Alþýðublaðið - 15.03.1996, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 15.03.1996, Blaðsíða 5
FOSTUDAGUR 15. MARS 1996 ALÞÝÐUBLAÐK) 5 Þjóðin þarf öflugan Al- þýðuflokk - kveðja frá Austfjörðum Alþýðuflokkurinn hefur unnið ís- lenskri þjóð mikið gagn og verið í for- ystu merkustu og mikilvægustu um- bóta á sviði vek ferðar, menningar og mannréttinda á öldinni. Þrátt fyrir klofning og inn- byrðis deilur, sem setja mark sitt á innri sögu flokksins, þá verður því aldrei á móti mælt að flokkurinn hefur komið miklu í verk. Vandi Alþýðuflokksins hefur verið sá að hann hefur ekki haft nægjanlegt kjörfylgi í hlutfalli við stefnu og árangur. Þar liggja ýmsar ástæður að baki. Þegar horft er til framtíðar þá er brýnast að skapa stefnu og staríi flokksins mikið traust og efla trúna milli forystu flokks og þjóðar. Þjóðin þarf á öflugum og traustum Alþýðu- flokki að halda, flokki sem er staðfast- ur og trúr stefnu sinni, jafnaðarstefn- unni. Austfirskir jafnaðarmenn óska Alþýðuflokknum heilla og farsældar á aftnæhstímamótum og treysta því að flokkurinn standi í fylkingarbijósti með jafnaðarstefnuna að leiðarljósi. Gunnlaugur Stefánsson, Heydölum Margt að gleðjast yfir og harma - kveðja frá Vestf jörðum Nú á hátíðarstundu getum við Al- þýðuflokksmenn bæði glaðst og einn- ig harmað margt í okkar 80 ára sögu. Gleði okkar byggist á því að við erum sannfærð um að flokkurinn hafur ætíð haft málefnalegt ffumkvæði og bar- áttuþor til þeirra verka sem komið hafa íslensku launafólki til góða og oftar en ekki haft erindi sem erfiði. Verkefni flokksins næstu misserin verður áfram að verja það velferðar- kerfi sem hann hefur tekið þátt í að byggja upp öðrum flokkum fremur, jafnframt verður flokkurinn að finna leið til að kynna framtíðarsýn sfna á aðgengilegan hátt fyrir almenning. Samhliða þessu verður flokkurinn að taka fbumkvæðið í umræðunni um sameiningu jafnaðarmanna í eitt stjómmálaafl sem gæti gert sig gild- andi. Takist þetta getum við jafnaðar- menn vel við unað og horft baráttu- glaðir til ffamtíðar. Ægir E. Hafberg, Flateyri Þurfum Flokkurinn stendur nú á tímamótum. Um leið og við minnumst uppruna hans og tilurðar er sótt harkaíega að réttindum launþegasamtaka með frumvörpum ríkisstjómarinnar. Nú, eins og þá, á flokkurinn að þekkja sinn vitjunartíma og þjappa sér með launþegum og berj- ast af einurð með þeim gegn þessari hreinu hugmynda- ffæði íhaldsins. Við hljótum því að sækja fram með áherslur á réttinda- og kjaramál launþega, skatta- og neyt- endamál og efla þannig samsvörun flokksins við baráttumál launþega í dag. Ekki veitir af. Til þess þurfum við samfylkingu með öðrum stjómar- andstöðuflokkum um þessa grundvall- arstefnu okkar, að efla og standa vörð um h'fskjör launafólks á íslandi. Það er framtíð Alþýðuflokksins í mínum huga. Sveinn Þór Elínbergsson Ólafsvík Framsetning- in hefur verið of tæknileg - kveðja úr Norðurlandi eystra Alþýðuflokkurinn, Jafnaðarmanna- flokkur íslands, stendur á merkum tímamótum. Alþýðuflokkur hefur, þrátt fyrir tiltölulega lítið kjöríylgi, verið afar áhrifamikill stjómmála- flokkur. Til hans má rekja flest hin stærri umbótamál í íslensku þjóðhfi. Það sem skortir um þessar mundir er að Alþýðuflokkurinn skýri stefnu sína með nákvæmum hætti. Framsetningin hefur verið of tæknileg og flókin og því hefur Alþýðu- flokkurinn ekki virst nægjanlega trúverðugur fyrir kjósendur. Hlut- verk Alþýðuflokks- ins í íslenskum stjómmálum nú sem fyrr, er að verja lífskjör al- mennings í landinu. Því þarf stöðugt að halda á lofti á mæltu máli. Takist það er bjart framundan fyrir Al- þýðuflokkinn og íslenska þjóð. Sigbjörn Gunnarsson, Akureyri Verðum að stórauka innra starfið - kveðja frá Vestfjörðum Nauðsyn á sterkum og öflugum Al- þýðuflokki - Jafhaðarmannaflokki Is- lands ætti að vera öllum ljós þegar haft er í huga að róttækar umbótahug- myndir hans em ekki einu sinni á dag- skrá annarra flokka. Skoðanakannanir sýna að við emm að vinna á. Eftir undangengnar hremm- ingar er ljóst að við verðum að stór- aúka og bæta innara starfið. Sérstaka ánægju vekur hversu margt áhugasamt ungt fólk hefur gengið til liðs vð Alþýðuflokkinn - Jafnaðar- mannaflokk íslands. Það er okkar framtíð. - Framtíð Islands Kristín Jóh. Björnsdóttir, Patreksfirði Við eigum því láni að fagna að geta aflað raforku með vatnsafli. Það veldur ekki loftmengun og eyðist ekki þó af sé tekið. Landsvirkjun kappkostar að vinna að nýtingu þessarar auðlindar í sátt við umhverfið þjóðinni til heilla. Óbeisluð umhverfisvæn orka Islands er meira en tíföld sú orka sem Islendingar nýta nú til raforkuvinnslu og eru orku- lindirnar stærsta ónýtta auðlind landsins. Ódýr um- hverfisvæn orka verður hér eftir sem hingað til undir- staða góðra lífskjara og ffamfara á öllum sviðum. Landsvirkjun hefur haft forystu um að stuðla að aukinni nýtingu orkulinda landsins jaínt til almennra nota sem orkufreks iðnaðar. Fyrirtækið framleiðir nú rúmlega 90% alls rafmagns á Islandi og flytur það og selur í heildsölu til almenningsrafveitna á sama verði um land allt. Það er metnaður Landsvirkjunar að sjá landsmönnum öllum fyrir sem bestri þjónustu á sem hagkvæmastan hátt. c Landsvirkjun

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.