fljótlega á Ægisíðu 76 og þar fæddust
fyrstu bömin. Árið 1974 fluttu þau í
stórt og glæsilegt hús á
Starhaga 6 þar sem þau
hafa lengst af búið. Ná-
granni þeirra á aðra hönd
hefur verið Kjartan
Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Sjálfstæð-
isflokksins, en hinum megin kollegi
Sigfúsar, Guðmundur Gíslason í
B&L. Nú hefur húsið á Starhaganum
verið selt Pétri Bjömssyni viðskipta-
jöfri sem oft er kenndur við Hull. Sig-
fús og Guðrún hafa aftur flutt út á
Nes, nú á Miðbraut 31 í göngufæri við
elsta soninn.
Sigfús og Guðrún eiga sex böm
saman. Þau em Sigfús Bjami, mark-
aðs- og sölustjóri hjá íslandsflugi, f.
1968, Margrét Ása f. 1971, Rannveig
f. 1975, Guðrún Helga f. 1980, Ingi-
mundur Sverrir f. 1981 og Stefán Þór
f. 1984. Auk þess ólu þau upp son
CLAPTON í BÍLNUM
Tónlist skipar talsverðan sess í lífi
Sigfúsar og þeir eru ófáir sem hafa notið
þess að hlusta á t.d. Supertramp eða
Clapton í bílnum hjá forstjóranum.
48