Helgarpósturinn - 02.02.1995, Qupperneq 6
6
MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR
FfMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1995
asta
vikimnar
Landaverk-
smiöju lokað
Ógeðfelldasta frétt vikunnar
birtist í flestum fjölmiðlum lands-
ins og var ein af stærstu fréttum
síðustu helgar. Frétt þessi sagði frá
því að fíkniefnilögreglan hefði náð
þeim merka áfanga að loka stærstu
bruggverksmiðju sem fundist hefur
til þessa hérlendis. Nú er ekki ætl-
unin að kasta rýrð á störf lögregl-
unnar en þessi mikla harka gagn-
vart landabruggurum er sérdeilis
ógeðfelld og fellur í raun og veru í
flokk með einstrengingslegum við-
horfum innflutningsyfirvalda í garð
Hagkaups og Bónuss þegar þessar
verslanir hafa gert tilraun til þess að
flytja ódýrar, unnar kjötvörur til
landsins. Þetta kann ef til vill að
hljóma undarlega í eyrum ein-
hverra en þeim hinum sömu skal
bent á að landabruggarar selja lítr-
ann af landa á 1500 krónur sem er
um það bil helmingi ódýrara en
sambærilegt magn af vodka kostar í
áfengisverslunum ríkisins. Af þessu
sést að framlag landabruggaranna
skiptir verulega miklu máli íyrir þá
sem hafa minni auraráð, eins og til
dærnis menntaskólanema. Nú hef-
ur það verið ein megin röksemd
harðrar stefnu gegn landasölu-
mönnunt að viðskiptavinir þeirra
eru unglingar. Þetta er auðvitað
tóm steypa því ef unglingar ætla sér
á annað borð að ná sér i brennivín
af einhverri sort gera þeir það,
hvort sem þeir kaupa landa eða fá
einhvern sem hefur aldur til að fara
í Ríkið og versla íyrir sig þar. En
eins og fyrr segir er það bara miklu
dýrara. Landabruggarar hafa þann-
ig lagt sinn skerf til kjarabaráttu
samfélagsins og má því í raun kalla
þá litla Jóhannesa í Bónus, en eins
og hann, í upphafi ferils síns, beita
þeir ýmsum brögðum í samkeppn-
inni við sér stærri aðila. Landa-
bruggararnir eru reyndar nokkurs
konar nútíma Hróa hettir; með at-
hæfi sínu taka þeir spón úr aski
hinnar risastóru einokunarverslun-
ar ríkisins á áfengi og láta þá sem
minna mega sín njóta.
Enn er deilt um heimsmeistarakeppnina í handknattleik sem halda á hér á landi eftir
tæpa hundrað daga. í gær var sérstök bókunarmiðstöð ferðaskrifstofanna lögð niður
og viðbrögðin létu ekki á sér standa, afbókanir fóru strax að berast og skyndilega eru
yfir tvö hundruð hótelherbergi laus yfir keppnisdagana. Nú stefnir í að mun færri komi
til landsins vegna keppninnar en í fyrstu var gert ráð fyrir
Afbókanir streyma inn
að öllu óbreyttu verða erlendir áhorfendur varla fíeiri en tvö þúsund. ^
Nú eru tæpir hundrað dagar þar
til stærsta íþróttamót fslandssög-
unnar verður sett við hátíðlega at-
höfn í breyttri Laugardalshöll. Mik-
ið hefur verið rætt og ritað um
keppnina og framkvæmd hennar
og enn sér ekki fyrir endann á þeim
umræðum.
Ferðaskrifstofur hafa að undan-
förnu kvartað yfir slælegu og tflvilj-
anakenndu upplýsingastreymi
varðandi keppnina. Segja þeir að
miðasöluaðilar svo og handknatt-
leiksforystan hafi ekki sinnt sínu
hlutverki sem skyldi og erfitt hafi
verið að nálgast nauðsynlegar upp-
lýsingar varðandi verð á einstaka
leiki keppninnar. Þessu mótmælir
handknattleiksforystan harðlega og
segir að ef lögmál markaðarins
heíðu fengið að ráða, eins og þeir
hefðu alltaf viljað, væri staðan önn-
ur nú. Nú stefnir í að áhorfendur
erlendis frá verði mun færri en
upphaflega var gert ráð fyrir, líklega
ekki mikið fleiri en tvö þúsund.
Gunnar Snælundur Ingimars-
son, framkvæmdastjóri Islandia
Travel UU í Kaupmannahöfn,
sagði á fundi með blaðamönnum í
Kaupmannahöfn á fimmtudaginn
að mikið hefði skort á að reynt fólk
í ferðaþjónustu hefði komið að
málum varðandi undirbúninginn.
