Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1950, Blaðsíða 7
Islendingur segir frá dvöl sinni
I frumskögum Afríku
HOFUNDUR þessarar frásagnar, Eggert Magnusson i Engjabæ í Laug-
ardal við Reykjavík, er lesendum Lesbókar áður kunnur af skemti-
legri ferðasögu, er hann fór einn síns liðs á hjóli í fyrrasumar frá
Glasgaw til Parísar. Hann er nú nýkominn úr annari miklu meiri æv-
intýraför suður til Gambiu í Mið-Afríku, þar sem hann dvaldist meðal
Svertingja um rúmlega fjögurra mánaða skeið.
JEG var ráðinn til þessarar farar
af pólska konsúlnum í Reykjavík
og' gert ráð fyrir að jeg dveldist
þar syðra um eins árs skeið. Átti
jeg að vera á skipi, sem Pólverjar
í London ætluðu að gera út til fisk-
veiða úti fyrir Afríkuströnd. Hugð-
ust þeir mundu veiða þar túnfisk
í herpinót og átti jeg að leiðbeina
um notkun herpinótarinnar. Þekti
jeg þó ekkert til túnfiskveiða, og
nú veit jeg að erfitt mun reynast
að veiða þann fisk í herpinót, því
að bæði er hann hraðsyndur og
styggur. Auk þess gengur hann
ekki í torfum á þessum slóðum, eða
gerði ekki þann tíraa, sem jeg var
þar. Annars hafði jeg ekkert af
túnfiskveiðum að segja, eins og síð-
ar kemur fram.
Frá Reykjavík fór jeg með Goða-
fossi föstudaginn 28. apríl og kom-
um við til Hull 2. maí og höfðum
fengið ilt veður í hafi. Heima var
kaldranalegt tíðarfar er jeg lagði
á stað og veðurspáin gerði ráð fyrir
hríðarveðri um mest alt landið. En
það var komið sumar í Englandi
og fagurt um að litast. Jeg fór með
hægfara lest til Lundúna og er sá
kostur við að ferðast í þeim, að
maður getur virt fyrir sjer lands-
lagið, þar sem lestin fer um. Jeg sá
að búið var að sá í akra alls staðar
og á túnum var svo mikið gras, að
það hefði þótt góð slægja heima.
Verður þó alt blómlegra eftir þvi
sem sunnar dregur. Og nú fér jeg
að kannast við mig frá því að jeg
var hjer á ferðinni í fyrra. Þarna
er þá Redíord og Newark með skóg
-um og skrúðgörðum, og' þarna
kemur Grantham með sínum fræga
kastala, og þar er byrjað að slá. Þá
kemur Petersbury nyrðri og Théms
-ford og þar er glaða sólskin og
logn. Og er við komum til Hartly-
wood, þá eru þar krakkar að tína
stórar bláklukkur og unglingar að
leika golf.
Bið i Englandi
Til Lundúna var komið um kvöld
-ið og settist jeg að á sjómanna-
heimili í Dockstreet, hálægt hinum
fræga Towerkastala og brú. Er
þetta rismikil bygging og mundi
vera kölluð höll lieima. Þetta sjó-
mannaheimili var reist og tók til
starfa 22. maí 1865 og það er mjög
merkileg bygging, því að þar er
margt aimað en gisting fyrir sjó-
meao. Þar er sjómannaskólig verslr