Alþýðublaðið - 15.03.1996, Blaðsíða 11
FOSTUDAGUR 15. MARS 1996
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 11
Allsherjaratkvæðagreiðsla um
brottvikningu Héðins Valdimars-
sonar á sambandsþingi í dag
Brottvikning Jafnaðarmannafélagsins staðfest í gær með 98 atkvæðum gegn 9
og Alþýðuflokksfélag Reykjavíkur samþykkt í sambandið með 115 atkv. gegn 8.
23. október 1938. Aðaltíðindin á
Alþýðusambandsþinginu í gær voru
þau, að staðfest var brottvikning Jafn-
aðarmannafélags Reykjavíkur úr Al-
þýðusambandinu með 98 atkv. gegn
8. Þá mætti Héðinn Valdimarsson á
þingfundi í gærkveldi kl. 8 1/2 sam-
kvæmt boði þingsins, til að taka þátt í
umræðum þess um brottvikningu
hans, en hann gafst upp við allar vam-
ir og reyndi ekki að mótmæla skýrslu
sambandsstjórnar um brottvikningu
hans og vék af fundi eftir að hafa flutt
fárra mínútna ræðu, sem ekkert hafði
ÁBYRGA
STJÓRNÍ
ANDA
JAFNRÉTTIS
25. apríl 1987. Fyrr í vetur sýndu
skoðanakannanir að þjóðin kann vel
að meta hið nýja andlit Alþýðuflokks-
ins og þá sókndirfsku og þann fram-
farahug sem Jón Baldvin Hannibals-
son er tákn fyrir.
í því moldviðri sem auglýsingag-
lamur kosningabaráttunnar og hinn
mikli fjöldi framboða hefur þyrlað
upp, hafa allar línur orðið til muna
óskýrari og sennilega hafa niðurstöður
kosninga aldrei verið óvissari en nú. I
þessum kosningum getur allt gerst.
Engu að síður hafa niðurstöður
skoðanakannana að undanfömu gefið
sterklega til kynna að Jón Baldvin geti
verið í fallhættu í þriðja sæti Alþýðu-
flokksins í Reykjavík. Slíkt megum
við ekki láta gerast. Láttu ekki þitt at-
kvæði vanta. Við skulum öll leggjast á
eitt til að gera kosningasigur Alþýðu-
flokksins sem stærstan. Það getur oltið
á þínu atkvæði.
Og þar með, hvort við fáum starf-
hæfa ríkisstjóm - ÁBYRGA STJÓRN
í ANDA JAFNRÉTTIS - eftir kosn-
ingar.
DapuHeg
■ ■ ■ ■ ■
orlog
19. apríl 1956. Örlög Hannibals
Valdimarssonar em orðin svo dapur-
leg, að hann fer vestur á Isafjörð til að
berjast gegn fyrri samherjum sínum
og á þeim móttökum að fagna, að rót-
tækustu menn Alþýðuflokksins for-
dæma athæfi hans, en íhaldið klappar
fyrir honum og kommúnistar fylgja
h o n u m
heim.
Tilgangur-
inn með
þessu brölti
er sá, að
samfylking
A 1 þ ý ð u -
flokksins og
Framsóknar-
flokksins
veikist í bar-
áttunni við
íhaldið og
erfiðara verði að gera að veruleika
þann draum, sem Hannibal Valdi-
marsyni hefur verið hugstæðastur á
liðnum árum. Kommúnistar halda, að
þeim líði skár í einangruninni, ef
íhaldið sleppur við stóráfall. Og þetta
eru mennirnir, sem þykjast vilja al-
þýðustéttunum vel! Hannibal Valdi-
marsson er gerður að viðundri til að
þjóna hagsmunum kommúnista og
hjálpa íhaldinu, en það fer saman eins
og fyrri daginn.
Hannibal
Valdimarsson.
■ Ræða Gylfa Þ. Gíslasonar á aðalfundi Alþýðuflokksfélagsins
Valdatímabil verkamanna og bænda
á nú að hefjast og tímabili flokks
braskara og auðkýfinga að Ijúka
Ný viðhorf hafa myndazt með samfylkingu Alþýðuflokksins og Framsóknarflokksins
24. apríl 1956. „Kosningamar í sum-
ar verða hinar þýðingarmestu sem háð-
ar hafa verið í áratugi. Ný viðhorf hafa
myndazt með samfylkingu verka-
manna og bænda, Alþýðuflokksins og
Framsóknarflokksins. Línurnar hafa
aldrei verið eins skýrar og nú. Gamla
flokkaskipunin, sem myndaðist í raun
og vem í fyrra stríði, hefúr raskast, við
stefnum að nýjum tímum. Fólk á að
velja milli tveggja fyUdnga: Samfylk-
ingar verkamanna og bænda - og Sjálf-
stæðisflokksins."
Dr. Gylfi Þ. Gíslason mælti meðal
annars á þessa leið í ræðu þeirri, sem
hann flutti á aðalfundi Alþýðuflokks-
fél. Reykjavíkur, er hann gerði grein
fyrir stjórnmálaviðhorfinu nú eftir
samningana við Framsóknarflokkinn
og flokkssvikum Hannibals Valdimars-
sonar.
Þá rakti hann helztu atriði stefnu-
skrárinnar og sagði síðan: „Valið á ekki
að reynast erfitt. Það er um tvær meg-
infylkingar að ræða og ekkert annað.
SamfyUdng bænda og verkamanna og
íhaldið. íhaldið hefur að vísu við tvær
hækjur að styðjast í kosningunum.