„Flugbókanir í Danmörku vegna
heimsmeistarakeppninnar í hand-
bolta á íslandi, HM ‘95, eru mjög
takmarkaðar hjá Flugleiðum og er
umræða og athygli í Danmörku um
mótið lítil sem engin. Aðeins hafa
21 aðili bókað ferð til íslands og að
auki er ein lyrirspurn í gangi.“
Hann segir að erfitt sé að fá raun-
hæfar upplýsingar frá mótshöldur-
um á íslandi, sem hægt sé að byggja
á.
Aðilar í ferðaþjónustu hafi marg-
ir hverjir beðið í rúmt ár eftir skýr-
um upplýsingum um framkvæmd
keppninnar, miðaverð og fleira, en
þeir bíði flestir enn. Lítil sem engin
svör hafi komið að heiman og
skipulagningin virðist vera hálfgert
klúður frá upphafi til enda.
Gunnar segir að málið sé alvar-
legt. Að hans mati sé jafnvel hætta á
að trúverðugleiki íslands sem
ábyggilegs ferðamannalands geti
beðið skaða af. Hann telur að HSÍ
virðist ekki kæra sig um aðstoð
reyndra aðila í ferðaþjónustu og að
það sé ekki gott fyrir keppnina
sjálfa.
Frétt þessa efnis birtist í Morg-
unblaðinu á föstudaginn og vakti
mikla athygli.
Engar fyrírspurnir
boríst
Hákon Gunnarsson fram-
kvæmdastjóri HM ‘95 segist vera
mjög undrandi á þessum ummæl-
um Gunnars. „Við höfum farið í
gegnum allt skjalasafnið okkar og
komið hefur I ljós að þar er ekkert
að finna um Islandia Travel," segir
hann. „Ekkert okkar hefur heldur
nokkru sinni heyrt á þennan
Gunnar Snælund minnst fyrr en
þessi ummæli hans birtust."
Hákon segir að HSÍ hafi haft
samband við Gunnar og hann hafi
dregið allt til baka munnlega. „-
Þetta er einfaldlega alveg út í biáinn
hjá honum,“ segir hann. „Ég hef
ekki orðið var við kvartanir yfir
upplýsingaskorti og að segja að við
höfum ekki ráðfært okkur við þar
til bæra menn í ferðaþjónustunni
er bara hreint rugl.“
Þegar MORGUNPÓSTURINN
hafði samband við Gunnar sagðist
hann hafa fengið rosaleg viðbrögð
vegna þessara ummæla. „Það fór
allt á annan endann og þess vegna
ætla ég aðeins að haida að mér
höndum í þessu máli. Ég stend við
það sem ég sagði og finnst ekki
nógu gott að farið hafi verið að
huga að upplýsingaþættinum þegar
að innan við ár var tii stefnu. Vissu-
lega eru ýmsir hlutir sem erfitt er að
fastsetja en það er ekki nógu gott að
flestar staðreyndir séu fljótandi og
sérstaklega er það ruglingslegt
gagnvart okkar viðskiptamönn-
um,“ segir Gunnar.
Dreifileiðir
ekki notaðar
Gunnar er ekki sá eini sem er
ósáttur við hvernig málin hafajtró-
ast. Björn Ingólfsson hjá Urval
Útsýn segir að það megi alveg koma
fram að HSl hafi ekki nýtt fólk með
kunnáttu á ferðamálum nægilega
og að sínu mati sé það alltaf betur
og betur að koma í ljós. „Þær dreifi-
leiðir sem til eru í landinu hafa ekki
verið notaðar," segir hann. „Það er
ekki búið að selja mikið og ekki
hefur mikið verið bókað þannig að
það er mín skoðun að þeir hafi
skotið fyrir neðan beltisstað í þessu
máli.“
Annar aðili innan ferðaskrif-
stofugeirans, sem ekki vildi láta
nafns síns getið, sagði að sér þætti
Kristín Sif Sigurðardóttir segir að
bókunarmiðstöðin hafi verið sett
á laggirnar til að koma í veg fyrir
að stóru skrifstofurnar blokker-
uðu allt hótelrými á þessum tíma.
fyrirkomulagið á þessu hafa verið
hættulegt. Einn aðili hafi séð um
miðasöluþáttinn og annar um bók-
anir á hótelin og gistiplássið. „Þetta
skapar ósamstöðu og vandræði og
mér hefði fundist betra að hafa
þessi mál öll á könnu fram-
kvæmdanefndarinnar," segir hann.
