Helgarpósturinn - 07.12.1995, Page 9

Helgarpósturinn - 07.12.1995, Page 9
FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER1995 9 V Það gerist ekki oft hér á landi að fólk segi af sér setu í nefndum, ráðum eða stjórnum að eigin frumkvæði vegna hættu á hagsmunaárekstrum. Nú hefur það hinsvegar gerst: Dagskrarstjori Stoðvar 3 segir sig úr úthlutunar- nefrid Kvi kmyndasjóðs Heimildir Helgarpóstsins herma að umræddur dagskrárstjórí, Laufey Guð- jónsdóttir, hafi sagt afsér í kjölfar skríflegrar kvörtunar um augljós hags- munatengsl hennar. Spurningar hafa vaknað um stöðu Markúsar Arnar Antonssonar, sem er formaður úthlutunarnefndarinnar. Laufey Guðjónsdóttir, dag- skrárstjóri Stöðvar 3, hef- ur sagt lausu sæti sínu í úthlutunarnefnd Kvikmynda- sjóðs íslands. Samkvæmt heimildum Helgarpóstsins gerði hún það af eigin hvötum, sökum hættu á hagsmuna- árekstrum vegna annarra starfa sinna — það er að segja hjá Stöð 3. í samtali við blaða- mann staðfesti Laufey að hún hefði sagt sig úr nefndinni, en neitaði alfarið að einhver sér- stakur þrýstingur hefði verið á sig í málinu. Hún vildi að öðru leyti alls ekkert tjá sig um það. Heimildir Helgarpóstsins greina frá því að Lauíey hafi sagt af sér í tengslum við skrif- lega kvörtun sem barst inná borð stjórnar Kvikmynda- sjóðs. Ekki tókst að sannreyna hver hefði skrifað bréfið, en embættismaður kunnugur málinu sagði í samtali við blaðamann að líklegt væri að það væri runnið undan rifjum samkeppnisaðila Stöðvar 3 sem hefði viljað nýta sér tæki- færi til að koma höggi á sjón- varpsstöðina. Laufey Guðjónsdóttir starf- aði áður lengi vel í innkaupa- og markaðsdeild Sjónvarpsins og hefur nokkrum sinnum set- ið í úthiutunarnefnd Kvik- myndasjóðs. Heimildamenn Helgarpóstsins innan kvik- myndaheimsins kveða hana ávallt hafa staðið sig vel og fyr- ir margt löngu sannað hæfni sína til hlutlauss mats og sýnt af sér vönduð vinnubrögð. Þeir kvikmyndagerðarmenn sem Helgarpósturinn ræddi við voru furðu lostnir á úrsögn Laufeyjar og sögðu hana koma flatt uppá alla viðkomandi að- ila: „Enginn átti von á þessu,“ sagði einn þeirra. „Við höfum ekki heyrt neitt sem bendir til þess að ýtt hafi verið á hana um að segja af sér störfum í nefndinni, en harkan í kvik- myndabransanum er hinsveg- ar slík — sérstaklega í kringum úthlutun — að slíkt kæmi manni ekki á óvart. Ég held persónulega að hún hafi gert þetta af eigin hvötum, því hún hefur náttúrlega aldrei fyrr gegnt jafnmikilli lykilstöðu í þessum bransa. En hvað má þá segja um Markús Örn? Mun hann líka segja af sér?“ Hætt er við að úrsögn Lauf- eyjar seinki úthlutun, sem fara átti fram í janúarmánuði næst- komandi, þarsem töiuvert verk er fyrir nýjan nefndarmann að fara yfir þann aragrúa um- sókna sem liggur fyrir — og öll handritin sem framlögð eru. Það er til þess tekið að ásamt Laufeyju Guðjónsdóttur sitja í úthlutunarnefndinni þau Markús Örn Antonsson, fram- kvæmdastjóri Ríkisútvarpsins, og Sigríður Dúna Kristmunds- dóttir, doktor í mannfræði. Helgarpósturinn reyndi að ná tali af þeim báðum í gærkvöldi (miðvikudag), en Markús Örn reyndist vera á ferðalagi er- lendis og Sigríður Dúna neitaði með öllu að tjá sig nokkuð um málið. Höfuðstöðvar Stöðvar 3 í Kringlunni. Hér starfar konan sem sagði sjálf- viljug af sér störfum í úthlutunarnefnd Kvikmyndasjóðs vegna hættu á hagsmunaárekstrum: Laufey Guðjónsdóttir, dagskrárstjóri stöðvarinnar. Stjórn Kvikmyndasjóðs ís- lands skipar úthlutunarnefnd- ina, en að sögn heimildamanna er þess jafnan gætt við skipun hennar að velja trausta og ekki of hagsmunatengda aðila til verksins. Sú fullyrðing stang- ast að vísu nokkuð á við önnur störf Markúsar Arnar og Lauf- eyjar. Heimildir innan íslenska kvikmyndaheimsins herma að Vilhjálmur Egilsson, alþingis- maður Sjálfstæðisflokksins og formaður stjórnar Kvikmynda- sjóðs Islands, hafi lagt hart að Laufeyju að draga úrsögn sína tilbaka þarsem engin ástæða væri til brotthvarfs hennar, en það fékkst ekki staðfest. Vil- hjálmur mun sjálfur vera mót- fallinn úrsögninni, en vilja láta stjórnina í heild taka afstöðu til þess. Vilhjálmur er einsog Markús staddur erlendis um þessar mundir og ekki náðist í hann. -shh Vandaður yi vauuctuux' /| vöu HERRAPATNAÐUR vöu LAUGAVE6I 51 S: 5S1 8840 Ullarjakkar kr. 8.720 Frakkar frá kr. 7.900 Rúllukraga- bolirkr. 1.380 Skyrtur frá kr. 1.990 Bindi frá kr. 1.990 Fallegar jólagjafir á góðu verði

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.