Frjáls verslun - 01.10.2000, Síða 62
Verslun.strik.is rekur verslun á Laugavegi þarsem hægt eraðsetjast niðurvið tölvu ogkaupa vör-
ur í versluninni í gegnum Netið. Vörurnar eru síðan sendar heim í pósti. Þannig er auðvelt og
fljótlegt að kauþa jólagjajirnar á Netinu.
með lægsta verðið á bókum í ár eins og í fyrra. „Við ætlum
að elta allar verðlækkanir á bókum þannig að menn geta
alltaf verið vissir um að við bjóðum lægsta verðið,“ segir
Þór Curtis.
Steypan stendur Erlendis er gert
ráð fyrir að það skýrist eftir áramót-
in hvaða verslanir koma til með að
lifa og dafna og hvaða verslanir
leggja upp laupana og það fari eftir
því hvernig jólaverslunin gangi í ár.
En hvaða máli skiptir jólaverslunin
fyrir framtíð netverslana hér á landi?
Flestir eru sammála um að hún
skipti ekki miklu máli, tiltölulega
fáar netverslanir séu starfandi hér,
þær hafi öflugan bakgrunn og séu
ekkert síður hugsaðar sem fræðsla,
auglýsing og aukin þjónusta við viðskiptavininn en hrein og
klár verslunarstarfsemi sem þurfi að skila eiganda sínum
miklum hagnaði á skömmum tíma. Jón hefur ekki miklar
áhyggjur af hugsanlegum gjaldþrotum innlendra netversl-
- Þannig að þið ætlið að undirbjóða?
„Ef marka má samkeppni síðustu ára
þá munu menn stunda undirboð, ég
hef ekki trú á að það verði öðruvísi í
ár. Á síðasta ári eltum við lægsta verð-
ið á markaðnum og við gerum það
aftur í ár,“ svarar hann.
Ekkert frábrugðið
„Ef tvær verslanir eru í samkeppni á Laugaveginum þá reyna þær báðar að vera með hagstætt verð.
Vörunni er stillt út í búðarglugga og útstillingunni er breytt aftur eftir hæfilega langan tíma. Viðskipti á
Netinu eru ekkert frábrugðin þessu,“ segir Hallgrímur Kristinsson.
„Jólaplattinn í ár“
er frá Jómfrúnni
Platti með
7 úrvals
jólarétturn
Þú lirineir
- viá sendum
JMglAS W1
VEITINGAÞJÓNUSTA
PÖNTUNARíSÍMI 55 10 100
j
ana því að allt aðrar reglur gildi um
netverslanir hér en erlendis.
„Erlendis hafa menn verið ótrú-
lega djarfir í fjárfestingum og búið til
dýrar og fínar netverslanir en hér
hafa menn farið hægar og vandað sig
meira," segir hann.
En á sama tíma og menn búast við
sprengingu í netviðskiptum er verið
eða búið að byggja a.m.k. tvær versl-
anamiðstöðvar úr steypu, eina í Kópa-
vogi og aðra á Akureyri. Jón segir að
steypan standist fyllilega samkeppn-
ina og því sé ekkert glapræði að festa
hundruð milljóna í verslanamiðstöðv-
um úr steypu. „Nelverslunin hefur lítil
sem engin áhrif á steypuverslanirnar.
Það dregur kannski eitthvað úr vaxtar-
hraða þeirra en ekki meira. Það var
æsingur í kringum netverslunina fyrir
nokkrum misserum en nú er and-
rúmsloftið það sama og í kringum
venjuleg viðskipti. Menn eru farnir að
gera sér grein fyrir því að sömu lög-
mál gilda á Netinu og í öðrum við-
skiptum," segir Jón. S9
62