Frjáls verslun - 01.10.2000, Síða 65
VIÐTAL
Simenntun og hvatning Pharmaco flyt-
ur einnig inn margar aðrar vörur, til
dæmis lyf og fóður fyrir dýr, heilsuvörur
og náttúruvörur auk snyrtivara og segir
Guðbjörg að fyrir utan vaxtarmöguleika
fyrirtækisins í Búlgaríu, sem sé stærsti
þátturinn, felist þarna helsti vaxtarbrodd-
ur fyrirtækisins, sérstaklega í heilsuvöru-,
snyrtivöru-, hjúkrunarvöru- og tækni-
deild. „Það leynast meiri vaxtarbroddar
þarna en í lyijunum. Við vitum nokkurn
veginn hversu mikið lyijanotkunin eykst
næstu árin, það er eðlileg þróun.“
- Hvaða verkefhi eru fyrirsjáanleg á næst-
unni?
„Það er svo margt. Undanfarið höfum við
verið að skoða skipulagninguna í þeim
deildum fyrirtækisins sem eru að selja aðrar vörur en lyf. Við
viljum laga starfsemina að þörfum viðskiptavinanna hveiju
sinni. Við erum því að velta fyrir okkur að endurskipuleggja
starfsemina þannig að annars vegar verði um markaðsstarf að
ræða og hins vegar móttöku pantana. Þetta sama skipulag höf-
um við í lyijastarfseminni og það gengur mjög vel,“ segir hún.
I framtíðinni verður lögð aukin áhersla á símenntun, hvatn-
ingu og upplýsingaflæði innan Pharmaco. „Þetta þrennt mun-
um við leggja áherslu á næsta árið. Síðan skiptir miklu máli að
hlúa vel að því sem við erum með, standa okkur í samkeppn-
inni, verða samkeppnisfærari og gera stöðugt betur. Öll fyrir-
tæki byggjast á mannauðnum og það er einmitt það sem skipt-
ir t.d. svo miklu máli í Búlgariu. Pharmaco hefur ómetanlega
reynslu sem nýtist við uppbyggingu Balkanpharma, þar sem
við höfum lifað svipað ferli hér.“[H
tek og ákvarða lyfjaverð til sjúklinga. í öllum nágrannalöndun-
um reyna yfirvöld að þrýsta niður lyfjaverði hjá framleiðendum
og auka greiðsluþátttöku sjúklinga - heilbrigðiskerfið þarfnast
meira og meira Ijármagns þar sem ljöldi aldraðra eykst með
hverju ári og framfarir og aukin tækni í meðferð leiðir til meiri
kostnaðar. LjÆn standa aðeins undir broti af útgjöldum til heil-
brigðismála. Lyljaverð hér er sambærilegt við það sem gerist
hjá nágrannaþjóðunum en við erum á undan þeim og þær
horfa mjög hingað. Sérstaklega hafa Danir velt fyrir sér að taka
upp þetta frelsi í rekstri apóteka en þeir eru hættir við það i bili.
Þeir fylgjast þó grannt með því sem hér gerist. Þá stefna Norð-
menn á svipað frelsi frá næstu áramótum."
Kröfurnar hafa aukisl Guðbjörg bendir á að kröfur til lyfja-
framleiðenda og -heildsala hafi aukist gífurlega, bæði gæða-
kröfur og kröfur um skráningar á lyfjum.
,ýúlt hefur gjörbreyst og kostnaðurinn
hefúr vaxið. Allar þessar kröfur kosta
miklu meiri vinnu og fleira starfsfólk.
Sem dæmi um breytinguna má nefna að
ég vann ein í skráningardeild frá 1982-
’85. Fyrir 5 árum störfuðu 3 við skráning-
ar í Pharmaco og í dag eru þar 10
manns,“ segir hún.
Pharmaco skiptist í tvö svið: Mark-
aðsdeildir og heildsölu með innkaupum,
lagerhaldi og dreifingu. Markaðsdeild-
irnar skiptast niður eftir lyfjaframleið-
endum og hópum lyfjaframleiðenda.
Yegna samkeppninnar eru „samkeppnis-
lyf‘ ekki höfð innan sömu deildar. Hver
markaðsdeild vinnur mjög sjálfstætt við
að kynna sín lyf og eiga deildirnar í inn-
byrðis samkeppni en samnýta svo stoð-
deildir fyrirtækisins. „Hver deild sér um
sína markaðssetningu og gerir það sama
og hún myndi gera sem sjálfstætt fyrir-
tæki. Kosturinn við þetta fyrirkomulag er
að hafa kollega í nánd, fyrir nú utan þann
stuðning sem maður hefur af stoðdeild-
unum,“ segir hún.
65