Frjáls verslun - 01.10.2000, Side 88
FYRIRTÆKIN fl NETINll
Guöný Káradóttir, forstöðumaður hjá Gagarín ehf, heldur
mikið upp á www.redherring.com en par má finna umjjöll-
un um tœkniumhverfið og áhœttufjármögnun innan há-
tœkni og líftækni.
Guðný Káradóttir hefur nýlega tekið við starfi
forstöðumanns markaðs- og sölumála hjá
Gagarín ehf., Grandagarði 8. Vegna starfsins
segist Guðný gera mikið af því að skoða síður síma-
fyrirtækja erlendis og fýrirtækja sem eru að fram-
leiða lausnir íyrir farsíma. „Eg er að fylgjast með
þróuninni í þráðlausum samskiptum en Gagarín er
einmitt að sækja inn á það svið með afþreyingar-
efni, leiki o.fl. Þá eru fréttasíðurnar hluti af daglegu
lífi og símaskráin hjá Landssímanum er líka algjör
nauðsyn," segir Guðný.
WWW.redherring.com Þessi vefur er í miklu uppá-
haldi hjá mér og hef ég lengi fýlgst með honum.
Þarna er að finna umljöllun um tækniumhverfið og
áhættufjármögnun fyrirtækja innan hátækni og líf-
tækni svo eitthvað sé nefnt. Vefurinn hefur að
geyma ágætar greinar um þróun eða framvindu á
hinum ýmsu sviðum hátækni sem og upplýsingar
um einstök fyrirtæki, t.d. þau sem stunda rafræn
viðskipti og starfa á sviði þráðlausra samskipta.
Auðvelt er að leita á síðunni og efnið er aðgengilegt.
WWW.C0mputerW0rld.dk Vegna tengsla minna við
Danmörku legg ég mig fram um að fylgjast með
fréttum þaðan og þessi vefur er eitt dæmi um
danskan vef sem ég skoða. Hér er það upplýsinga-
tæknin almennt og fjarskipti sem ég skoða mest. Eg
er einnig áskrifandi að fréttapunktum þeirra.
WWW.nokia.com Inni á Nokia síðunni, líkt og hjá
fleiri fjarskiptafyrirtækjum, má finna ágæta saman-
tekt um 3G, eða þriðju kynslóð farsíma, en Gagarín
er að þróa lausnir fýrir þá. SD
www.nonniogmanni.is
Athyglisverð, vel hönnuð,
aðlaðandi og einföld upp-
lýsingasíða, sem auðveld
er í notkun og gefur góða
mynd af starfsemi auglýs-
ingastofunnar. Forsíðan er
snyrtileg með fáum en
skýrum valmöguleikum.
Þegar bendillinn fer yfir
valmöguleikana birtast
helstu upplýsingar í
stikkorðum og má einna helst gagnrýna það því að stundum þarf
meira kjöt á beinin. Sýnishornin eru fimm af hverri tegund og gefur
framsetningin skemmtilega mynd af starfseminni. Þessi síða fer bil
beggja í upplýsinga- og skemmtigildi. Með þeim betri á Netinu. [H
verslun.vitamín.is Graf-
ískt séð ólystugur og óaðl-
aðandi vefur með pottþétta
verslunarhugmynd sem þvi
miður er ekki nógu vel út-
færð. A forsíðunni eru upp-
lýsingar um verslunina
ásamt tilboðum, valhnöpp-
um og leitarvél. Frábært að
geta sent inn fýrirspurnir
um einkaþjálfun og fæðu-
bótarefni en því miður get-
ur tekið langan tima að fá svar. Jákvætt að sendandinn er látinn vita þeg-
ar svarið kemur. Vöruupplýsingar miðast alltof mikið við að viðskipta-
vinurinn hafi þekkingu á vörunni og viti hvað hann vilji. Undir hnappn-
um „framleiðendur" mættu vera upplýsingar um framleiðendurna. 33
www.bahkavor.is At-
hyglisverður vefur sem
eingöngu höfðar til er-
lendra viðskiptamanna og
á að gera það. Forsíðan er
mynd af hnetti, þar sem
merktar hafa verið inn
starfsstöðvar fyrirtækisins,
og þaðan er aðgengilegt að
finna allar nauðsynlegar
upplýsingar um fýrirtækið,
sögu þess, markmið, upp-
byggingu, fjármálastöðu, stjórnendur, umhverfisstefnu o.s.frv. Vefur-
inn er vel upp byggður, textinn er stuttur og skýr og nær því markmiði
vel að svala upplýsingaþörfinni í fýrstu atrennu. 53
'fe Lélegur
★ ★ Sæmilegur
★ ★★ Góður
★ ★★★ Frábær
Miðað er við framsetningu og útlit, upplýsinga- og fræðslugildi, myndefni og þjónustu.
Guðrún Helga Sigurðardóttir.
ghs@talnakonnun.is
ii á 2 ■& ... .
3 ¥
s
★ ★