Helgarpósturinn - 02.02.1995, Page 16
16
MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR
H
FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1995
„Ég get gert hvaðeina sem þú vilt
svo lengi sem ég þarf ekki að tala.“
Linda Evangelista
Ef hugsanir okkar og skilningur á sjálfum okkur
hefur einhvern tímann mótast af heimspekingum,
hugsuðum eða listamönnum þá er sá tíma ábyggi-
lega liðinn. Nú lifum við á tímum súpermódelanna,
Lindu, Naomi, Cindy, Kate og allra hinna. Og ef
miða má við magnið af viðtölum við þær stöllur þá
þyrstir okkur í að læra af lífi þeirra, hugmyndum og
viðhorfum. En þegar litið er yfir úrval úr þessum við-
tölum er erfitt annað en að velta því fyrir sér hvort við
gætum ef til vill ekki lært meira af Ijótu og ógeðfelldu
„Eg er sæt stelpa sem
er módel og ég sýg
engan eins og leik-
kona.“
Cameron Diaz
fólki en þessum snoppufríðu stúlkum. Brotin sem hér
birtast ýta alia vega undir þá kenningu að því fegurri sem
hausinn er að utan því eyðilegri sé hann hið innra. Niður-
staðan hlýtur að verða: Horfið, snertið ef til vill, en látið
ekki detta í hug að hlusta.
Um grundvallaratriðin
„Það er mjög mikilvægt að vera
rétt klædd þegar þú stundar lík-
amsrækt. Gamall bolur eða útjösk-
uð peysa eru ekki beint til þess fall-
in að ýta undir árangurinn."
Cheryl Tiegs
Um herramennskuna
„Tónlistin við Indecent Exposure
er rómantísk blanda sem ég veit að
allar konur elska. Ég hef hana því
alltaf við hendina ef ég veit af konu
í nágrenninu.“
Fabio
Um mótsagnirnar
„Stundum er ég einmana en á móti
kemur að stundum er gott að vera
Tatjana Patitz
Um innsæið
„Þegar ég er að vinna að bíómynd-
um og verð svöng, þá tek ég mér
hlé og fæ mér kexkökur.“
Carol Alt
Um stéttaþjóðfélagið
„Við erum ekki Karl bretaprins og
Diana prinsessa. Við lítum ekki á
okkur sem aðalsfólk. Við erum
vinnandi fólk.“
Christie Brinkley
Um atvinnusjúkdóma
„Ég mátaði einu sinni 250 baðföt
sama daginn og endaði öll út í út-
brotum á mjöðmunum, líklega af
þessum sundbolum sem voru
þaktir pallíettum."
Cindy Crawford
Um líkamshlutana
„Ég veit aldrei hvað ég að gera við
hendurnar á mér. Stundum líður
mér einkennilega út af þessu, fólk
fer að glápa á mig og það gerir mig
taugaóstyrka."
Tyra Banks
Um tjáningu líkamans
„Það er yfirleitt alltaf hægt að
sjá á mér hvernig mér líður. Ef
ég hef fitnað þá líður mér
vel.“
Christy Turlington
Um hindranir
„Ef þeir hefðu tækjasal í
Concorde-þotunum þá væri
ég í stöðugri líkamsrækt."
Linda Evangelista
Um viljann
„Það var frekar ieiðinlegt
fyrir mig að þurfa að nær-
ast. Ég vissi að ég varð að
borða og ég neyddi mig til
þ«
ess.
Kate Moss
Um hefndina
„Stelpurnar verða
alltaf bálreiðar hver
út í aðra og reyna
að egna hár-
greiðslumeist-
urunum til að
eyðileggja
hárið á hin-
um stelp-
unum.“
Tasha
Um sorgina
„Þegar Azzedine-jakkinn minn,
sem ég eignaðist 1987 dó, vafði ég
honum saman og stakk í kassa,
setti nótu með þar sem sagði hvað-
an hann kæmi og fór með niður á
Hjálpræðisher. Mér fannst ég
missa mikils.“
Veronica Webb
er
sama
andlitið sem
horfir á
móti.“
Claudia
Schiffer
Um hagfræðina
„Ég vakna ekki fyrir minna en
10.000 dollara á dag.“
Linda Evangelista
Um ró hugans
„Ég get ekki hugsað þegar ég sit
fyrir. Ef ég fer að hugsa um eitt-
hvað fer allt úrskeiðis."
