Frjáls verslun - 01.10.2000, Side 94
að er unaðslegt að láta líða úr
sér í góðum stól; leyfa vöðvun-
um, sem oft hafa spennst upp í
stað þess að hreyfast eðlilega, að
jafna sig eftir átök dagsins sem oft á
tíðum hafa verið í formi baráttu við
tölvu, síma og fundi.
Þegar stóllinn þar að auki býr yfir
þeim kostum að ganga í starf nudd-
arans er fátt sem kemur í veg fyrir
góða slökun og þægindi. „Ég get
sagt þér dæmi um mann sem eytt hefur milljónum í nudd á
undanförnum áratugum en telur sig nú geta sleppt því að
mestu með því einu að setjast í stólinn sinn kvölds og
niorgna," segir Guðmundur Baldurs-
son hjá Lystadún-Snæland, sem selur
Einkanuddarann, en það er hæginda-
stóll sem nuddar þann sem í honum
situr um leið og viðkomandi slakar á.
„Þetta kemur ekki í stað nuddarans,
ég ætla ekki að reyna að halda því
fram, en það er ekki vafi á því að þetta
hjálpar verulega til.“ Stóllinn tekur
hressilega á líkamanum og duga 10-
15 mínútur í einu. Þar sem nuddið er
fremur ákveðið getur verið að fólk þurfi að venjast því í nokk-
ur skipti, að sögn Guðmundar. Aðferðin sem nuddið byggist
á, er Shiatsu nudd sem er japanskt að uppruna og er eins-
Einkanuddarinn heitir hann, stóllinn sem
nuddarþann sem í honum situr og slakar
á. Það er Lystadún-Snæland sem selur
þennan stól sem eflaust á eftir ab láta til
sín taka á mörgum vinnustööum.
Eíitir Vigdísi Stefánsdóttur Myndir: Geir Ólafsson
Stóllinn tekur hressilega á líkamanum og duga 10-15 mínútur í einu. Þar sem nuddið er fremur
ákveðið getur verið að fólk þurfi að venjast því í nokkur skipti, að sögn Guðmundar. Það er
unaðslegt að láta þreytuna líða úr sér í góðum stól.
94