Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1950, Blaðsíða 15

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1950, Blaðsíða 15
" LESBÓK MORGtJNBCAÐSINS 595 Márar. frjettum við að flóðhestur hefði veiðst í Gambíufljóti og var hann þrjór smálestir að þyngd. Bústaðaskifti. JEG fór alfarinn frá Gunjar hinn 28. ágúst, eftir nær þriggja mán- aða dvöl þar. Mjer hafði liðið þar vel, líkað vel við svarta fólkið og náttúrufegurðina. Saknaði jeg þess alls, og máske mest Kan-Kan dans- ins í tunglsljósi á síðkvöldum. Nú var jeg fluttur til Fajara, en það eru gamlar herbúðir og hjer hafði deild úr enska flughernum haft bækistöðvar í stríðinu. Voru þar því aðallega braggar. Þarna er ekki eins fallegt og í Gunjar, en ýmis þægindi, sem þar voru ekki, svo sem rafmagn, rennandi vatn og böð. Þó bætti það nokkuð úr skák að landið var hjer ekki jafn mar- flatt og í Gunjar, því að hjer voru nokkur hæðadrög. Hitinn var held- ur ekki jafn mikill, því að þessi staður er fram við sjó og hafrænan dregur úr, en hitinn í Gunjar var venjulega um 40 stig. Þarna voru með mjer 5 Spánverjar frá La Palmas á Kanarieyum og auk þess fjöldi Svertingja. : Við unnum á daginn í veiðarfæragerðinni í Yundum. Hjer er góð baðströnd og oft kemur hingað mikið af hvítu fólki frá Bathurst. Eru ekki nema 12 mílur á milli og góður vegur malbikaður. Hjer er pálmaskógur og mikið af smáfuglum og eru sums staðar 100 hreiður í einu pálmatrje. Þeir útbúa hreiðrln þannig að þeir rífa ræmur úr blöðunum og hengja hreiðurkörfurnar í þser. Það er erfitt fyrir fslending að átta sig á árstíðum hier, þvf að fyrst og fremst er veðrið altaf svip- að, og svo er sauðburður að hefjast hjer i september. Kindurnar eru ólíkar íslenska sauðfjenu, stórar og háfættar, en ullarlausar. Boðberar að heiman. Skömmu eftir að jeg kom hing- að, þóttist jeg sjá lunda. Mikil við- brigði hljóta það að vera fyrir hann að koma heim til fslands að vori, því að oft er köld aðkoman og klaki í jörð fram í maí. Þá sá jeg hjer fugl, sem er líkur veiði- bjöllu og margar kríur sá jeg. Þá er rjett að geta þess, að hjer fanst flöskuskeyti, sem komið var frá fslandi. Hafði einhver Skoti fleygt því þar í sjó árið 1944. Hef- ir það því verið sex ár á leiðinni þaðan til Gambíu. Skeytið var orð- ið svo máð, að það var lítt læsi- legt. En einkennilegt fanst mjer að það skyldi einmitt reka á land meðan jeg var þarna. Búkas veiktist af malaríu rjett eftir að við komum hingað og var sendur heim. Jeg saknaði hans míkið, því að við höfðum verið samrýndir og altaf unnið saman við veiðarnar. Annars er nokkuð af hvítu fólki hjer. í næsta þorpi er mikið af Márum fallega brúnum og líkum Aröbum, en hafa þó ekki jafn falleg augu og Arabar. Augun í Márunum eru tinnusvört. Þeir eru stórir og karl- mannlegir. Þegar jeg hafði verið um tíma í Fajara, fekk jeg heimsókn, sem gladdi mig mikið. Það voru spóar. Jeg sá fyrst 5 hinn 17. september, og hinn 22. september voru þeir orðnir miklu fleiri og voru að vella graut hjer upp um hæðirnar, alveg eins og á íslandi. Einnig sá jeg hjer sandlóu. Hitabeltissjúkdómar, Fagurt er í Fajara hlíðum, alls staðar nýútsprungnar rósir af öll- um litum. Og búsældarlegt mundi mörgum íslenskum bónda finnast hjer, gulvíðir og grávíðir sums staðar 3 metrar á hæð, alt umvafið í grasi og aldrei þarf að taka neina skepnu á gjöf. En hræddur er jeg um að þeim líkuðu ekki moskito og tse-tse flugumar, enda eru þær landplága og drepa bæði ménn og skepnur. Jeg sá nautgripi liggja dögum saman í svefnmóki eftir bit tse-tse flugunnar. Sumir ná sjer aftur en það er varla unt að verja þá fyrir blóðsugum og gömmum, svo að vanalega eru þeir drepnir um leið og þeir sýkjast. Moskito flugan veldur hitasótt, sem strádrap hvfta menn hjer áður. - • ’j x - • ■

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.