Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1950, Blaðsíða 9

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1950, Blaðsíða 9
589 LESBÓIÍ MORGUNBLAÐSINS Frá Lissabon kvöldið. Þær eru 7 og þar eru há fjöll. Hæsta fjallið er á Teneriffa, 3750 metra hátt. Til vinstri er Af- ríkuströnd, lág og virðist alveg vatnslaus og gróðurlaus, en víða sjást stórir nýir sandskaflar. En hjer hafast þó við hinir einkennil. flamingo fuglar og gera sjer nokk- urra feta há hreiður úr leir í salt- lónum. — Svo fljúgum við yfir frönsku Mauritaniu. Þar er heim- kynni marabu-storksins og þar eru strútar, sem eru 8 fet á hæð og sagt er að geti lifað í 100 ár. Egg þeirra eru talin vera 3 pund að þyngd og þurfa 40 mínútna suðu. Nú er aftur flogið yfir haf úti fyrir Senegal strönd. Þaðan flytj- ast um 600.000 smálestir af hnetum árlega. Úr hverri smálest fást um 480 pund af olíu, sem notuð er í smjörlíki. í Senegalfljóti er fult af krókódílum. Myrkrið dettur á kl. 8, en rjett fyrir sólarlag sjást hjer undarleg- ar hyllingar. Svo er alt í einu kom- ið náttmyrkur og í Dakar lendum við í myfkri kl. 11 um kvöldið. Þarna segjum við skilið við flug- vjelina, því að hún á að halda á- fram til Suður-Ameríku, Rio de Janeiro og Montevideo.. Við fengum inni í gistihúsi og nú byrjaði hitinn að angra okkur. Það var svo heitt þarna um miðja nótt- ina að svitinn bogaði af okkur. — Dakar er nýtísku borg, með góðri höfn og flugvelli, og hjer eru stór- byggingar, sum húsin 8 hæðir. Hjer í Senegal eru 93.000 Svertingjar og 14.000 hvítir menn, aðallega Frakk- ar. Frá Dakar fórunx við kl. 8 nxorg- uninn eftir með tveggja hreyfla flugvjel, og um leið og við lögðum á stað var slökt á landtökuvitaix- um. Hjer er fagurt um að litast, alls staðar skógur á Grænhöfða. En úti fyrir rísa Kap Verde eyar, eða Grænhöfðaeyar. Þær eru 10 og mjög hálendar. Hæsta fjallið er á eynni Fogo og er það 2830 metrar. Við erum ekki lengi að fljúga til Gambíu. Eftir svo sem stundar flug lentum við á allstórum flugvelli í Yundum, sem er all langt frá borg- inni Bathurst. Hjer í Yundum rek- ur breska nýlendustjórnin geisi- stórt hænsabú. Árið sem leið voru fluttar út þaðan 20 miljónir eggja. Þarna er líka mikil akuryrkja og til hennar notaðir 50 traktorar og fjöldi bíla. Ekki veitir af. því að íruxnskóguxinn er hjer eríiður við- fangs. Mátti sjá þess merki, 20 brotna traktora og annað eins af bílum. Auk þeirra framkvæmda sem nýlendustjórnin hefur þarna xneð höndurn, hefur hún íxxikið vatns- veitu fyrirtæki í undirbúningi upp með Gambiufljóti, hjá þorpinu Yoro Beri Kunda. Þar á að veita vatni yfir 24.400 ekrur laxxds, en til þess þarf að dæla unx 80.000 gallónum af vatni úr fljótinu á hverri mínúlu. Er gert ráð fyrir að þarna megi rækta unx 14.000 smálestir af hrísgrjónum, auk ávaxta og grænmetis. í Yundum var okkur ágætlega tekið og dvöldumst við þar lengi í besta yfirlæti hjá viðgerðamanni, sem Wilson heitir. — Síðan kom franskur maður, A. II. Bocage í bíl að sækja okkur. Var svo haldið til ákvörðunarstaðarins, en það er lít- ið þorp er Gunjar heitir, langt inni í frumskóginum, eða um 70 km. frá Bathurst. Hjer eigum við nú að vera, og hjer er ekki önxurlegt um að litast. Hvarvetna blasa við ávaxtatrje og svigna undir ofur- byrði fullþroskaðra ávaxta, grape, appelsínum, banönum, ananas, mongu, pópo og kokoshnetum. Auk þess úir og grúir hjer af allskonar ávöxtum, sem jeg þekki ekkx, og hrísgrjónaekrur eru víða. Fyrstu kynni aí landinu. HÚSIÐ, sem okkur var fengið í Gunjar var úr steinsteypu og íneð járnþaki, en gluggar allir opnir og glerlausir og flugnanet fyrir þeim Við vorunx hjer aðeins þrír Ev- rópumenn, Skotinn, Frakkinn og jeg. Allir aðrir eru Svertingjar og komu þeir mjer undarlega fyrir sjónir fyrst í stað og Já við að jeg hefði hálfgerðan beyg af þeim, því að þeir voru allir vopnaðir sveðj- um. En það fór fljótt af. Þeir ganga svo að segja allsnaktir og berfætt- ir. Kofum sínum hrófa beir upp

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.