Frjáls verslun - 01.10.2000, Side 16
Þorsteinn M. Jónsson, 37 ára forstjóri Vífilfells, er ásamt Sigfúsi í Heklu og Kaupþingi aö yfirtaka bœði Vífilfell og Sól-Víking og verður fyrir-
tœkjunum skellt saman á nœsta ári. Verður nýi risinn nœr 5 milljarða virði?
Þorsteinn M. Jónsson, forstjóri Vífilfells, og Sigfús
Sigfússon, forstjóri Heklu, eru meó abstoó Kaup-
pings ab kaupa Vífilfell áum 2,6 til 2,7 millj-
arða - en peir tryggðu sér meirihlutann í Sól-Vík-
ingi nýlega í gegnum Kaupping. Þegar kaupin á
Vífilfelli hafa gengið ígegn hafa öl- og gosdrykkja-
verksmiðjurnar prjár skipt um eigendur með
nokkurra vikna millibili og nemur markaðsverð
peirra núna um 6,5 milljörðum króna.
Eftir Jón G. Hauksson Myndir: Geir Ólafsson
að er eins og stór tappi hafi fokið af! Hræringunum á öl- og
gosdrykkjamarkaðnum um þessar mundir verður varla
lýst á annan hátt. Verksmiðjurnar þijár eru að skipta um
eigendur með nokkurra vikna millibili. Skákin byrjaði með sölu
þeirra Tómassona, Jóhannesar og Tómasar, á 97% hlut sínum í
Ölgerð Egils Skallagrímssonar. Verðið hefur ekki fengist gefið
upp en rætt er um að það hafi verið á bilinu 2,1 til 2,2 milljarðar.
I kjölfarið kom síðan sala Kaupþings Lúxemborgar, fyrir hönd
EE Temp S.A. í Lúxemborg, til Kaupþings á Islandi á 51% hlut í
Sól-Víkingi fyrir um 750 milljónir. Utilokað hefúr verið að grafa
upp hver sé eigandi F.E Temp S.A í Lúxemborg en þetta er mjög
líklega dótturfyrirtæki Péturs Björnssonar, fyrrum eiganda
Vífilfells. Abak við kaup Kaupþings hf. í Sól-Víkingi standa þeir
Þorsteinn M. Jónsson, forstjóri Vífilfells, og Sigfús Sigfússon í
Heklu. En það eru einmitt þeir tveir, ásamt Kaupþingi, sem
munu á næstu dögum - ef ekkert óvænt kemur upp á - ganga frá
16