Frjáls verslun - 01.10.2000, Qupperneq 46
Björn Brynjúlfur Björnsson hjá Hugsjón: „Eg ákvað að nota
svart/hvítar myndirsem vœru í ætt við listrœnar Ijósmyndir og úr því
þróaðist að hafa alla í auglýsingunni nakta. “
ar, spýta, sög,“ var ákveðið að höfða fremur til tilfínninga
þeirra sem fólk finnur fyrir þegar það er að bæta umhverfi sitt
og breyta því og þess vegna voru notuð orð sem lýsa þeim,
svo sem: „Elska, njóta, vilja fá“. Auglýsingin er svart/hvít og
öll vinnsla mjög vönduð, en með því viljum við undirstrika
gæði vöru og þjónustu okkar í Húsasmiðjunni."
Hjá fyrirtæki sem selur um og yfir 50 þúsund vörunúmer
er vonlaust að reyna að koma til skila til neytenda úrvalinu
með því að telja upp vörur, enda segir Olafur það ekki reynt.
„Við fórum þá leiðina að sýna einstakar vörur á nöktu fólki og
breyta þar með samhenginu og vekja athygli á þann hátt. Við
höfum orðið þess varir að auglýsingin hefur vakið talsverða
athygli og rætt er um hana. Þessi auglýsing er fyrst og fremst
„ímyndarauglýsing", henni er ætlað að byggja upp langtímaá-
hrif. Hvort hún nær takmarki sínu og eykur sölu er erfitt að
dæma um, enda erum við með fleiri auglýsingar uppi á ten-
ingnum í einu, en hins vegar hefur salan í októbermánuði
verið góð og talsvert betri en áætlað var.“
flllir þekkja lagíð Það er eitthvað grípandi við þetta gamla
lag: „Hani, krummi, hundur, svín“, sem notað er í auglýsing-
unni, og hugmyndin um að telja upp í textanum vörur sem
fást í Húsasmiðjunni heppnaðist vel á sínum tíma. „Það var
vilji Húsasmiðjunnar að nota einhver atriði úr eldri auglýsing-
unni þar sem hún var að nokkru marki orðin einkennismerki
hennar,“ segir Björn Brynjúlfur Björnsson hjá Hugsjón, sem
framleiddi auglýsinguna.
„Við unnum þessa mynd með Islensku auglýsingastofunni
undir forystu Þóris Hrafnssonar. María Olafsdóttir hönnuður
sá um útlit myndarinnar; leikmynd og búninga, sem var mik-
Að elska, njóla o
Auglýsing Húsasmiðjunnar þar
sem sér í nakta líkama, sem á
einn eða annan veg eru bak-
grunnur fyrir vörur fyrirtækisins,
hefur vakið nokkra athygli. „Þessi
nýja auglýsing er að nokkru leyti
byggð á annarri auglýsingu sem gerð
var árið 1995 en sú auglýsing þótti
takast vel. Hún vakti athygli á sínum
tíma og vann til
verðlauna ÍMARK,“
segir Ólafur Júlíus-
son, sölu- og mark-
aðsstjóri Húsa-
smiðjunnar. „Við
vildum nota lagið
áfram þótt það væri
sett fram á nýjan
hátt og með nýjum
texta en í stað þess
að telja upp vörurn-
ar og segja: „Ham-
Nekt kemur mjög við sögu í nýjum
auglýsingum Húsasmiðjunnar. Hér
erskyggnst á bak við hugmynda-
frœðina í þessari sérkennilegu
auglýsingaherferð.
Eftír Vigdísi Stefánsdóttur Myndir: Geir Ólafsson
ið starf þótt allir leikararnir hafi verið
naktir í myndinni! Jón Örn Marinós-
son, sem gert hafði textann við fyrri
auglýsinguna, samdi nýjan texta þar
sem höfðað var fremur til tilfinninga.
Það tókst afskaplega vel, að okkar
mati, og þegar vísurnar komu til okk-
ar var næsta verkefni að búa til mynd-
ir sem væru sérstakar og óvenjulegar,
en hefðu þó í sér
einhverja tengingu
við Húsasmiðjuna
og vörur þær sem
þar fást. Þá fæddist
sú hugmynd að búa
til myndir sem væru
í ætt við svart/hvít-
ar, listrænar ljós-
myndir þar sem vör-
urnar væru settar í
óvenjulegt sam-
hengi.“
46