Paulina Porizkova
Um rökfræðina
„Ég held að ef einhverjum
finnst brjóstin á mér ekki
nógu stór til að taka af
þeim myndir þá séu þau
heldur ekki nógu stór
fyrir mig.“
Christy Turlington
Um hugrekkið
„Þeir voru að mynda mig í baðföt-
um og vildu taka nokkrar myndir
af bakhlutanum. Ég hugsaði: Ó,
góður guð, ég verð að vera hug-
rökk. Allar konur hata baksvipinn
a ser.
Cindy Crawford
Um sjálfsþekkingu
„Hvert sem ég fór var ég elt af
brjóstamálinu mínu. En ég áttaði
mig á að ég er ekki brjóstamál.“
Carole Mallory
Um fátæktina
„Allir ættu að eiga næga peninga
fyrir fegrunaraðgerð.“
Beverly Johnson
Um örlögin
„Ég vildi óska að ég lenti ekki í því
að rassinn á mér rynni niður í lær-
ispoka. En ég býst við að ég yrði
bara að sætta mig við það.“
Christie Brinkley
Um sálfræðina
„Mér fannst æðislega gaman að
vinna að myndinni Rising Sun. Ég
sökkti mér niður í sálfræðilegu
hliðina á því hvers vegna hún vildi
kyrkja sig og setja plastpoka yfir
hausinn á sér. Það var vegna þess
að hún hafði ekki næga sjálfsvirð-
ingu-“
Tatjana Patitz
Um starfsval
„Kærastinn minn telur að ég hafi
misst sjónar af köllun minni til að
verða bókasafnsfræðingur.“
Paulina Porizkova
Um forgangsröd
„Ég myndi miklu heldur stunda
líkamsrækt en að lesa dagblað.“
Kim Alexis
Um alheimsstjórnmálin
„Við Mick Jagger kunnum rosalega
vel við hvort annað. Við gátum tal-
að saman heilu næturnar. Við
höfðum sömu skoðanir á kjarn-
orkuafvopnun.“
Jerry Hall
Um fyrstu kynni
„Ég held að flestum þætti það for-
vitnilegt að vera kynntir fyrir sjálf-
um sér — það væri dálítið svaka-
legt.“
Christy Turlington
Richard vill
ekki að ég
drepi pöddur,
en stundum
get ég bara
ekki annað.“
Cindy Crawford
Um innri styrk
„Ég elska öryggið sem förðunar-
meistarar geta gefið mér.“
Tyra Banks
Um ferðalög
„Ég hef ekki séð Eiffelturninn,
Notre Dame, Louvre-safnið. Ég hef
ekki séð neitt sem máli skiptir. Og
mér er hjartanlega sama.“
Tyra Banks
Um þáttaskil
„Eftir að ég komst yfir reiðina
gagnvart mömmu þá blómstraði ég
hreint og beint í blaki og hlutirnir
fóru að ganga upp í módelbrans-
Gabrielle Reece
Um uppgötvanir
„Ég er nýbúin að átta mig á að ég
er einum sentimetra hærri en ég
hef hingað til haldið.“
Christie Brinkley
Um hamfarir
„Það versta var þegar pilsið féll
niður um mig, alveg niður að ökkl-
um — en ég var sem betur fer í
þykkum sokkabuxum undir.“
Naomi Campbell
Um erfðirnar
„Eiginmaðurinn minn var allt-í-
lagi útlits en ekkert meira en það.
Og þegar ég var að fæða, spurði ég
hann: Hvað ef hún verður ljót? Þú
ert ljótur.“
Beverly Johnson
€
«
«
C
€
i
Ifl
fl
€
«
8
«
€