Frjáls verslun - 01.10.2000, Síða 89
FYRIRTÆKIN Á NETINU
Metnaðarfullt
starf á Netinu
Eftir Gudrúnu Helgu Sigurðardóttur.
W
Islensk erfðagreining, IE, hefiir metnaðarfulla starfsemi á
slóðinni www.decode.is og www.decode.com. Þó að fyrirtæk-
ið sé ungt, aðeins fjögurra ára gamalt er vefur þess óvenju
langt kominn á þróunarbrautinni. Hann er fróðlegur og aðlað-
andi, litríkur og smekklegur, vel skipulagður með nauðsynleg-
um upplýsingum um fyrirtækið og starfsemi þess. Fræðslu og
kynningu um starfsemi fyrirtækisins er komið á framfæri á ein-
faldan og skýran hátt.
Forsíðan, eldrauð og smekklega hönnuð. Þessi rnynd í dag og
kannski verður ötinur á morgun.
Rautf sem eldurinn Forsíðan er vel hönnuð og falleg, eldrauð
með mynd, sem virðist vera skipt um reglulega, og einkunnar-
orð fyrirtækisins og markmið fara ekki framhjá neinum, þau
birtast hvítum stöfum á rauðum grunni. Forsíðan er byggð upp
á hefðbundinn hátt með valhnöppum, leit og mynd. Valhnapp-
ar eru fáir en skýrir; fyrirtækið, ijárfestar, fréttir, verkefni, ítar-
efhi og loks er hægt að fá enska útgáfu á www.decode.com.
Þegar smellt er á valhnappa birtist undirefnið og það greinist i
undirsíður á skýran og þægilegan hátt. Þannig er til dæmis
fjallað um lykilstjórnendur tyrirtækisins undir valhnappnum
„fyrirtækið" og í langflestum tilfellum er birt mynd með um-
ijöllun um viðkomandi.
Textar eru stuttir, skýrir og hnitmiðaðir án þess að vera stutt-
aralegir og þeir koma á framfæri nauðsynlegri fræðslu um starf-
semi fyrirtækisins, hvort sem það er spurning um rannsóknar-
verkefni, gagnagrunninn, sjúkdóma eða annað það ítarefhi sem
er í eigu fyrirtækisins eða starfsmanna þess. Þetta er gert án
þess að það komi niður á fræðslugildinu, þvert á móti er þetta
dæmi um miðlun efnis, sem mörgum gæti þótt illskiljanlegt og
leiðinlegt, á auðlesinn, aðlaðandi og skemmtilegan hátt.
í gegnum siu Vefur IE gefur ýmsa möguleika fyrir þá sem
vilja fylgjast með starfsemi fyrirtækisins, hvort sem það eru
Fréttatilkynningar eru birtar á vefnum. Einnig er hœgt að
gerast áskrifandi að þeim.
íjárfestar, blaðamenn eða áhugamenn um starfsemi fýrirtæk-
isins. Notandinn fær ágætis þjónustu og í sumum tilfellum er
hann leiddur áfram, l.d. ef hann vill' fylgjast með hluthafa-
fundi á Netinu. Þannig er auðvelt að gerast áskrifandi og fá
sendar fréttatilkynningar um starfsemi fyrirtækisins. Einnig
er hægt að lesa og leita í greinasafni sérfræðinga Islenskrar
erfðagreiningar. Hægt er fylgjast með lausum störfum og
sækja um starf hjá Islenskri erfðagreiningu og þannig mætti
lengi telja.
Einn er þó galli á gjöf Njarðar og hann er sá að ekki er
hægt að nálgast upplýsingar um einstaka starfsmenn fyrir-
tækisins. Aðeins er ljallað um lykilstarfsmenn og því er ekki
hægt að forvitnast um starfsmenn í deildum fyrirtækisins eða
nálgast netföng þessara starfsmanna á Netinu. Þannig er að-
gengi miðstýrt og allur póstur látinn fara í gegnum síu hjá
íýrirtækinu.S!]
Undir valhnappnum lykilstarfsmenn er hægt að lesa stutt
ágrip um helstu stjórnendur fyrirtœkisins. Hér er til dœmis
fjallað um Hannes Smárason aðstoðarforstjóra. Ekki eru
gefnar upplýsingar um aðra starfsmenn.
89