Helgarpósturinn - 07.12.1995, Side 7
RMMTUDAGUR 7. DESEMBER1995
7
Siðanefnd Blaðamannafélags Islands úrskurðar í kærumáli Guðna Ágústssonar gegn Alþýðublaðinu og Helgarpóstinum.
Hrafn talinn hafa brotið
alvarlega á Guðna
Siðanefnd Blaðamannafé-
lags íslands felldi í gær
úrskurð í kærumáli
Guðna Ágústssonar alþingis-
manns gegn Hrafni Jökuls-
syni, ritstjóra Alþýðublaðsins,
Karli Th. Birgissyni, ritstjóra
Helgarpóstsins, og Agli Heiga-
syni, blaðamanni HP.
Kæruefnin tengjast forsíðu-
frétt Alþýðublaðsins 29. sept-
ember 1995 undir fyrirsögn-
inni „Vill reka nýbúa og flótta-
menn úr landi“ og tveimur
nafnlausum klausum sem birt-
ust f sama biaði 4. og 5. októ-
ber. Þar er meðal annars haft
eftir Einari S. Jónssyni, for-
manni samtakanna Norrænt
mannkyn, að Guðni hafi verið
félagsmaður í þeim til nokk-
urra ára. Einnig kærði Guðni
vegna millifyrirsagnar í grein í
HP 5. október, sem bar fyrir-
sögnina „Laugavegur er Kína-
hverfi", svo og spurningu til
lesenda á baksíðu sama tölu-
blaðs, um hvort þeir teldu að
Guðni hefði einhvern tíma ver-
ið félagi í samtökunum.
Guðni kærði málið 17. októ-
ber og það var tekið fyrir á alls
sex fundum Siðanefndar.
Guðni mætti í fylgd lögmanns
Einar S. Jónsson: Hættulegt að hafa
eftir honum ummæli um Guðna.
verið skráður meðlimur í félag-
inu frá árinu 1985, fengið fund-
arboð og annað sem slíku fylg-
ir og ekki gert við það neinar
athugasemdir uns hann sagði
sig úr félaginu 1995.
Karl Th. Birgisson og Egill
Helgason báru sömuleiðis af
sér allar sakir og í úrskurði
Siðanefndar Blaðamannafélags
íslands kemur fram að þeir
teljist ekki hafa brotið gegn
siðareglum blaðamanna. Hrafn
Jökulsson er í sama úrskurði
ekki talinn hafa brotið gegn 2.
og 5. grein siðareglnanna þar
sem kveður á um ábyrgð
blaðamanns á opinberum vett-
vangi og varað við hagsmuna-
árekstrum, en er hins vegar
sagður hafa brotið gegn 3.
grein og telst brotið alvarlegt.
Siðanefnd telur Hrafn hvorki
hafa vandað til upplýsingaöfl-
unar í umræddu forsiðumáli
né gætt að vönduðum vinnu-
brögðum við framsetningu efn-
is.
3. grein siðareglna Blaða-
mannafélags íslands hljóðar
svo: „Blaðamaður vandar upp-
lýsingaöflun sína, úrvinnslu og
framsetningu svo sem kostur
er og sýnir fyllstu tillitssemi í
vandasömum málum. Hann
forðast allt, sem valdið getur
saklausu fólki, eða fólki sem á
um sárt að binda, óþarfa sárs-
auka eða vanvirðu."
Báðir hafa þeir Guðni og
Hrafn lagt kapp á að hafa sigur
í þessu máli fyrir siðanefnd,
enda hafa þeir att kappi í
stjórnmálum, sem gefur þessu
máli aðra vídd en flestum þeim
sem Siðanefnd fjallar um.
síns á fund nefndarinnar 22.
nóvember og Hrafn kom á fund
nefndarinnar 29. nóvember
þar sem hann útskýrði mál
sitt. Karl Th. og Egill létu nægja
að senda inn skriflega greinar-
gerð.
I kæru sinni á hendur Hrafni
greinir Guðni Ágústsson fjögur
aðalatriði sem hann taldi
brjóta í bága við siðareglur
Blaðamannafélagsins. I fyrsta
lagi telur hann að frágangur og
starfshættir við vinnu um-
ræddar forsíðufréttar sam-
ræmist ekki 3. grein siðareglna
Blaðamannafélagsins þar sem
kveðið er á um að blaðamaður
vandi upplýsingaöflun sína, úr;
vinnslu og framsetningu. í
öðru lagi gerir hann athuga-
semd við nafnlaus ummæli
þess efnis að hann sé eða hafi
verið féiagi í Norrænu mann-
kyni. í þriðja lagi telur hann
Hrafn ekki fara eftir þeirri meg-
inreglu að hann sé blaðamaður
jafnt innan sem utan starfs-
vettvangs síns. í fjórða lagi tei-
ur Guðni að Hrafn noti biað sitt
í nafnlausu en persónulegu
einkastríði gegn sér; stríði sem
meðal annars reki rætur til
stjórnmálaátaka og kosn-
Hrafn Jökulsson: Úrskurður um eitt
alvarlegt brot.
ingaslags sem þeir áttu á Suð-
urlandi fyrir kosningarnar
1995 sem frambjóðendur hvor
síns flokksins.
//P-blaðamennina Karl Th.
og Egil sakar Guðni um óvand-
að val á millifyrirsögn og að-
dróttanir í sinn garð með
spurningu í könnun meðal les-
enda á baksíðu blaðsins.
Guðni Ágústsson taldi auk
þessa að í báðum ofangreind-
Guðni Ágústsson: Kærði meinta
óvildarmenn sína á báða bóga.
um blöðum hefði hann skýrt
og skilmerkilega verið bendl-
aður við kynþáttahatur og að-
ild að Norrænu mannkyni, sem
kynni að vera refsivert athæfi.
Hrafn Jökulsson bar af sér
allar sakir í málinu og lagði
fram skriflegar yfiriýsingar nú-
verandi og fyrrverandi for-
manna samtakanna Norræns
mannkyns, þar sem fram kem-
ur að Guðni Ágústsson hafi
MjódxC og Húsi versíunarinnar
(gamCa IKEA)
HamstraBúr á 2.200 krónur
ef keypt er 6úr með öCCu
20% afsCáttur aföðrum búrum séu
þau keypt með öúwnjyCgiíiúitum
Fugtarfrá krónum 950
Fiskarfrá krónum 12 0
Hamstrar krónur 200
ViCjum eitmUj minna á eittfivert ódýrasta
fugCa- ocj nagdýrafóðiu Candsins
Stmi Mjódd 587-0711
Stmi Húsi versCunarinnar 588-0711
GERÐIN
THE VIKING WOOL STORES