Frjáls verslun - 01.10.1997, Side 65
VEITINGAHÚS
vita, en margir reyna að komast undan,
að það er vonlaust er að reka fyrsta
flokks veitingahús nema með úrvals
starfsfólki.
FJÖLBREYTTUR MATSEÐILL
Þar sem Perlan er óvenju stór veit-
ingastaður á íslenskan mælikvarða eru
það ótal gestir sem sækja staðinn. Mat-
seðlarnir eru því fleiri en einn og fleiri
en tveir. Ekki má gleyma föstum liðum
eins og villibráðardögum og jólahlað-
borði.
Nú í haust var í boði skemmtilegur 6
rétta seðill þar sem meðal annars var
boðið upp á dúfusúpu með jarðsvepp-
um, kryddlegna heiðargæsabringu og
humarseyði með grillaðri ijallableikju
og humri. Þá kom trönuberjakrap með
vodka, svo glóðaður hreindýravöðvi og
rjúpubringa með títubeijasósu. Veislan
endaði svo á úrvali osta. Þessi seðill
kostaði aðeins 4.770,- sem verður að telj-
ast mjög sanngjarnt verð. Þá hefur verið
á boðstólnum matseðill þar sem önd
hefur verið í aðalhlutverki. Reykt önd
með ristuðu spínati, beikoni og sérrí-ed-
JÓSUNUM"
ikssósu var hreint lostæti, sömuleiðis
pipruð andabringa með gæsalifur og
grænpiparsósu.
Persónulega finnst mér matreiðslu-
menn Perlunnar vera sterkari í kjötrétt-
unum en í fiskinum. Þó hef ég fengið
einstaklega indælan fiskrétt sem var
grillaður steinbítur með ristuðu hvítkáli,
koríander og blaðlaukssósu. Eftirréttir
Perlunnar eru yfirleitt ákaflega vel
heppnaðir, mun betri en á flestum veit-
ingahúsum í Reykjavík.
Þegar þessar línur birtast hér á blað-
inu verður hið klassíska jólahlaðborð
byijað í Perlunni. Til gamans má geta
þess að í desember í
fyrra var hér á ferð
einn af framkvæmda-
stjórum einnar
stærstu sjónvarps-
stöðvar Bandaríkjanna
og heimsins, ásamt
fríðu föruneyti. Það
var farið í Perluna og
þar var þá jólahlað-
borð í boði. Þau höfðu
áður verið í Svíþjóð og
Danmörku og þar
hafði þeim verið boðið
í jólahlaðborð nær
daglega — það kom því heldur betur
svipur á liðið þegar hér var enn eitt jóla-
hlaðborðið. Samt var slegið til. Eftir því
sem leið á máltíðina hýrnaði yfir mann-
skapnum. Þegar kom að eftirréttunum
voru allir á því að þetta
væri langbesta jólahlað-
borðið sem þeir höfðu
kjmnst til þessa.
Það sem er hins vegar
athyglisvert er að þessi ágæti fram-
kvæmdastjóri verður staddur í Þýska-
landi í byijun desember. Hann ætlar að
taka á sig krók og fljúga til Reykjavíkur
á leið sinni til New York aðeins til að
stansa eina kvöldstund og fara, ásamt
eiginkonu sinni, og gæða sér á jólahlað-
borði í Perlunni.
EN HVAÐ?
Er þá Perlan besti veitingastaðurinn í
Reykjavík? Satt best að segja treystir
höfundur þessara lína sér ekki til að
skera úr um hvar sé besti veitingastað-
urinn í Reykjavík. Allt í
lagi — hver er þá staða
Perlunnar miðað við
Holtið og Grillið? Stað-
reyndin er sú að það er
ekki hægt að bera þessa
veitingastaði saman,
Perlan er gjöróhk þess-
um annars ágætu veit-
ingahúsum. Helsti galli
Perlunnar er að barinn
er hálf leiðinlegur, hann
fyllist fljótt af fólki og er
á einhvern hátt úr takt
við umhverfið. Kostir
Perlunnar eru hins vegar fagmennskan,
yndislegt umhverfi og útsýni. Veitinga-
menn Perlunnar tóku við erfiðu verk-
efhi þegar þeir hófu rekstur Perlunnar
— sem var ólík öllum öðrum veitinga-
húsum sem hér hafa starf-
að. Með tíð og tíma hefur
þeim tekist að leysa þetta
verkefni með sóma —
byggingin sjálf, Perlan, er
einkar athyglisverð. Veitingahúsið Perl-
an er eins og gott rauðvín — batnar
stöðugt. Œl
Helstu ókostlr:
Leiðinlegur bar sem passar
ekki í húsiö.
(
Helstu kostlr:
Fagmennskan og ægifagurt
útsýni; sumar, vetur, vor og
haust.
Perlan, Öskjuhlíö
Sími: 562 0200
Fax: 562 0207
Þaö tekur
aöeins einn
r"m ■ virkan
dag
aö koma
póstinum
þínum til skila
POSTUR OG SÍMI HF
65