Frjáls verslun - 01.10.2000, Side 72
INNHER JflVIÐSKlPTI
Hverjir eru inn
Frjáls verslun grípur hér niður í erindi Arna
Tómassonar, löggilts endurskodanda hjá Deloitte
& Touche, á haustrábstefnu Félags löggiltra end-
urskobenda sem haldin var á Hótel Loftleióum
/ /
10. nóvember sl. 1 erindi sínu bjó Arni til sex al-
menn og skemmtileg dæmi úr vióskiptalifinu par
sem spurningar vakna um innherja og innherja-
viðskipti. Erindið flutti hann undir liðnum Inn-
herjaviðskipti - siðferði - reglur - eftirlit.
Mynd: Geir Ólafsson
IIV. kafla laga nr. 13 frá árinu 1996 um verðbréfaviðskipti er að
finna skilgreiningu á trúnaðarupplýsingum og hvernig þær
skulu meðhöndlaðar. Eftirfarandi vekur einkum athygli:
• Lagaákvæðin gilda um viðskipti með verðbréf í kauphöll og á
tilboðsmarkaði sem hlotið hefur starfsleyfi hér á landi, en
einnig taka ákvæðin til viðskipta með verðbréf utan skipu-
legra verðbréfamarkaða.
• Aðila sem býr yfir trúnaðarupplýsingum er óheimilt:
• að nýta upplýsingarnar sér sjálfum eða öðrum tíl hagsbóta
• að láta þriðja aðila upplýsingarnar í té
• að ráðleggja öðrum á grundvelli upplýsinganna
• Þriðja aðila sem fær vitneskju um trúnaðarupplýsingar er
óheimilt að nýta þær sér eða öðrum tíl hagsbóta, enda hafi
hann vitað eða mátt vita hvers eðlis upplýsingarnar voru.
• Oheimilt er að taka þátt í, stuðla að eða hvetja tíl viðskipta með
verðbréf eða annarra aðgerða í því skyni að gefa ranga mynd
af umfangi viðskipta með tíltekin verðþréf eða hafa óeðlileg
eða óhæfileg áhrif á verðmyndun í verðbréfaviðskiptum.
Höfum þessi atriði vel í huga þegar farið verður yfir tiltekin
dæmi hér á eftír. Annað, sem vert er að hafa í huga, er hversu
opin og víðtæk ákvæðin eru. Ef lagaákvæðin eru túlkuð mjög
strangt er stór hlutí verðbréfaviðskipta hér á landi ólöglegur, en
ef ákvæðin eru túlkuð rúmt eru flest viðskiptí og athafnir í verð-
bréfaviðskiptum hér á landi lögleg.
Nánar um innherja Greint er á milli fruminnhetja og annarra
innherja. Til fruminnherja teljast t.d. vegna aðgangs þeirra að
upplýsingum útgefenda verðbréfa:
• stjórnarmenn
• framkvæmdastjórar
• lykilstarfsmenn
• endurskoðendur
• lögmenn
• samstarfsaðilar
• ráðgjafar
• tengiliðir í fjármálafyrirtækjum
• eftirlitsaðilar
• lögaðilinn sjálfur
Aðrir innherjar eru t.d. makar, sambýlingar, börn, vinir og
ættingjar fruminnherja. Einnig hver sá sem kemst yfir trún-
aðarupplýsingar og veit eða mátti vita að um trúnaðarupplýs-
ingar var að ræða. Dæmi prentarar, starfsmenn auglýsinga-
stofa, kynningaraðilar o.fl.
Reglur um innherja Lítum á nokkur önnur atriði sem snúa að
útgefendum verðbréfa á Verðbréfaþingi og varða innherja:
• Skráð félag skal halda lista um innherja og uppfæra hann og
senda Verðbréfaþingi eigi sjaldnar en á sex mánaða frestí.
• Innheijar skulu tilkynna viðskiptí sín með bréf félagsins og
félagið skal jafnframt tílkynna um þessi viðskipti
Vandinn er að greina hvort og hvenær viðkomandi vissu að
um trúnaðarupplýsingar var að ræða. Hvenær eru menn í
spákaupmennsku, hvenær eru menn að leggja saman tvo og
tvo, hvenær eru menn að láta sögusagnir og slúður hafa áhrif
á viðskipti, hvenær eru menn í aðstöðu til að meta heildará-
hrif upplýsinganna?
Það er ekki alltaf auðvelt að greina þarna á milli, tökum
nokkur dæmi og veltum fyrir okkur livort um innherjavið-
skipti er að ræða eða ekki. Byrjum á einhverju þægilegu sem
varðar þann hóp sem stendur að þessari ráðstefnu:
Dæmi 1 - endurskoðandi félags
Endurskoðandi félags er að vinna að gerð ársuppgjörs, hann sér
að útkoman er mun betri en ráð hafði verið fyrir gert, grípur sím-
ann kaupir bréf í félaginu, viku síðar eru upplýsingar birtar, bréf-
in hækka og endurskoðandinn selur með góðum hagnaði
nokkrum mánuðum síðar.
Hvað er dapurt í þessu dæmi?:
Svar: Allt. Endurskoðandi félags telst tíl innherja, meira að segja
fruminnheija. Hann hafði aðgang að upplýsingum starfs og
stöðu sinnar vegna. Hann vissi að upplýsingarnar höfðu ekki
verið gerðar opinberar. Hann gat sett upplýsingarnar í samhengi
við aðrar upplýsingar. Endurskoðandinn braut trúnaðarskyldur
sínar, reglur Verðbréfaþings, lög um hlutafélög, lög um löggilta
endurskoðendur o.fl.
72