Frjáls verslun - 01.10.2000, Síða 61
NETVERSLUN
Erlendis er gert ráð fyrir að rafræn viðskipti taki stórstígum
breytingum á næstu árum og nú er jafnvel talað um 20-25 pró-
senta aukningu milli ára. Jón Scheving nrorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri þróunarsviðs hjá Baugi hf., segir að á Bret-
landseyjum sé gert ráð fyrir að smásöluverslun á vefnum hafi
náð 5% af heildar smásöluverslun árið 2005. Hann telur að
svipað verði hér, smásalan færist sem þessu nemur inn á Net-
ið og nemi um 6-7 milljörðum króna eftír nokkur ár. Reynslan
hefur sýnt að netverslanir eru háðari jólaversluninni en aðrar
verslanir því að veltan er hlutíallslega miklu meiri fyrir jólin
en á öðrum árstíma.
Verðstríð á Netinu? Til að verslun þrífist á Netinu er gert
ráð fyrir að vöruverð sé 5-20 prósentum lægra en út úr búð
og er þá sendingarkostnaður ekki talinn með. í dag er talað
um að vöruverð sé 5-15 prósentum lægra á Netinu. Eftir því
sem verslunum fjölgar og því oftar sem neytendur kaupa inn
á Netinu harðnar samkeppnin þó að tæplega verði um verð-
stríð að ræða fyrir þessi jól. Hallgrímur Kristinsson, fram-
kvæmdastjóri Opinnar miðlunar, sem stendur að Plaza, seg-
ir að nákvæmlega sömu lögmál gildi um verslun á Netinu og
venjulega búð. „Ef tvær verslanir eru í samkeppni á Lauga-
veginum þá reyna þær báðar að vera með hagstætt verð.
Vörunni er stillt út í búðarglugga og útstillingunni er breytt
aftur eftir hæfilega langan tíma. Við-
skipti á Netinu eru ekkert frá-
brugðin þessu. Það þarf að
uppfæra verslanirnar, end-
urskipuleggja búðar-
gluggana og endurnýja
vöruúrvalið. Eg fullyrði
alls ekki að það
Jón Scheving Thorsteinsson, framkvœmdastjóri þróunarsviðs hjá
Baugi. „Menn eru farnir að gera sér grein fyrir því að sömu lögmál
gilda á Netinu og í öðrum viðskiþtum. “
Jólaverslunin skiþtir ekki neinu höfuðmáli fyrir framtíð netverslana
hér á landi en annað er uþþi á teningnum erlendis. Þar liggja gríðar-
legar fjárfestingar í netverslunum og því skiþtir miklu að jólasalan
gangi vel.
stríð í verslun á Netinu en auðvitað vonast ég eftir sam-
keppni þar eins og annars staðar í þjóðfélaginu," segir hann.
Verslun.strik.is ætlar að taka virkan þátt í verslunarum-
ferðinni í desember og janúar með verslun í samstarfi við Is-
landssíma og Islandssíma GSM á Laugavegi. Þar verður
tölvutenging þar sem gestir geta kynnt sér hugbúnað og
þjónustu Verslunar.strik.is og geta þeir verslað í 42 verslun-
um undir sama þaki. Sveinn Eyland, verslunarstjóri hjá
Verslun.strik.is, býst þó ekki við neitt „brjálaðri verslun,
ekki fyrir þessi fyrstu jól. Það hefur alltaf verið ágæt verslun
hjá okkur frá því við byrjuðum en þessar verslanir eru að
móta sig og byggja up starfsemina. Svipað gildir um neyt-
endur, það tekur tíma fyrir þá að átta sig á hvernig þetta
virkar. Við opnum á Laugaveginum til að nálgast viðskipta-
vinina betur og vera sýnilegri í þjóðfélaginu," segir hann.
Þrátt fyrir þessar yfirlýsingar gæti hefðbundið verðstríð
á bókamarkaði tekið sig upp ef marka má stefnu Hag-
kaups.is nú fyrir jólin því að verslunin stefnir að því að vera
Jólasalan
„Erlendis hefur jólasalan haldiö netverslunum
uppi allt árið. Hjá mörgum af þessum fyrirtækj-
um hefur hún numið helmingnum af árssölunni
og hjá sumum hefur hún jafnvel verið meiri. Hjá
okkur er gert ráð fyrir að veltan í sölunni á Net-
inu fyrir jólin verði á við þrjá til fjóra meðal-
mánuði," segir Þór Curtis.
Þetta tekur tíma
„Það hefur alltaf verið ágæt verslun hjá okkur frá
því við byrjuðum en þessar verslanir eru að móta
sig og byggja up starfsemina. Svipað gildir um
neytendur, það tekur tíma fyrir þá að átta sig á
hvernig þetta virkar. Við opnum á Laugaveginum
til að nálgast viðskiptavinina betur og vera sýni-
legri í þjóðfélaginu,“ segir Sveinn Eyland.
61