Frjáls verslun - 01.10.2000, Blaðsíða 47
imyndarauglýsing fyrst og fremst Auglýsingín er ímyndar-
auglýsing sem ætlað er að byggja upp langtímaáhrif fyrir
ímynd Húsasmiðjunnar og ætluð er fyrir sjónvarp,“ segir
Guðlaugur hjá íslensku auglýsingastofunni. Hugmyndin er
sú að myndir úr auglýsingunni verði notaðar í dagblöð, tíma-
rit og umhverfisgrafík, ásamt sjónvarpi. I hugmyndavinnunni
lagði íslenska auglýsingastofan til að tengja auglýsinguna við
síðustu ímyndarauglýsingu Húsasmiðjunnar, sem gerð var
árið 1995, og þótti lagið tilvalinn kostur. Ahersla var lögð á að
auglýsingin yrði í senn ögrandi og fáguð. Textinn að þessu
sinni var huglægur og höfðaði til tilfmninga í stað hlutlægra
þátta áður og umhverfið haft „tímalaust“, líkt og í eldri aug-
lýsingunni."
Thor og Sjón í góðum félagsskap Fjöldi fólks kemur fram í
auglýsingunni og nokkrir þekktir einstaklingar þar á meðal.
Hægt er að þekkja Thor Vilhjálmsson, Sjón, Dýrleif, Kormák,
Ingibjörgu Stefánsdóttur, Finnboga Stefánsson og Daníel
Magnússon, svo eitthvað sé nefnt. I allt koma fram milli 20 og
30 einstaklingar, sem hlýtur að teljast óvenjulegt í mynd sem
ekki er nema 30 sekúndur að lengd.
„Eg ákvað að nota svart/hvítar myndir sem væru í ætt við
listrænar ljósmyndir og úr því þróaðist að hafa alla í auglýs-
ingunni nakta. A hverri mynd er því aðeins manneskjan
ásamt einhveiju af vörum þeim sem í Húsasmiðjunni fást og
umhverfið valið með tilliti til efnisins. Við mynduðum á stöð-
um sem eru á einhvern hátt sérstakir eða fallegir, til að
mynda á listasöfnum og stofnunum þar sem er skemmtilegur
arkitektúr til þess að mynda listrænan bakgrunn. Nokkrar
myndir voru svo teknar í stúdíói."
Samtenging Víð þekkt listaverk Sumar myndanna eru eftir-
gerðir af frægum ljósmyndum eða listaverkum. Hægt er að
þekkja m.a. Kringlukastarann og málverk Velaces þar sem
stúlka liggur í forgrunni og engill heldur á spegli. Þetta ger-
ir myndina að mörgu leyti skemmtilega því þeir sem til
þekkja hafa gaman af því að skoða og finna samtengingu við
þekkt verk. Annað er að myndin er tekin á þreföldum hraða
og því hreyfist allt mjög hægt sem myndar stemmningu í
myndinni. Filman var unnin í Danmörku þar sem ekki eru til
tæki hér á landi til að vinna svart/hvítar myndir á þann hátt
sem þurfti til.
„Snemma í vor var farið að velta fyrir sér leiðum sem hægt
væri að fara en líklega hefur hugmynda- og undirbúnings-
vinna tekið um tvo mánuði,“ segir Björn. „Það er alltaf nokk-
ur hluti tökunnar sem lendir „á gólfinu", eins og sagt er. Upp-
takan sjálf tók íjóra daga og við þurftum oft að vinna á kvöld-
in þegar ekki var hægt að mynda að deginum vegna opnun-
artíma. Mikill íjöldi fólks kom að gerð myndarinnar, bæði við
framleiðslu hennar og á auglýsingastofunni. Eg mundi giska
á að ekki færri en tvö hundruð manns hafi unnið við þessa
auglýsingu þegar allt er talið.“ B3