Konunúnistahækjuna og þjóðvamar-
hækjuna, það þýðir ekkert að blekkja
almenning lengur. Kommúnistahækjan
hefur verið máluð og settur á hana nýr
hólkur, en hún mun reynast léleg fýrir
íhaldið, lélegri en nokkum gmnar nú,
því að kommúnistar hafa stórtapað
fylgi út um allt land og þjóðvarnar-
hækjan er svo lítil, aðeins sprek sem
mun brotna undan þunga íhaldsins."
Gylfi Þ. Gíslason: „Valið á ekki að
reynast erfitt. Það er um tvær meg-
infylkingar að ræða og ekkert ann-
að. Samfylking bænda og verka-
manna og íhaldið."
Stefán Jóhann Stefánsson. Það var
hann, sem átti frumkvæðið að or-
lofsfrumvarpinu.
Frumvarp Al-
þýðuflokksins
um orlof afgreitt
sem lög
Öllum, er vinna í þjónustu
annarra tryggt minnst 12
daga orlof á ári
ll.febrúar /943Frumvarp Al-
þýðuflokksins um orlof var afgreitt
sem lög frá alþingi í gær. Með sam-
þykkt þessara laga hefir öllum
verkamönnum og sjómönnum verið
tryggt minnst 12 daga orlof á ári
með fullu kaupi og má telja, að með
samþykkt laganna markist nokkur
tímamót í baráttu alþýðunnar fyrir
auknu frelsi og vaxandi menningar-
lífi.
Hér er um að ræða verulegan sigur
Alþýðuflokksins og alþýðunnar í
landinu. Eru lögin um orlof fyrir
verkalýðinn í landinu mikilsverður
auki við félagsmálalöggjöf, en Al-
þýðuflokkurinn hefur átt langmestan
þáttinn í sköpun hennar, eins og kunn-
ugt er.
■ Stjómarskrármálið
Afturhald og
veimiltítu-
háttur
22.maí 1933. Stjórnarskrármálið
var sjálft á dagskrá neðri deildar, en
var tekið út og er það á dagskrá í dag.
Verður þá greitt m.a. atkvæði um hina
merku tillögu Alþýðuflokksmanna um
landlista í sambandi við almennu kjör-
dæmakosningamar. - Málið er nú til
3. umræðu og nálgast nú lausn. -
Verður sú lausn áreiðanlega ekki full-
nægjandi, en þó vonandi betri en eng-
in.
Er þófið um stjómarskrármálið orð-
ið afar-dýrt þjóðinni, og er þar um að
kenna afturhaldi og þröngsýni Fram-
sóknarmanna og veimiltítuhætti og
tvískinnungi íhaldsmanna í sókninni
fyrir framgangi málsins.
inni að halda annað en nokkur af þeim
slagorðum sem blöð kommúnista hafa
flutt undanfamar vikur.
Vakti þessi frammistaða H.V. mikla
undrun og skildu menn ekki til hvers
hann yfirleitt hafði tekið boði þingsins
um að mæta. Þjóðviljinn gaf í gær
mjög eftirtektarverðar skýringar á
hinni nýju flokksstofnun Héðins og
kommúnista. Hann er ekkert myrkur í
máli við nýliðana, Héðin og fylgis-
menn hans, sem nú verða formlega
innbyrtir í hóp kommúnista.
Jafnvel nú þegar, áður en flokkur-
inn er stofnaður, er Héðinn orðinn svo
ánetjaður, að óþarfi er að gera nokkrar
gælur við hann. „Þú skalt karl minn,“
segja kommúnistarnir nú, - ganga í
flokk að hinni nýju tegund eftir íyrir-
mynd Bolsévíkaflokksins rússneska.
Kommúnistaflokkurinn verður að
vísu lagður niður, EN ÞAÐ VERÐ-
UR KOMMÚNISTAFLOKKUR,
SEM VERÐUR STOFNAÐUR“!
Vakti frammistaða Héðins Valdi-
marssonar mikla undrun og skildu
menn ekki til hvers hann yfirleitt
hafði tekið boði þingsins um að
mæta.
■ Jóhanna Sigurðardóttir segir af sér ráðherradómi vegna
skoðanaágreinings við formann Alþýðuflokksins
Er alls ekki hætt í pólitík"
Verð að virða þá niður-
stöðu flokksþingsins, að
þar var Jóni Baldvini veitt
umboð til formennsku...
Styð ríkisstjórnina til allra
góðra verka."
22. júní 1994. ,JÉg er alls ekki hætt
í pólitík," sagði Jóhanna Sigurðardótt-
ir á fréttamannafúndi í gær, þegar hún
tilkynnti afsögn sína sem félagsmála-
ráðherra. Hún svaraði því aðspurð að
hún mundi í framtíðinni hafa ágæt
tækifæri og sín áhrif til að veija vel-
ferðarkerfið innan þingflokks Alþýðu-
flokksins. Þar mundi hún starfa sem
þingmaður og skoða mál eins og þau
kæmu fyrir og gera sitt til að vinna
skoðunum sínum brautargengi.
„Eg verð að virða þá niðurstöðu
flokksþingsins, að þar var Jóni Bald-
vini veitt áframhaldandi umboð til for-
mennsku. Ég mun bíða og sjá hvað
setur og styð ríkisstjórnina til allra
góðra verka.“
Hún neitaði því sem haldið hefur
verið fram að ágreiningur þeirra Jóns
Baldvins væri persónulegur en ekki
málefnalegur. Hér væri um viss
grundvallaratriði að ræða. Hún biði
þess nú að flokkurinn ynni í samræmi
við þá stefnu sem var ákveðin á
flokksþinginu.
Jóhanna Sigurðardóttir sagðis myndu starfa áfram sem þingmaður innan
Alþýðuflokksins.