Frjáls verslun - 01.10.2000, Side 59
LEIÐTOGflR
Davíð Oddsson
r
Eg leit upp til hans [föður síns]. Hann var
góður læknir, afar laginn og notalegur, en
átti óneitanlega í erfiðleikum í einkalífinu. Ég
fylgdist með þessum erfiðleikum þegar ég
var unglingur en í minningu minni var hann
mjög greindur og snjall maður þegar hann var
upp á sitt besta og skemmtilegri mann sótti
maður ekki heim, ef sá var gállinn á honum."
„Ástríður hefur aldrei otað mér út í eitt eða
neitt. Ekki hefur hún heldur reynt að koma í
veg fyrir að ég geri ákveðna hluti en stundum
hefur hún spurt mig hvort ég sé alveg viss.
Hún var til dæmis mjög hugsi yfir því þegar
ég fór í formannskjörið í Sjálfstæðisflokknum
og sá ýmsa annmarka sem því fylgdu. Þegar
ég var búinn að gera það upp við mig þá
veitti hún mérfullan stuðning."
„Samstarfsmenn mínir þurfa ekki endilega
að hafa sömu skoðanir en þó vil ég gjarnan að
ákveðnar meginlínur séu skýrar og að Ijóst sé
hvað leyfilegt er að gera og hvað ekki. Sumir
hafa ekki þá innbyggðu fjöður í höfðinu sem
segir manni hvað má og hvað ekki. Ég þekki
einstaka mann sem þarf að útskýra slíkt fyrir."
„Ég er skapstór og get verið mjög kvikur.
Þetta er stór galli. [...] Kveikiþráðurinn er of
stuttur og ég get snöggreiðst, sérstaklega ef
ég verð vitni að ósanngirni eða ósannindum.
Reiðin sést á mér og ég á erfitt með að leyna
henni þó að henni fylgi ekki mikill hávaði eða
stór orð. Ég hef þó náð miklu betri tökum á
skapi mínu með árunum.Œ]
Kári Stefánsson
Isvona stórum systkinahópi með litlu ald-
ursbili var samkeppnin um athygli foreldr-
anna mikil. Faðir minn hafði tilhneigingu til
að spila á þá staðreynd. Við vorum með alls
konar samkeppni innan fjölskyldunnar og þar
á meðal var Ijóðakeppni þar sem ætlast var
til þess að við krakkarnir settum saman vísur.
Með þessum hætti brýndi faðir minn keppn-
isskapið hjá sumum systkinanna."
„Þó að ég hafi verið áberandi og þó að ég
hafi unnið mikið er ég ekkert hræddur um að
brenna hratt upp. Ég hef óþrjótandi orku og
mér finnst að ég hafi meiri orku en nokkru
sinni fyrr, enda hef ég svo gaman af því sem
ég er að gera. Af og til verð ég þunglyndur
yfir því hvað ég eyði miklum tíma í vinnu
mtna en það er bara vegna þess að ég hef
önnur verkefni sem mig langar að vinna að."
„Ég geri mér grein fyrir því að þegar ég lýsi
sjálfum mér er ég að lýsa ævintýralega leið-
inlegum karakter. Ég er tiltölulega frekur og
ákveðinn en ég held að ég sé ekki dómharður.
Það fýkur hratt í mig og ég verð stundum reið-
ur en það varir einungis í fimmtán sekúndur
þvf ég á mjög auðvelt með að fyrirgefa."
„Vilji menn gera eitthvað sem skiptir máli í
þessum heimi verða þeir að hafa vilja til að
horfast í augu við þá staðreynd að maður
verður að taka áhættu. í því samhengi er líka
mikilvægt að gera sér grein fyrir því að mað-
ur getur aldrei komist hjá því að taka áhættu.
Það er ranghugmynd að maður geti búið til
öruggt líf þar sem ekkert þarf að óttast." 03
Vigdís Finnbogadóttir
Uppeldið einkenndist aðallega af því að
mér var treyst og það hefur auðvitað haft
sín áhrif á mig. Jafnframt var mikið aðhald í
mínum foreldrahúsum, mikill agi og reglu-
festa, en Þorvaldur, bróðir minn, sætti sig
verr við það en ég."
„Ég upplifði mikið svartnætti en nú sé ég að
þetta var eitt það besta sem fyrir mig gat
komið. Ég fór í gegnum mikla sjálfsuppbygg-
ingu, og sjálfsslípun, sem ég átta mig á nú að
var uppskera þessara leiðindatíma. Ég hefði
aldrei orðið jafnsátt við mig og ég er ef ég
hefði áfram verið gift Ragnari, svo vænn sem
hann var."
„Aldrei datt mér þó í hug sjálfri að ég ætti
að sækjast eftir stjórnunarhlutverkum. En allt
í einu hringdu í mig menn, sem ég tók mikið
mark á, og sögðu að ég ætti að sækja um
leikhússtjórastöðu hjá Leikfélagi Reykjavíkur.
Ég sagði við sjálfa mig að það hlutverk gæti
ég engan veginn tekið að mér, en þar kom að
það fór að hvarfla að mér að kannski ætti ég
einn góðan veðurdag í framtíðinni eftir að
hugsa sem svo: „Af hverju tókstu ekki já-
kvætt í þessa uppástungu þarna um árið?""
„Við ungt fólk, sem hefur áhuga á forystu-
störfum, segi ég að það eigi að rækta sjálft
sig og treysta á sjálft sig. Það á að beita sig
aga og leita að lífsfyllingu sem er fyrir ofan
hin veraldlegu gæði. Þó að mér hafi fundist
ég vera á berangri þá hika ég ekki við að
hvetja ungt fólk til að vera í forystu og alltaf
þykir mér jafngaman að sjá ungt fólk á leið í
leiðtogahlutverk." SH
59