Frjáls verslun - 01.10.2000, Blaðsíða 18
■/^A,
s^SSS
\ im
Jón Asgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs.
Sterkur ogþrálátur orðrómur er um að hann
sé tengdur kaupunum. Því er harðlega mót-
mælt. Enda má segja að orðrómurinn sé
fremur ótrúverðugur, slíkur væri trúnaðar-
bresturinn við verslunarstéttina í landinu.
verið undir, blekið þornað og greiðsla
borist Gert er ráð fyrir að kaupin verði
að baki fyrir jól. Coca-Cola Company tel-
ur hagsmunum sínum best borgið með
því að velja einhvern sem vill og getur
rekið fyrirtækið áiiram - og það veðjar á Þorstein. Fullyrt er að
Coca-Cola Nordic Beverages hafi keypt Vífilfell fyrir tæpum
tveimur árum fyrir eitthvað í kringum 2,2 milljarða og hyggist
núna fá um 2,6 milljarða fyrir fyrirtækið. Hagnaður Vífilfells hef-
ur aldrei verið gefinn upp en er sagður hafa verið í kringum 200
milljónir króna á ári að jafnaði á undanförnum árum.
Fyrsta skrefið hjá Þorsteini og Sigfúsi Með því að tryggja sér
meirihlutann í Sól-Víkingi í byijun nóvember í gegnum Kaup-
þing hf. tóku þeir Þorsteinn og Sigfús fyrsta skrefið að markmiði
sínu; sameinuðu fyrirtæki Vífilfells og Sólar-Víkings. Ýmsir
spyrja sig raunar að því hvort þau kaup geti þrýst kaupverðinu á
Vífilfelli upp þar sem drifkrafturinn í áætluninni er Vífilfell og við-
semjandinn veit að það fyrirtæki verða þeir að fá vegna
kaupanna á Sól-Víkingi á dögunum. Þótt svo ólíklega vildi til að
bakslag kæmi í viðræðurnar um kaupin á Vífilfelli yrði tiltölulega
auðvelt að selja Sól-Víking aftur. Ekki má heldur horfa fram hjá
því að Coca-Cola Company í Bandaríkjunum á 49% í CCNB á
móti 51% Carlsberg A/S í Danmörku. Carlsberg hefur hafið
samstarf við drykkjarvörurisann Orkla sem m.a. framleiðir
Pepsi í Sviþjóð og Noregi og það samstarf varð raunar til þess að
Coca-Cola Company ákvað að hætta samstarfinu og leysa
CCNB upp og þess vegna var Vífilfell til sölu handa Islending-
um. Margir spyija sig eðlilega að því hver hugsunarháttur Carls-
bergsmanna við söluna á Vífilfelli sé. Er það að finna sterkan
framleiðanda Coca-Cola drykkjarins eða ætlar það að spila
„harðan bolta“ og hugsa eingöngu um að fá sem hæst verð fyrir
sinn hlut í verksmiðjunni?
Urn 5 rnilljarða risi í uppsiglingu? Markaðsverð Sólar-Víkings
miðað við kaup Kaupþings, fyrir hönd þeirra Þorsteins og Sig-
fúsar, á dögunum er nálægt 1,5 milljörðum. Gangi kaupin á Víf-
ilfelli eftir á um 2,6 milljarða yrði markaðsverð fyrirtækjanna
tveggja við sameiningu um 4,1 milljarður. Síðan ykjust þau verð-
mæti vegna áhrifa sameiningarinnar. Þess vegna verður fróðlegt
að sjá verðmiðann á því þegar það fer á markað á næsta ári. Nota
bene, gangi allt upp. Eitthvað verða núverandi kaupendur að fá
fyrir sína áhættu og vinnu við kaupin. Of hátt upphafsverð á
Verðbréfaþingi gæti hins vegar fælt almenna íjárfesta frá þar
sem fyrirtækið ætti þá ekki nægilega mikla verðhækkun inni á
markaðnum nema geta sýnt fram á nýjar framleiðsluvörur og
nýja markaði, þ.e. nýjar tekjulindir. Jafnvel er hægt að leiða að
því líkum að markaðsverð hins sameinaða fyrirtækis við skrán-
ingu á Verðbréfaþingi yrði ekki Ijarri 5 milljörðum. Altént eru
ljármálaspekúlantar á því að fyrst Ölgerðin sé metin á um 2,2
milljarða og Sól-Víking á um 1,5 milljarða ætti verðið á Vífilfelli
ekki að vera langt frá 3,0 milljörðum. Kaupsamningur upp á um
2,6 milljarða, eins og rætt er um að sé í gangi, er því býsna góð-
ur. A mótí geta svo spekúlantar velt því fyrir sér hvort fyrirtæk-
in þijú séu ekki öll of hátt verðlögð. Þau starfa á innanlands-
markaði þar sem möguleikar tíl að vaxa eru litlir nema með sam-
einingu við önnur fyrirtæki sem hér eru fyrir. Að vísu gætu þau
reynt fyrir sér með útflutning á öli og gosdrykkjum. Er eitthvað
sem segir að Egils-gull, Egils-appelsín, Tliule og Viking gætu
ekki selst í útlöndum, þetta eru sterk merki hér heima?
