Frjáls verslun - 01.10.2000, Blaðsíða 27
Sól hefur tryggt sér áberandi hús á horni Grensásvegar og Miklubrautar í Reykjavík og tekur þar til starfa um áramót.
eðlilegt er við nýjar hugmyndir, en það er langtímafjárfesting
sem skilar sér síðar,“ segir hann og telur að verðið hafi ekki
verið of lágt en kannski hefði átt að selja dýrara verði þær
ferðir sem ekki voru seldar í gegnum Netið.
Helgi Jóhannsson telur að Flugfrelsið hafi verið byltingar-
kennd nýjung, frumkvöðlastarf. SL hafi alltaf staðið framar-
lega hvað það varðar að halda uppi samkeppni og koma með
nýjungar sem aðrir hafi síðan tekið upp. Framtíðin sýni að
neytendur vilji losna við flóknar reglur þegar
þeir kaupa ferðir til útlanda.
„Það er spá mín að innan
þriggja ára verði allir keppi-
nautar okkar farnir að þjóða
Flugfrelsi í einhverri mynd,“
segir hann.
- Þú hefur verið gagnrýndur
fyrir „glannaskap", auk þess
ertu sagður „áhættusækinn og
kaldur bissnessmaður" sem
aldrei vilji tala um afkomu, ein-
ungis farþegaíjölda og veltu.
Hverju svararðu þessu?
„Það verða aðrir að dæma um. bæknngi ferdaskrifstofu um
Ég tel fullvíst að þeim sem hafa haft einokunarstöðu á ís-
lenskum ferðamarkaði í tugi ára finnist ekki mikið til mín
koma, og ég tala nú ekki um Flugfrelsið, ekki geta þeir haft
mikið álit á því. Ég viðurkenni fúslega að ég er tilbúinn til að
taka áhættu og hef gert það öll þau ár sem ég hef verið í for-
svari fýrir Samvinnuferðir-Landsýn. Vilji menn vera leiðandi í
sinni atvinnugrein þá verður ekki hjá því komist að taka ein-
hverja áhættu. Ég held að enginn, hversu lítið álit sem hann
kann að hafa á mér, þori að bera á
móti því að það er fyrst og fremst
SL að þakka að ferðalög eru í dag
jafn hagkvæm og raun ber vitni.
Það má vel vera að slagorð okkar
gegnum árin „Gerum sem flestum
kleift að ferðast" hafi bitnað á
hagnaðarmarkmiðum félagsins.
Það tek ég á mig. Þó að afkoma
fyrirtækisins á þessu ári standi
ekki undir væntingum þá hefur
okkur vegnað vel þau 16 ár sem
ég hef verið í forsvari þar, þökk sé
frábæru starfsfólki," segir Helgi
Jóhannsson.
ferdir til útlanda.
50 ferðaskrifstofur
Um 50 ferðaskrifstofur eru starfandi á íslandi í dag,
flestar á höfuðborgarsvæðinu. Stærstar eru Ferðaskrif-
stofa ísiands með Úrval-Útsýn innanborðs. Úrval-Út-
sýn er að 80% í eigu Flugleiða og 20% í eigu Eimskips.
Samvinnuferðir-Landsýn kemur næst. Fyrirtækið fór á
markað 1997 og eru eigendur nú EFA með 25%, VÍS
20%, Olíufélagið tæp 20% og Frjálsi fjárfestingarbank-
inn með 8%. Verkalýðsfélögin og einstaklingar eiga
minna. Heimsferðir, sem Andri Már Ingólfsson stýrir,
og hvað aðrar ferðaskrifstofur varðar má nefna Land-
námu, Ferðaskrifstofu Reykjavíkur, Kínaklúbb Unnar,
Heimsklúbb Ingólfs og Terra Nova. Ferðaskrifstofan
Plúsferðir selur ferðir á lágu verði og tilheyrir Flug-
leiðum.SO