Sami aðili segir að það hafi ekki
bætt málstað ferðaskrifstofanna að
þær hafi stofnað með sér sérstaka
bókunarmiðstöð til að stjórna
pöntunum á gistingu. Síðan var
sumartíminn færður fram og nú er
„off-season“ tími seldur á dýrasta
verði.“
Umdeild bókunar-
miðstöð
Mikill styrr hefur staðið um svo-
kallaða bókunarmiðstöð síðan hún
var sett á laggirnar fyrir nokkrum
mánuðum. Kristín Sif Sigurðar-
dóttir, starfsmaður innanlands-
deildar Samvinnuferða- Landsýnar,
segir að miðstöðin hafi verið sett á
laggirnar til að koma í veg íyrir að
stóru skrifstofurnar blokkeruðu allt
hótelrými á þessum tíma. Þetta hafi
einfaldlega verið gert til að hafa allt
varðandi bókanir sem farsælast.
Handknattleiksforystan brást á
sínum tíma hart við þegar tilkynnt
var um bókunarmiðstöðina og
sagði að þetta væri tilraun til að
einoka markaðinn. Hákon Gunn-
arsson segir að þessi miðstöð hafi
allan tímann verið óþörf og að
betra hefði verið að láta markaðinn
ráða.
Frá og með deginum í gær, 1.
febrúar, var þessi miðstöð síðan
lögð niður og nú er það hvers hót-
Ólöglegar sjálfskuldarábyrgðir Kópavogsbæjar á skuldabréfum vegna bygg-
ingaframkvæmda í landi bæjarins
Lífeyrissjóður starfsmanna bæjar-
ins umfangsmikill kaupandi
Á fundi bæjarráðs Kópavogs í
dag verður gert grein fyrir því
hversu margar sjálfskuldarábyrgðir
Kópavogsbær hefur gengist undir
vegna skuldabréfa sem hafa verið
gefin út í tengslum við bygginga-
framkvæmdir í landi bæjarins.
I síðustu viku var úrskurður fé-
lagsmálaráðuneytisins um lögmæti
þessara sjálfskuldarábyrgða gerður
opinber en fulltrúar ráðuneytisins
komust að þeirri niðurstöðu að
þær væru skýlaust brot á sveitar-
stjórnarlögunum. I framhaldi af
úrskurði félagsmálaráðuneytisins
lögðu minnihlutamenn í bæjar-
stjórninni, þeir Valþór Hlöðvers-
son, Alþýðubandalagi og Kristján
Guðmundsson Alþýðuflokki,
fram fyrirspurn í bæjarráði um hve
margar sjálfskuldarábyrgðir Kópa-
vogsbær hefði gengist undir síðast-
liðin fjögur ár, en þetta fyrirkomu-
lag var tekið upp í tíð núverandi
meirihluta. Einnig óskuðu þeir eftir
upplýsingum um hversu mörg
skuldabréf Lífeyrissjóð-
ur starfsmanna Kópa-
vogsbæjar hefði keypt
þar sem Kópavogsbær
væri í sjálfskuldar-
ábyrgð. Heimildarmenn
MORGUNPÓSTSINS,
sem nákunnugir eru I
Kópavogi, telja að Líf-
eyrissjóðurinn hafi
keypt þessi skuldabréf
fyrir hátt á 100 milljónir
króna. -jk
Hákon Gunnarsson. „Ég hef ekki
orðið var við kvartanir yfir upplýs-
ingaskorti og að segja að við höf-
um ekki ráðfært okkur við þar til
bæra menn í ferðaþjónustunni er
bara hreint rugl.“
els fýrir sig að taka við pöntunum
og fyrirspurnum. Strax í gær, þegar
að greiða þurfti staðfestingargjald,
tóku afbókanir að streyma inn og
segir heimildarmaður blaðsins að I
gær hafi skyndilega losnað um tvö
hundruð hótelherbergi í Reykjavík
yfir sjálfan keppnistímann. Þetta
segir Hákon sanna að miðstöðin
hafi ekki verið nauðsynleg og von-
ast til að nú, þegar að markaðslög-
málin um framboð og eftirspurn fá
að ráða, muni hlutirnir breytast til
batnaðar.
Fáir hafa efni á að
vera alla dagana
Kristín Sif segir að seint hafi
gengið að fá upplýsingar um fyrir-
komulag og miðaverð á keppnina.