Jon flsgeir ekki innanborðs Það hefur vakið athygli við kaupin
á Vífilfelli að sterkur og þrálátur orðrómur hefur verið um það í
viðskiptalífinu að Jón Asgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, sé
með í kaupunum á Vífilfelli með þeim Þorsteini, Sigfúsi og Kaup-
þingi. Þessi saga er hins vegar harðlega borin til baka af Þor-
steini við Fijálsa verslun og segir hann að það séu eingöngu
hann og Sigfús sem standi að kaupunum ásamt Kaupþingi. Ef-
laust eiga þessar sögusagnir um Jón Asgeir rætur að rekja til
þess að þeir Þorsteinn M. eru miklir félagar og vinir. Þannig sit-
ur Þorsteinn í stjórn Samheija á Akureyri fyrir hönd fjái'festíng-
arfélagsins Skelja sem keyptí í byrjun ársins í Samherja. likum
hefúr verið að því leitt að Þorsteinn eigi helminginn í Skeljum á
mótí Bónusfeðugum. Sömuleiðis benda sumir á að fyrirhuguð
kaup á Vífilfelli og þá ekki síður nýleg kaup Kaupþings á meiri-
hlutanum í Sól-Víkingi séu ekki nægilega gegnsæ, þ.e. að það sé
ekki nægilega upp á borðinu hveijir séu raunverulega að kaupa
og hvað sé þá verið að fela. Þannig er vitað að Kaupþing var með
þá Þorstein og Sigfús að tjaldabaki við kaupin á meirihlutanum í
Sól-Víkingi á dögunum. Það hefúr aldrei verið sagt beint út
Kannski bíður orðalagið „hópur íjárfesta undir forystu Þor-
steins“ líka upp á kviksögur. Altént bíða ýmsir spenntír eftír því
hvort einhver huldufélög skráð í Lúxemborg verði á meðal eig-
enda hins sameinaða fyrirtækis Vífilfells og Sólar-Víkings þegar
það fer á hlutabréfamarkað hérlendis.
Otrúverðugt Sögurnar um að þeir Bónusfeðgar, með Jón Asgeir,
forstjóra Baugs, langstærsta verslunarfyrirtækis á íslandi, séu að
festa fé í Vífilfelli verða raunar að teljast íremur órökréttar og
ótrúverðugar. Fyrir það fyrsta er því harðlega mótmælt og engin
ástæða er tíl annars en að taka mark á þeim mótmælum. I annan
stað eru þær ótrúverðugar vegna þess að hvoru megin við borð-
ið myndi Jón Asgeir vera þegar Baugur skiptí við Vífilfell? Hvort
væri hann að hugsa um hagsmuni hluthafa í Baugi eða Vífilfells í
viðskiptum félaganna? Hvað segðu eigendur annarra verslana,
sem skipla daglega í miklum mæli við Vífilfell, við því að forstjóri
Baugs væri á meðal hluthafa í Vífilfelli? Myndu þeir ekki henda
vörum Vífilfells út í viðskiptum við félagið? Að minnsta kostí væri
það mikið vatn á myllu Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar ef
Jón Asgeir væri einhvers staðar innanborðs i kaupunum á Vífil-
felli, slíkur trúnaðarbrestur væri kominn upp á milli Vífilfells og
verslunarstéltarinnar. Ennfremur gerir það jjessa sögu líka ótrú-
verðuga að Jón Asgeir situr í stjórn Islandsbanka-FBA, sem í
Samningar virtust vera að takast um kaup Landsbankans á bréfum Péturs þegar leið að helginni
27. til 29. október sl. en þá mun hafa komið bakslag í viðræðurnar af hálfu Landsbankans. Á
þessum tímapunkti er fullyrt að Landsbankinn hefði getað eignast meirihlutann í Sól-Víkingi.
18