Frjáls verslun - 01.10.2000, Side 28
FBÉTTflSKÝRING
Traustur og yfirvegaður Upp-
stokkun er í aðsigi hjá SL. Við
starfi framkvæmdastjóra tók um
síðustu mánaðamót Guðjón Auð-
unsson, fv. framkvæmdastjóri
Landsteina, sem álitinn er yfirveg-
aður og traustur maður. Guðjón
hefur þegar látið grípa til ýmissa
ráðstafana til að draga saman í
rekstri fýrirtækisins og frekari að-
gerðir eru í bígerð. Fyrirtækið
mun draga saman sætaframboð
um 20 prósent með því að skera
niður umframsæti. Nýtt bókunar-
kerfi verður tekið í notkun og gef-
ur það tækifæri til hagræðingar og
betri tengingar milli upplýsinga-
kerfa. Starfsmönnum fækkar og
ná uppsagnirnar yfir allar deildir
þó að þær geti komið verr við litlar
deildir en stórar. Við þessa fækk-
un mannafla eiga að sparast 60-80
milljónir króna. Flutt verður í nýtt
húsnæði við Sætún 1 í Reykjavík og verður starfsemin þá á
einu gólfi í stað sjö áður.
Stefnt er að því að halda óbreyttri veltu á næsta ári. Hug-
myndir eru um að selja hlut SL í Sætúni 1 því að það er verð-
mæt eign á góðum stað í bænum. „Það má auðvitað deila um
hvort fyrirtæki eigi að festa fjármuni í fasteign. Eg er ekkert
viss um það. Hugmyndir eru um að selja þessa verðmætu
eign. Við erum að flytja inn í þetta húsnæði og munum ekki
flytja aftur. Menn selja ekki húsnæðið nema fyrir liggi lang-
tímasamningur um leigu,“ segir Guðjón.
Óbreytt velta á næsta ári Búist er við samdrætti í þjóðfélag-
inu á næstu tveimur árum og telja ferðaskrifstofurnar að það
komi ljóslega fram í eftirspurn eftir utanlandsferðum, sérstak-
lega eftir það sem keppinautar SL
telja undirboð fýrirtækisins síðustu
ár. Innan SL er þó stefnt að því að
farþegafjöldi og velta SL verði
óbreytt á næsta ári. 20 þúsund far-
þegar ferðuðust með Flugfrelsinu í
sumar en velta fyrirtækisins var
um 2,5 milljarðar árið 1999 og talað
er um að hún nemi 3 milljörðum í
ár. Til samanburðar má nefna að
velta Ferðaskrifstofu Islands, sem
er stærsta ferðaskrifstofan á mark-
aðnum, var 3,5 milljarðar í ár og
velta Heimsferða, sem flutti 19 þús-
und farþega í sumar, stefnir í einn
milljarð á þessu ári.
Undanfarin ár hefur ferðageir-
inn einkennst af „ævintýrum" þar
sem nýjar ferðaskrifstofur hafa
komið fram á sjónarsviðið en lifað
skammt. Ferðaskrifstofur hafa
sameinast og margar hafa safnast
undir hatt Ferðaskrifstofu Islands
eða Flugleiða, sem eiga Úrval-Utsýn. Sem dæmi má neftta
Ferðaskrifstofu Úlfars Jacobsen, Ferðaskrifstofu Akureyrar og
Ferðaskrifstofuna Sögu. Viðmælendur Fijálsrar verslunar spá
því að miklar breytingar eigi eftir að verða í ferðageiranum.
Samruni ferðaskrifstofa haldi áfram þannig að innan fárra ára
standi tvær eftir sterkar á markaðnum en ekki er gott að segja
hvaða ferðaskrifstofur það verða. Ovissa felst í Netinu og eru
menn ekki sammála um hversu mikil áhrif það mun hafa. Sum-
ir telja að starfsemi ferðageirans fari að verulegu leyti fram um
Netið innan fárra ára en aðrir telja að viðskiptavinirnir sæki
áfram til sinna hefðbundnu ferðaskrifstofa. Það er þó ljóst að
breytingarnar eiga sér stað hratt. Fyrir ári síðan hefði enginn
getað ímyndað sér atburðarás þessa árs. Það getur því orðið
fróðlegt að vita hvernig staðan verður að ári. BH
Ferðaskrifstofur í 15 ár
Rekstur ferðaskrifstofa hefur gengið brösuglega á ís-
landi. Um miðjan níunda áratuginn voru helstu ferða-
skrifstofurnar í Reykjavík ríflega tíu talsins og sam-
keppnin hörð. Árið 1988 voru Samvinnuferðir-Landsýn
og Útsýn stærstar á markaðnum og Atlantik, Ferðamið-
stöðin, Pólaris, Saga, sem stofnuð var 1986, og Úrval
stórar en þó nokkru minni en hinar tvær. Allar gerðu
þær út á sólarlandaferðir, að sögn Frjálsrar verslunar
árið 1988. Ferðaskrifstofa ríkisins var einnig stór en
hún var ekki á sama markaði og hinar. Þá voru einnig í
rekstri Ferðaskrifstofa stúdenta, F.Í.B., Ferðaskrifstofa
Úlfars Jacobsen og Ferðaskrifstofa Guðmundar Jónas-
sonar, sem gerðu út á aðra markaði. Miklar sviptingar
hafa alltaf verið í hinum harða samkeppnisheimi ferða-
skrifstofanna og margir verið tilbúnir til að freista gæf-
unnar; ferðaskrifstofur hafa sameinast og ævintýrin
komið og farið. Á tíunda áratugnum voru starfræktar
ýmsar ferðaskrifstofur á borð við Sólarferðir, Sunnu,
Veröld, Ferðaskrifstofu Akureyrar og Plúsferöir. Til-
hneigingin hefur þó verið mjög greinileg, ferðaskrif-
stofum hefur fækkað og margar þeirra hafa lent undir
hatti Flugleiða. Þannig fór um Ferðaskrifstofu ísiands,
Úrval og Útsýn og Plúsferðir. Segja má að nokkrar
ferðaskrifstofur berjist um hituna á íslenskum markaði
í dag. Samvinnuferðir-Landsýn og Ferðaskrifstofa ís-
lands með Úrval-Útsýn innan borðs, en þessar tvær eru
stærstar, og svo eru Heimsferðir. Ferðaskrifstofa stúd-
enta er að vísu enn starfandi, sömuleiðis ferðaskrifstof-
an Atlantik, en hún sérhæfir sig eingöngu í því að taka
á móti skemmtiferðaskipum.B!]