Hún segir að það sé ekki að öllu
leyti Ratvís að kenna, HM-nefndin
og Alþjóða handknattleikssam-
bandið eigi sína sök einnig í því
máli. „Það eru fáir sem hafa efni á
því að vera á hóteli alla sextán dag-
ana,“ segir hún. „Þess vegna vill
fólk fá tækifæri til að kaupa aðeins
átta-liða úrslitin eða bara úrslitin
sjálf en til að byrja með var það alls
ekki hægt. Þetta breyttist hins vegar
nú í janúar og síðan hafa viðbrögð-
in verið jákvæð. En þetta hefði bara
mátt gerast miklu fýrr.“
Þessi breyting á miðaverðinu og
fyrirkomulaginu á sölunni kom að-
eins rúmum hálfum mánuði áður
en greiða þurfti fyrirframgreiðslu
til hótelanna. „Rúmur hálfur mán-
Gunnar Snælundur Ingimarsson.
„HSÍ virðist ekki kæra sig um að-
stoð reyndra aðila í ferðaþjón-
ustu, sem boðar ekki gott ef
þessi keppni á að heppnast sem
skyldi."
uður í nýtt söluátak er því afar erfið
aðstaða og gerir það að verkum að
afar erfitt er að átta sig á stöðinni."
Kristín Sif segir samt að þetta
hafi ekkert komið sér á óvart. „Það
er engin afsökun í sjálfu sér en við
íslendingar gerum alltaf allt á síð-
ustu stundu. Það er hins vegar
mjög erfitt að útskýra það fýrir út-
lendingum sem vilja hafa allt sitt á
hreinu með löngum fýrirvara."
Nöldur og leiðindi
Handknattleiksforystan bauð á
sínum tíma út miðasöluþáttinn
gegn tryggingum og hafði þá Hall-
dór Jónsson, ungur Akureyring-
ur, betur í keppni í ferðaskrifstof-
urnar. Síðan þá hefur andað köldu
milli ferðaskrifstofanna og hans og
Ratvís hf. sem sér um miðasöluna.
„Þetta er bara samkeppni og maður
er auðvitað orðinn þreyttur á þess-
um eilífu erjum við kollega sína,“
segir Halldór. „En nú á síðustu
dögum hefur staðan breyst að
mínu mati, fólk er meira að taka
við sér og ég held að þessir síðustu
dagar fyrir keppni verði að mestu
lausir við nöldur og leiðindi.“
Hákon tekur undir þetta. „Und-
irbúningurinn gengur vel þessa
dagana og loksins virðast allir leggj-
ast á eitt,“ segir hann. „Það eru allir
að kveikja og auðvitað er það
kannski svolítið seint nú, það er
hins vegar alls ekki of seint og það
er rnálið." Björn Ingi Hrafnsson
Framsalsbeiöni vegna hassinnflutnings
Loks framsal á
Tryggva Bjarna
Framsalsbeiðni á Tryggva
Bjarna Kristinsson hefur iengi
verið að velkjast í kerfinu. Síðustu
vikur hefúr verið beðið endurnýj-
aðrar framsalsbeiðni frá fíkniefna-
deildinni en það tafðist vegna þýð-
inga á skjölum. Nú eru þýðingar
klárar og dómsmálaráðuneytið
mun senda ffamsalsbeiðnina til
innanríkisráðuneytisins í Portúgal
öðru hvorum megin við helgina
en Tryggvi Bjarni er þar í fangelsi
út þennan mánuð.
Framsalsbeiðnin er tilkomin í
kjölfar hassmáls sem upp kom í
nóvember. Þá var breskt par tekið
á Keflavíkurflugvelli með 6,1 kíló
af hassi og I kjölfarið sátu þrír Is-
lendingar, Sigurbjörn Þorkels-
son, Orn Ingólfsson og Þorri
Jóhannsson í gæsluvarðhaldi.
Grunar lögregluna að hópur í
kringum þessa menn hafi um
langt skeið stundað innflutning á
fíkniefnum hingað til lands og á
Tryggvi Bjarni að hafa útvegað
efnin um árabil en hann hefur
lengi verið búsettur á Spáni. I
tengslum við framsalsbeiðnina var
spurst fýrir um Tryggva Bjarna hjá
Interpol þar sem óttast var að
hann gengi þeim úr greipum
vegna þeirrar tafar sem varð á
framsalsbeiðninni.
Sá ótti reyndist ástæðulaus því
hann er lokaður í fangelsi en hann
var dæmdur til þriggja mánaða
gæsluvarðhalds í Portúgal vegna
fíkniefnamáls en síðastliðið sumar
var hann dæmdur til fangavistar
fyrir ofbeldi gegn þarlendri konu