Frjáls verslun - 01.10.2000, Síða 82
Guðberg K. Jónsson, framkvœmdastjóri SþortScoþe Hann er með sálfræðimenntun frá Háskóla Islands og Parísarháskóla og er í doktorsnámi
við Abeerden háskóla. Hann vinnur að atferlisgreiningarforritinu SþortTheme en það verður markaðssett í Evróþu á nœsta ári.
FV-Mynd: Geir Olafsson.
Gefur yfirburði
Mikið vatn hefur runnið til sjáv-
ar síðan Guðberg K. Jónsson,
framkvæmdastjóri Sport-
Scope, byrjaði fyrst að vinna við notk-
un hugbúnaðarins Theme, sem
Magnús S. Magnússon, forstöðumað-
ur Rannsóknarstofu um mannlegt at-
ferli og áður prófessor við Parísarhá-
skóla, hefur þróað. Þessi hugbúnaður
hefúr lengi verið í notkun við rann-
sóknir við erlenda háskóla, en gerð
útgáfu sem hentar til alþjóðlegrar
markaðssetningar hefúr verið í undir-
búningi um nokkurt skeið og er nú
væntanleg innan nokkurra mánaða.
Settar verða á markaðinn tvær útgáf-
ur: Önnur er akademísk útgáfa af Theme hugbúnaðinum sem
verður seld vísindamönnum um allan heim. Hin útgáfan er þró-
uð fyrir íþróttarannsóknir og nefnist SportTheme. Unnið er að
aðlögun hugbúnaðarins að þörfum knattspyrnunnar og mun
markaðssetning heljast í Bretlandi á þessu ári. En þar verður
ekki látið staðar numið því að við tekur vinna við að aðlaga hug-
búnaðinn að þörfum körfubolta og er stefnt að markaðssetn-
ingu í Bandaríkjunum. Vonast er eftir
mjög jákvæðum viðbrögðum því að
mörg félags- og landslið hafa lagt
mikla vinnu og fjármuni í íþróttarann-
sóknir um langt skeið en Theme hug-
búnaðurinn er mikið framfaraskref í
slíkum rannsóknum og hjálpar þeim
að greina atferli leikmanna sinna.
„Þjálfarar geta notað hugbúnaðinn
til að finna veikustu hlekkina hjá sínu
eigin liði og leiðrétta ýmsa bresti. Eins
geta þeir nýtt hugbúnaðinn við kaup á
leikmönnum; til að rannsaka þá leik-
menn sem koma til greina og athuga
hvort þeir passa inn í þá liðsheild og
liðssamhæfingu sem þjálfarinn leggur
áherslu á. Þegar leikmenn eru keyptir fyrir milljarða króna
skiptir gífurlegu máli að kaupin takist vel. Eg er sannfærður
um að hér er komið tól sem getur fært þeim þá yfirburði sem
þeir þurfa til að standa öðrum framar. Tólið er að mati okkar
og samstarfsaðila okkar í Bretlandi, sem er leiðandi aðili í
knattspyrnurannsóknum, yfirburðatól við knattspyrnurann-
sóknir," segir Guðberg.
/
Islenskt fyrirtæki, SportScope ehf,
markaðssetur á nœsta ári hugbúnað
sem greinir atferlismynstur knatt-
spyrnumanna. Ari síðar er stefnt að
svipaðri útgáfu afhugbúnaðinum, sér-
sniðnum fyrir körfubolta, á Banda-
ríkjamarkað. Þá fyrirhugar móðurfyrir-
tæki SportScope þróun á svipuðum
hugbúnaði fyrir fjármálamarkaðinn.
Eftir Guðrúnu Helgu Sigurðardóttur Mynd: Geir Ólafsson
82