Frjáls verslun - 01.10.2000, Side 14
FRÉTTIR
12 mistök í hanastéli
Kokkteilboð eru sjaldan algengari en einmitt yfir vetrarmánuðina.
Þau hafa ótvíræða kosti; veita birtu, félagslegt samneyti og
skemmtun, fyrir nú utan samböndín sem hægt er að mynda, samn-
ingana sem hægt er að geta og slökunina sem hægt er að ná með
kvöldstund i góðu hanastéli. En kokkteilboð geta lika verið varasöm
fyrir þé sem ekki þekkja reglumar og vita ekki hvað ber að forðast
Of mikil slökun, of frjálsleg iramkoma - ng hinar óskrifuðu reglur
samkvæmisins eru brotnar. Leyfðu félögum þínum að stiga á þess-
ar félagslegu jarðsprengjur en gættu þin sjálfur og þá stendurðu
eftir sem sigurvegari. Á toppnum!
1 Að fylgjast ekki með
Það er dúnalegt að horfa út f loftið f miðju samtali. Athygli
er lykilatriði í samkvæmum og mesti virðingarvottur sem
hægt er að veita öðrum. Til að ná sem bestum árangri með
samtali: Sýndu svipbrigði og notaðu táknmál líkamans.
Sýndu áhuga, jafnvel þótt hann sé ekki til staðar!
2 Að taka letilega i höndina á fólki
Taktu þétt í höndina á fólki. lint handtak gefur til kynna
að viðkomandi sé óöruggur og óviss um sjálfan sig. Þétt
handtak sýnir sjálfstraust og hreinskilni, opinn og hlýjan
persónuleika. En gættu þín að valda ekki sársauka. Slíkt
hefur þveröfug áhrif og gefur til kynna tilfinningalausa
og „dómínerandi" manneskju.
3 Að sýna áhugaleysi
Táknmál líkamans getur komið upp um þig! Með því að
snúa líkamanum ekki rétt er hægt að sýna áhugaleysi en
það getur verið bæði móðgandi og neikvætt og orðið
undirrót að fjandsamlegum tilfinningum í þinn garð.
12 Að gripa fram í 11 Að leggja hönd á öxl
Leyfðu mönnum að Ijúka máli í kokkteilboði má ekki
sínu. Það er ruddaskapur af snerta aðra öðruvísi en
verstu tegund að grípa fram i með handtaki - nema um
fyrir öðrum. Ef þú heldur aftur af gamla vini sé að ræða.
þér og leyfir fólki að tala ertu Þetta gildir llka þó að
kurteis og viðkomandi getur þá snertingin sé saklaus því
betur hlustað á það sem þú að alla snertingu er hægt
segir. Hafðu í huga að leyndar- að túlka á mismunandi
dómurinn á bak við það að vera hátt.
góður i samræðulist er að kunna
10 Að halda barnum opnum of lengi
Hanastél stendur aðeins í tvær klukkustundir,
byrjar klukkan fimm og endar sjö. Barnum á
að loka 30 mínútum áður en samkvæminu
lýkur til að koma i veg fyrir að eftirlegukindur
geti drukkið fram eftir kvöldi.
9 Að tala of hátt
Ekki tala í háværum tóni. Það gefur hrokafulla og nei-
kvæða mynd af þér. Röddin ætti að vera róleg og jöfn og
tónninn og líkamsburðurinn að hæfa tíma og aðstæðum.
8 Að standa of nálægt öðrum
Öll höfum við ákveðið svæði kringum okkur sem við hleypum
ekki öðrum inn á. Ef einhver kemur óboðinn inn á þetta svæði
bregðast flestir við með því að hörfa; stíga skref aftur á bak.
Flestir telja það tilfinningaleysi og ruddaskap og mislíkar ef ráð-
ist er inn á þeirra áhrifasvæði með því að standa of nálægt.
7 Að drekka of mikið
Hafðu stjórn á drykkjunni! Þú gætir haldið að þú værir að
skemmta þér en fólkið I kringum þig mun hafa minna álit á þér ef
þú gætir ekki hófs. Ef einhver verður drukkinn, og hefur hátt, hrfð-
fellur hann I áliti þó að um stjórnanda sé að ræða. Sá hinn sami
ætti að óska snarlega eftir flutningi heim til s(n því að annars
gæti hann eyðilagt stemmninguna, til viðbótar við álitshnekkinn.
6 Að fara úr jakkanum
Farðu aldrei úr jakkanum og ekki losa
um bindið nema gestgjafinn geri það
og bjóði þér að gera það líka. Það er
slæmt að klæðast „niður fyrir sig" án
leyfis í samkvæmum nema maður
fari að meðmælum gestgjafans.
4 Að reykja
Flestar samkomur eru reyklausar í dag. Ef þú kveikir I sígarettu finn-
urðu strax fyrir andúð þeirra sem reykja ekki og líka þeirra sem reykja
og fara eftir hinum óskrifuðu reglum um reykleysi. Jafnvel þótt sígar-
ettureykingar séu leyfðar eru vindlareykingar það ekki. Og gættu þess
að láta aldrei öskuna detta á gólfið, Finndu öskubakka!
5 Að halda á drykknum i vitlausri hendi
Haltu alltaf á drykknum I vinstri hendi því
að þá geturðu auðveldlega tekið í höndina
á fólki með þeirri hægri án þess að hella
niður eða lenda í vandræðum. Með þessu
móti helst llka hægri höndin hlý og þurr og
það skiptir ekki litlu máli. Iskaldur drykkur
gerir höndina kalda og þvala.
Dregið í sumarkeppninnni
ijörg Bergþórs-
inningshafi og
Guðmundsson,
irstjóri hjá BT
Enibla Örk
Hölludóttir,
8 ára, dró nöfn
Hnningshafa.
0regið hefur verið í Sumarkeppni Sumars á Suður-
landi. Fyrstu verðlaun hlaut Elín Birna Árnadóttir,
Hafnarfirði, og fékk hún málsverð að eigin vali fyr-
ir allt að 20 þúsund krónur. Önn-
ur verðlaun hlaut Agnes Björg
Bergþórsdóttír, Kópavogi, og
hlaut hún tölvuleik frá BT Tölv-
um fyrir allt að 10 þúsund krón-
ur. Þriðju verðlaun hlaut Hrafii-
hildur Valgarðsdóttir, Hvols-
velli, og fékk hún nýjustu bók-
ina um Harry Potter. H3
14