Frjáls verslun - 01.10.2000, Síða 97
Gísli Þór Gíslason tók í sumar við starfi framkvæmdastjóra hjá Streymi.
FV-mynd: Geir Ólafsson
Gísli Þór Gíslason, Streymi
Eftir ísak Öm Sigurðsson
Streymi hefur sérhæft sig
sem margmiðlunar- og
vefhönnunarfyrirtæki í
háhraðaumhverfi en rekur
einnig Vefskóla Streymis þar
sem mikil áhersla er lögð á að
nýjasta tækni sé notuð hveiju
sinni. „Allir kennarar skólans
eru starfsmenn hjá Streymi,"
segir Gísli Þór Gíslason, tram-
kvæmdastjóri Streymis, sem
er í samstarfi við tvö erlend fyr-
irtæki: bandarísku auglýsinga-
stofuna Romann Group, sem
veltir um 100 milljónum dollara
á ári, og þróunarhóp hjá
Softímage sem framleiðir hug-
búnað fyrir kvikmyndaiðnað-
inn. I samvinnu við Romann
Group hyggst Streymi starfa
að frekari breiðbandshönnun
og fyrir vikið verður fyrirtæk-
inu auðveldara að komast inn á
Bandaríkjamarkað. „Við þurf-
um ekki að eyða miklu fé tíl
kynningar á okkur og lausnum
okkar á þessum stóra markaði
og það er mikill kostur".
I samstarfssamningi Rom-
ann Group og Streymis felst að
Streymi mun verða aðalþjón-
ustuaðili háhraðalausna fyrir
fyrirtækið en saman munu þau
standa að stofhun fyrirtækis
sem bera mun nafnið Romann
Architecture og verður það
jafiit í eigu beggja aðila. Einn
starfsmaður Streymis er stað-
settur í Bandaríkjunum en
vinnan mun að mestu leyti eiga
sér stað á Islandi.
Starfsmenn Streymis eru
nú 17 talsins og hefur þeim
Ijölgað um þriðjung á
nokkrum mánuðum. Fyrir-
tækinu hefur gengið vel að fá
til sín starfsfólk og segir Gísli
það hafafundið mjögjákvæðan
meðbyr. Samsetning starf-
mannahópsins er góð og
starfsumhverfið íjölbreytt.
„Starfsmenn okkar þekkja svið
hver annars og geta auðveld-
lega gengið inn í mismunandi
störf ef eitthvað kemur upp á.
Við munum væntanlega bæta
við starfsmönnum sem sinnt
geta gagnagrunnsvinnslu þvi
æ fleiri heimasíður eru tengd-
ar í kring um gagnagrunn og
þörf er á stækkun á því sviði.“
Streymi sér m.a. um vef
Heklu hf. þar sem mikil þróun
á sér stað en er einnig með
ýmis önnur verkefni undir
höndum innanlands.
„Við ætium okkur að halda
háhraðadeildinni og innan-
landsdeildinni aðskildum,
sljórnunarlega séð, þó svo að
þetta sé sama fyrirtækið. Við
teljum það hagstætt og auð-
velda reksturinn."
„Eg erkvæntur Hrefnu Ing-
ólfsdóttur, forstöðumanni upp-
lýsingaveitna Símans, og við
eigum eina dóttur, Margréti,
sem er fimm ára,“ segir Gísli.
„Eg ólst upp í Smáíbúðahverf-
inu, í Langagerðinu, þar sem
ég bjó fram yfir tvítugt Eg var
ekkert séretaklega liðtækur í
íþróttum en stundaði þær þó,
svona til að vera með. Eg var
mikið á ferðinni í hverfinu á
hjólinu mínu og kynntíst þar
hveijum krók og kima.“
Gísli lærði rafvirkjun og raf-
iðnaðarfræði og vann sem út-
sendingastjóri á Stöð 2 um
tíma en fór svo í Tækniskólann
þar sem hann lauk prófi í iðn-
aðartæknifræði 1992. Eftir út-
skriftina vann hann við mark-
aðs- og sölumál hjá Vald. Poul-
sen en tók svo við starfi frarn-
kvæmdastjóra Landssam-
bands íslenskra rafverktaka og
var þar tíl 1997. Þar á eftír var
hann rekstrarstjóri Blindrafé-
lagsins um tveggja ára skeið
og tók svo við starfi fram-
kvæmdastjóra Streymis þann
1. september síðastiiðinn.
„Ahugamálin? Jú, ég á minn
Jjallabíl, segir Gísli og hlær við.
Við höfum mjög gaman af því
að ferðast á honum um landið,
sérstaklega á sumrin og á
haustin, en vetrarferðirnar
henta ekki svona „slyddu-
jeppa". Annars hef ég mjög
gaman aí öllum ferðalögum og
því að skoða nýja staði, hvort
sem er hér á landi eða erlend-
is. Ég hef líka alltaf haft bíla-
dellu, en þó ekki þannig að ég
sé með höfuðið undir vélarhlíf-
inni, heldur vil ég sitja undir
stýri. Það hefúr einhvern veg-
inn verið svo að ýmiss konar
félagsstörf hafa alltaf tekið
mikinn tíma, svo það má víst
segja að ég hafi gaman af þeim
og tekið þátt í þeim á ólíkum
vettvangi." S!1
97