Frjáls verslun - 01.10.2000, Blaðsíða 20
Um 2,6 til 2,7 milljarðar. Vifilfell. Sagt er ab verðhugmyndir íþeim kaupviðrœðum sem
núna standa yfir séu á bilinu 2,6 til 2,7 milljarðar.
Um 2,1 til 2,2 milljarðar. Ölgerð Egils SkaUagrímssonar. Íslandsbanki-FBA í samstarfi
við Gildingu keypti jyrirtækið nýlega og er kaupverðið sagt hafa verið á bilinu 2,1 til 2,2
milljarðar. FV-mynd: Geir Olajsson
Um 1,5 milljarðar. Sól-Víking hefur leikið lykilhlutverk í baráttunni á öl- oggosdrykkja-
markaðnum. Markaðsverð fyrirtœkisins er um 1,5 milljarðar um þessar mundir.
300 milljónir króna. Núna er það metið á um 1,5
milljarða.
Af þessari sögu leiðir að mjög sterk tengsl
hafa verið á milli Vífilfells og Sólar-Víkings. For-
stjóri Vífilfells og stjórnarformaður Sólar-Vík-
ings eru og hafa verið sami maðurinn. Varla er
því hægt að segja að ný blokk sé að myndast á
markaðnum með fyrirsjáanlegum samruna Víf-
ilfells og Sólar-Víkings. Að vísu munu hvorki
Baldvin Vaidimarsson, framkvæmdastjóri Sólar-
Víkings, né aðrir stjórnendur innan Sólar-Vík-
ings eða Vífilfells vera innanborðs í fjárfestingar-
hópi Þorsteins. Það hlýtur að teljast fremur sér-
kennilegt Þeir sem þekkja til segja raunar að
afar stirt hafi verið á milli Þorsteins og Baldvins
um nokkurt skeið og að Þorsteinn hafi hann
ekki inni í myndinni í Vífilfells/Sólar-Víkings
samsteypunni. Því er meðal annars haldið fram
að Baldvin hafi verið viðloðandi tilboð Lands-
bankans og EFA í meirihlutann í Sól-Víkingi á
dögunum og keppt þannig við Þorstein um fyr-
irtækið. Aðrir stjórnendur eru heldur ekki í íjár-
festingarhópi Þorsteins en ætla verður að Þor-
steinn þurfi að veita þeim kauprétt á hlutabréf-
um í fyrirtækinu þegar það fer á markað.
Barist um bréfin - sinnuleysi Íslandsbanka-FBA
Það gekk ekki samkeppnislaust fyrir sig hjá
Kaupþingi hf. á fslandi að ná meirihlutanum í Sól-
Víkingi mánudaginn 6. nóvember sl. og er það
kapítuli út af fyrir sig. Barist var um bréfin og má
fúrðulegt teljast í þeirri baráttu hvað íslands-
banki-FBA hafði sig lítið í frammi, nýbúinn að
kaupa Ölgerðina, því samlegðaráhrifin væru
mun meiri með sameiningu Sólar-Víkings við Öl-
gerðina en Vífilfell. Ölgerðin er nýbúin að byggja
upp glæsilegt og nýtískulegt brugghús og hefði
því með sameiningu getað lagt bjórverksmiðju
Sólar-Víkings á Akureyri niður en þar er allur
bjór þess bruggaður og fluttur suður á höfuð-
borgarsvæðið með lilheyrandi kostnaði. Islands-
banki-FBAkom í raun aldrei með formlegt tilboð
heldur mun það hafa verið óformlegt og nokkuð
háð skifyrðum eftir því sem næst verður komist
Vissulega hefði Islandsbanki-FBA tekið nokkra
áhættu með því að kaupa meirihlulann í Sól-Vík-
ingi því samkeppnisyfirvöld hefðu getað hafiiað
sameiningu þess við Ölgerðina. Lögfræðingar
skiptast þó algerlega í tvo hópa hvað það snertir.
Eitt er víst að samkeppnisyfirvöld gætu ekki
haldið því fram að með einum bjórframleiðanda
hérlendis ættu neytendur aðeins kost á íslensk-
um bjór. Samkeppnin er mikil við erlendar bjór-
tegundur. En hvað um það, bæði Kaupþing hf. á
íslandi og Landsbankinn í samvinnu við EFA,
Eignarhaldsfélagið Alþýðubankinn, komu með
tilboð. Þar hafði Kaupþing betur.
Þorsteinn mfssti nær af Sól-Vikingi Margir hafa
velt því fyrir sér hvort einhverjir raunhæfir
20