Frjáls verslun - 01.10.2000, Page 40
ÚTGflFfl
Opnunarhátíð Heims
og Talnakönnunar
Talnakönnun og nýstofnað dótturfélag þess, Heimur hf.,
tóku 24. nóvember sl. í notkun nýja og glæsilega hæð í
húsakynnum iýrirtækjanna við Borgartún 23. Eigandi
hússins Hegri hf. sem er í eigu Asgeirs Jónssonar, þekkts 86
ára athafnamanns hér í borg, ákvað að byggja eina hæð ofan á
húsið og hófúst framkvæmdir við það síðastliðið vor. Segja má
að smiðshöggið hafi verið rekið á hina nýju glæsilegu hæð
þegarTalnakönnun og Heimur tóku hana í notkun og buðu til
glæsilegrar opnunarhátíðar. Talnakönnun og Heimur leigja því
núna tvær hæðir við Borgartúni 23, Heimshúsinu eins og
hægt væri að kalla það.BH
Ragnheiður Erla Eiriksdottir og Hilmir Jensson, marg-
faldir dansmeistarar, dönsuðu fjörugan Tanngoma-
tango við samnefnt lag af disknum Best að borða Ijoð,
Benedikt Jóhannesson, framkvœmdastjóri Talnakönnunar, óskar
Asgeiri Jónssyni, forstjóra Hegra, til hamingju með nýju hœðina.
Hermann Guðjónsson, forstjóri Siglingastofnunar, Ingimundur Sigur-
pálsson, forstjóri Eimskiþs, og Páll Sigurjónsson, forstjóri Istaks,
bregða á glens.
Helgi Þórsson, stœrðfrœðingur hjá Fjármálaeftirlitinu, Jóhannes Zo'éga,
verkfrœðingur, og Sólveig Pétursdóttir, dómsmálaráðherra, ræða málin.
40