Lesbók Morgunblaðsins - 23.12.2000, Blaðsíða 16

Lesbók Morgunblaðsins - 23.12.2000, Blaðsíða 16
Steini og Olli, frægasta tvieyki kvikmyndanna. FRÆGASTA TVÍEYKI KVIKMYN DASÖGU N N AR EFTIR ELFAR LOGA HANNESSON Þeir hafa verið nefndirýmsum nöfnum: Chich e Croch, Laurel and Hardy, Feiti og Mjói, Gög og Gokke, eða Steini &OII i einsog þeir hafa verið nefnd ir hér á landi. Þeir ( eru i frægasta fvíeyki kvik- myndasögunnar og áhrif þ eirra á gamanleik eru óumdeilanleg. Þeirfélag ar hafa orðið öðrum fyr- irmyndi r, sem síðar komu, svo sem Abbott og Costello og (Jerry) Lewis og (Dean) Martin. STEINI hét fullu nafni Arthur Stanley Jefferson og fæddist í Englandi 16. júní árið 1890 í Ulverston, Lancashire. Faðir hans var virtur í ensku leikhús- lífi, starfaði sem leikari og samdi leikþætti fyrir aðra leik- húslistamenn. Á seinni hluta nítjándu aldar starfaði hann sem leikhússtjóri. Sonurinn sýndi leikhúsinu snemma áhuga og ákvað að leggja út á sömu braut og faðir hans og beindist áhugi hans einna helst að gaman- leik. Á sextánda ári þreytti hann frumraun sína á leiksviðinu í Picard Museum leikhúsinu. Skömmu síðar var hann ráðinn í leikhóp Fred Kamos, sem var þá einn af vinsælustu leik- hópum Englands. Árið 1910 lék Steini aðal- hlutverkið í nýjum leikþætti eftir Karno, Jimmy the Fearless eða The BoyEro. Hlut- verkið var þó í skamman tíma túlkað af honum því öðrum efnilegum leikara í leikhópnum, Charles nokkrum Chaplin, var boðið að taka við hlutverkinu. Það freistaði Chaplins þó ekki fyrr en hann sá hve vel Steini fór með hlutverkið. Um haustið sama ár hélt Kamo flokkurinn í leikför til Bandaríkjanna. Steini fór með og var varaleikari Chaplins í Ieikþætti sem hét A Night in an English Music Hall. Þremur árum síðar, árið 1913, var haldið í aðra leikferð og þá lék Steini hlutverkið í fyrmefndum þætti eftir að Chaplin hafði gert samning við Keystone kvikmyndaverið. Að sýningum loknum ákvað Steini að reyna fyrir sér upp á eigin spýtur en Kamo hópurinn hélt aftur til Englands. Árið 1917 lék Steini í fyrstu kvikmynd sinni, Nuts in May, og skömmu síðar lék hann í ann- arri mynd, Lucky dog. Meðal leikara í síð- amefndu myndinni var Oliver Hardy, hvor- ugan gmnaði þá að þeir ættu eftir að eyða farsælum ferli í sameiningu og skapa mörg ógleymanleg meistaraverk hvíta tjaldsins. Heil níu ár liðu þar til að því kom. I millitíðinni lék Steini í mörgum myndum og í upphafi þriðja áratugarins tók hann upp samstarf við G. M. Anderson, sem er betur þekktur undir nafninu Bronco Billy. Þeir mótuðu sér sérstak- an stíl, gerðu grín að öðrum kvikmyndum t.d. Blood and Sand með hjartaknúsaranum Rud- olf Valentino, sem þeir nefndu Mud and sand. Þetta form gamanmynda hefur haldist allar götur síðan og nægir að nefna myndimar Airplane og Plump Fiction. Árið 1923 lauk samstarfi þeirra og þá fór Steini til Roach félagsins sem var stjórnað af Hal Roach. Næstu þrjú árin lék Steini í mörgum mis- jöfnum kvikmyndum, sem var þó ekki alfarið hans sök þar sem hann þurfti, líkt og aðrir leik- arar, að leika í ákveðnum fjölda mynda á ári. Þó Steini hefði leikið í nokkur ár á hvíta tjald- inu hafði hann ekki náð verulegum vinsældum meðal áhorfenda. Það átti hins vegar eftir að breytast þegar hann tók upp samstarf við ann- an leikara hjá Roach félaginu, Oliver Hardy. Norvelle Hardy Olli hét fullu nafni Oliver Norvelle Hardy, fæddur í Harlem í Georgíu 18. janúar 1892. Ólíkt Steina störfuðu foreldrar Olla ekkert í leikhúsinu en höfðu hins vegar mikið yndi af söng. Það varð til þess að sonurinn var sendur í söngtíma og strax á áttunda ári var hann orð- inn atvinnusöngvari og söng m.a. með kirkju- kómm. Hann sagði þó fljótlega skilið við at- vinnumennskuna en hélt áfram að sækja söngtíma í þeirri von að námið ætti eftir að nýtast sér vel í framtíðinni. Það átti líka eftir að koma á daginn því þegar talmyndirnar hófu göngu sína féllu margir leikarar þöglu mynd- anna í gleymsku sökum raddarinnar. Rödd Olla var hins vegar sterk og hljómfögur og olli áhorfendum engum vonbrigðum. Á unglingsárunum hóf Olli laganám sem stóð þó stutt og árið 1910, þegar hann var 18 ára, opnaði hann kvikmyndahús í bænum sín- um og var það jafnframt það eina sinnar teg- undar þar. Kvikmyndaáhuginn var vakinn og Olli ákvað að reyna fyrir sér sem leikari. Árið 1913 komst hann á samning hjá Lubin kvik- myndafélaginu. Hann lék þó ekki í kvikmynd fyrr en tveimur árum seinna, allt er á huldu r 1 6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/USTIR 23. DESEMBER 2000

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.