Frjáls verslun - 01.10.2000, Síða 17
Sigurður Einarsson, forstjóri Kaupþings. Kaupþing kemur að málinu
sem fjárfestir ogfiármögnunaraðili. Fyrirtœkið mun leggja ípakkann
um 4 milljarða þegar uþþ verður staðið. Það er mikið fé.
Sigfús Sigfússon, forstjóri Heklu. Það var snjallt hjá Þorsteini að fá
Sigfús, sem er þaulreyndur í viðskiþtum, til liðs við sig vegna
kauþanna á Sól-Víkingi og Vífifelli.
kaupunum á Vífilfelli af CCNB, þ.e. Coca-Cola Nordic Bevera-
ges, en það hefur átt Vífilfell í tæp tvö ár og er kaupverðið talið
verða á bilinu 2,6 tíl 2,7 milljarðar. Þorsteinn og Sigfus verða ör-
ugglega meirihlutaeigendur í Vífilfelli og líklega með um 70%
hlut tíl samans því fjármögnunarfyrirtæki, eins og Kaupþing,
eru yfirleitt ekki með stóra stöðu í svona kaupum - og fara yfir-
leitt sem fyrst út aftur.
í hnotskurn er því Þorsteinn M. Jónsson, 37 ára forstjóri Víf-
ilfells, að yfirtaka tvö fyrirtæki, Vífilfell og Sól-Víking, með að-
stoð Sigfúsar í Heklu og Kaupþings og síðan mun hið sameinaða
íyrirtæki fara á markað, jafnvel þegar á næsta ári, og verða stýrt
af Þorsteini. Fyrir nokkrum mánuðum hefðu fáir séð þennan
gusugang á gosmarkaði fyrir. En svona gerast kaupin samt á
eyrinni. Markaðsverð verksmiðjanna þriggja liggur í kringum
6,5 milljarða eftír þessar hræringar. Mörgum finnst það býsna
hátt verð. Islandsbanki-FBA, í samstarfi við Gildingu, keyptí Öl-
gerðina og Kaupþing hf. leggur tíl fjármagn til kaupanna á Vífil-
felli og Sól-Víkingi.
Athyglin beinist að yfirtöku Þorsteins Þessa dagana beinist at-
hyglin auðvitað mest að yfirtöku Þorsteins á Vífilfelli. Það verður
að teljast snjallt hjá honum að hafa fengið Sigfús í Heklu, þaul-
reyndan mann í viðskiptum, tíl liðs við sig tíl að kaupa fyrirtækið
- ásamt auðvitað Kaupþingi sem annast íjármögnunina undir for-
ystu forstjóra síns, Sigurðar Einarssonar. Þótt fulltrúar Coca-Cola
Nordic Beverages séu núna í lokaviðræðum um söluna bendir
margt tíl þess að hún sé í höfii; að Þorsteinn sé þegar búinn að
landa samningnum í helstu atriðum. Hún bendir að minnsta kostí
eindregið tíl þess yfirlýsingin frá Coca-Cola Company um að ekki
verði rætt við aðra hugsanlega kaupendur á meðan samningavið-
ræður standa yfir við Þorstein og Sigfús. Enginn skyldi þó
gleyma því að kaup eru aldrei frágengin fyrr en skrifað hefur
17