Alþýðublaðið - 15.03.1996, Blaðsíða 10
10 ALÞÝÐUBLAÐIÐ
FOSTUDAGUR 15. MARS 1996
■ Afstaða Alþýðuflokksins til stjórnar Framsóknarflokks
Alþýðuflokkurinn veitir
stjóminni hlutleysi
26. ágúst 1927. Hinn 23. þ.m. snéri Tryggvi Þór-
hallsson sér til stjómar Alþýðusambandsins og spurðist
fyrir um afstöðu Alþýðuflokksins til væntanlegrar
stjórnar, er Tr. Þ. myndaði af hálfu „Framsóknar“-
flokksins.
Af tilefhi þessu samþykkti sambandsstjómin á fundi
sama dag svofellda ályktun:
„Þrátt fyrir það, að sambandsstjómin telur það miður
ráðið og ekki samkvæmt venjulegum lýðræðisreglum
að kalla ekki saman þing til þess að mynda ráðuneytið,
lýsir hún yfir því, að hún telur ekki rétt að spyma fæti
við því, að Framsóknarflokkurinn myndi stjóm eins og
komið er. Ákveður því sambandsstjómin að láta hlut-
lausa fyrst um sinn stjóm, sem Tryggvi Þórhallsson
myndar, og felur þingmönnum Alþýðuflokksins, þeim,
sem hér em staddir, að lýsa yfir þessu við Tryggva Þór-
hallsson, svo fljótt, sem þykir hlýða.“
Samkvæmt þessu afhentu svo þingmenn Alþýðu-
flokksins, þeir, sem staddir eru hérlendis, í gær
Tryggva Þórhallssyni hlutleysisyfirlýsingu.
Alþýðuflokkurinn hefur engin skilyrði sett fyrir hlut-
leysi sínu og engin áhrif haft á mannaval í ráðuneytið, enda er loforðið um hlut-
leysi alls ekki tímabundið.
Þingflokkur Alþýðuflokksins. Sigurjón Á. Ólafsson, Jón Baldvinsson, Har-
aldur Guðmundsson, Erlingur Friðjónsson og Héðinn Valdimarsson.
Jón Baldvin kjörinn formaður
-á flokksþinginu um helgina
20. nóvember 1984. Jón Baldvin
Hannibalsson, alþingismaður, var
kjörinn formaður Alþýðuflokksins á
flokksþinginu, sem fram fór um helg-
ina. í kosningum til formanns hlaut
Jón Baldvin 142 atkvæði, 58,9 prósent
greiddra atkvæða, en Kjartan Jóhanns-
son, alþingismaður, hlaut 92 atkvæði,
eða 38,2 prósent greiddra atkvæða.
Jóhanna Sigurðardóttir, alþingis-
maður, var kjörin varaformaður
flokksins með 226 atkvæðum, fékk 97
prósent greiddra atkvæða.
Loft var lævi blandið í troðfullum
Kristalssal Hótels Loftleiða, þegar
kosning til formanns flokksins fór
fram um fimm leytið sl. laugardag.
Eftir að þingforseti, Finnur Torfi Stef-
ánsson, hafði lýst niðurstöðum kosn-
inga, hylltu flokksþingsfulltrúar vel og
lengi nýkjörinn formann flokksins,
Jón Baldvin Hannibalsson. Þá var frá-
farandi formanni, Kjartani Jóhanns-
syni, ekki síður fagnað.
Jón Baldvin og Kjartan Jóhannsson koma til þings.
Börnin
25. nóvember 1919. Það verður
aldrei ofsögum sagt af því, hve aum-
leg húsakynni, eru sem margur fá-
tæklingur verður við að búa í þessari
borg. Kjallaraholumar era það sem
verst er loftið í, í þeim er afskaplegt
sagga og fúaloft, ofan á þau óheil-
indi, sem orsakast af þrengslum í
þessum holum. Fjöldi bama verður
að lifa öll bamsár sín í þessum vist-
arverum, og ef hlýtt er lögum og
reglum sem settar eru, þá mega
börnin aldrei koma út fyrir dyr,
aldrei skriða upp úr holum sínum,
hvorki vetur né sumar, því í Lög-
reglusamþykktinni er bömum bann-
að að haldast við á almannafæri, og
þegar bömin mega ekki vera á al-
mannafæri, mega þau hvergi vera.
Alþýðutrygg-
ingarnarganga
ígildi ídag
Skrifstofur þeirra verða í
hinu nýja Alþýðuhúsi
1. apríl 1930. í dag, 1. apríl,
ganga lögin um alþýðutrygging-
ar í gildi. Er það því merkisdag-
ur í sögu þessa máls, sem háð
hefir verið hörð barátta um á
undanförnum árum.
Alþýðutryggingarnar munu
hafa tekið húsnæði á leigu fyrir
skrifstofur sínar í hinu nýja Al-
þýðuhúsi við Hverfisgötu, og
verða þær opnaðar þar um leið
og húsið er tilbúið.
Óskum Alþýðuflokknum til hamingju með 80 ára afmœlið
Æjí Flugleiðir innanlands Æjf Ramagnsveita Reykjavíkur
Glófaxi VE 300
^Rsí| Bandalaq ^jl" háskólamanna Starfsmanna- félagið Sókn
H8& Stjörnufiskur Patreksfirði
KsuBmnv*J /mAkfm
fWiiíMSm WV-.WJÍ/W/ TAXI
Trostan Bíldudal
Landssamband
lögreglumanna
Kennarasamband
íslands
ýfl Tollvarðafélag íslands
Patreksapótek Patreksfirði
Leikhúskjallarinn
SAMSKIP
HOLTABAKKA VIÐ HOLTAVEG
SÍMI 569 8300