Alþýðublaðið - 15.03.1996, Síða 19
FOSTUDAGUR 15. MARS 1996
8M0
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 19
■ Samtakaheild íslenzkrar alþýðu og hótunarbréf svonefndra „kommúnista".
Þarf ekki að óttast að
verkalýðurinn klofni
Kommúnistar í fjöldagöngu. Á spjöldum þeirra má meðal annars lesa:
„Lifi Stalín" og „Lifi Samband ungra kommúnista."
1. desember 1930. Á fundi sam-
bandsþingsins í fyrradag lagði Einar
Olgeirsson ffam eftir farandi ritsmíð:
„Þar sem meiri hluti fulltrúa Al-
þýðusambandsþingsins, þrátt fyrir
megnustu óánægju verkalýðs um alt
land með bræðings og stéttasamvinnu-
stefnu Alþýðusambandsstjómarinnar,
hefír fellt vantraust á sambandsstjóm-
ina og neitað að losa verkalýðshreyf-
inguna við yfrrráð sosialdemokrata á
hættulegustu baráttutímum við auð-
valdið, hefir enn fremur hafnað því að
segja sig samstundis úr 2. Intemation-
ale, ályktar vinstri armur verkalýðs-
hreyfmgarinnar áð brýna nauðsyn beri
til að skapa forystu fyrir verkalýðinn í
hinni harðvítugu stéttabaráttu, sem
ffarn undan er, með myndun Komm-
únistaflokks íslands."
Bréf þetta þarfnast engra skýringa.
Það er fullkomin hótun um að segja
sig úr lögum við samtakaheild hins ís-
lenzka verkalýðs, Alþýðuflokkinn, og
taka upp baráttu gegn honum. Hvort
alvara verður úr þessari hótun er óséð
enn.
Þeir 16 fulltrúar, sem nú kalla sig
„kommúnista" og ritað hafa undir hót-
unarbréf þetta, voru aðeins örlítill
minni hluti á sambandsþinginu, því að
um 80 fulltrúar frá nærfelt 40 félögum
og úr flestum sýslum landsins sátu
þingið. Og því fer mjög fjarri, að félög
þau, sem sent hafa suma þessara full-
trúa, séu þeim sammála. Er því engin
ástæða til að óttast, að samtakaheild
verkalýðsins klofni, þótt þessir fáu
menn og konur framkvæmi hótanir
sínar, en æskilegast væri að þessir
svokölluðu ,Jcommúnistar“ sæu að sér
og beygðu sig fyrir vilja meiri hluta
verkalýðsins í alþýðusamtökunum,
svo sem greinilega kom í ljós á þing-
inu, og gerðu eigi þann óvinafagnað
að stofna ,Jcommúnistaflokk“ til þess
að berjast gegn Alþýðuflokknum og
styrkja með því íhaldið og auðvaldið í
landinu.
■ Gylfi Þ. Gíslason
Það tókst að
halda þingsætinu
1. júlí 1974. Gylfi Þ. Gíslason
sagði: Alþýðuflokksmenn í Reykjavík
gleðjast að sjálfsögðu yfn því, að það
tókst að halda þingsætinu í Reykjavík,
þannig að Alþýðuflokkurinn starfar
áfram á þingi. Það urðu hins vegar
vonbrigði að ekki skyldi nást aftur
kjördæmakosinn maður í Reykjanes-
kjördæmi og að þingmönnum Al-
þýðuflokksins skuli fækka um einn.
En miðað við úrslit byggðakosning-
anna var niðurstaðan hagstæð. Samt er
augljóst, að flokkurinn er ekki búinn
að ná sér efitir það áfall, sem hann þá
varð fyrir, enda skammt milli kosn-
inganna.
■ Evrópska efnahagssvæðið
Samningurinn var undirrit-
aður í Oporto á laugardag
- þriggja ára samninga-
ferli lokið og beðið stað-
festingar einstakra ríkja.
Markmið okkar eru:
Að stuðla að því með lánveitingum og skipulagi
húsnæðismála og húsbygginga, að landsmenn geti búið við
öryggi í húsnceðismálum.
Að stuðla að jafnrétti í húsnæðismálum, þannig að
fjármunum verði sérstaklega varið til þess að auka möguleika
fólks til að eignast eða leigja húsnæði á viðráðanlegum kjörum.
Þetta eru þau markmið sem Húsnæðisstofnunin starfar að.
Þess vegna er hún ein af velferðarstofnunum þjóðfélagsins.
CXU HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
I I - vinnur að velferð í þágu þjóðar
mmm
Stjórn Alþýðuflokks, Sjálfstæðisflokks og Sósíalistaflokks. Emil Jónsson
samgönguráðherra, Finnur Jónsson, félags- og dómsmálaráðherra, Ólafur
Thors, forsætis- og utanrikisráðherra, Pétur Magnússon fjármálaráðherra,
Áki Jakobsson atvinnumálaráðherra og Brynjólfur Bjarnason mennta-
málaráðherra.
Nýja stjórnin
5. irmi' 1992. Fulltrúar 18 ríkja Evr-
ópubandalagsins og EFTA skrifuðu
undir samninginn um Evrópska efha-
hagssvæðið í Oporto í Portúgal á laug-
ardag. Jón Baldvin Hannibalsson
utanríkisráðherra ritaði undir samn-
inginn fyrir íslands hönd ásamt Hann-
esi Hafstein sendiherra.
f sameiginlegri yfirlýsingu þeirra
þjóða sem standa að EES segir að
með tilkomu Evrópska efnahagssvæð-
isins hefjist nýr kafli í samskiptum
Evrópubandalagsins og aðildarríkja
þess og EFTA-rikjanna, samtímis því
sem það sé mikilvægur þáttur í ný-
sköpun Evrópu.
Jón Baldvin Hannibalsson flytur ræðu við undirskrift samningsins.
4. nóvember 1944. STÓR TÍÐINDI
hafa gerst á sviði stjórnmálalífsins.
Eftir hér um bil tveggja ára utanþings-
stjóm hefur þinginu nú loksins tekizt
að mynda stjóm, sem hefur meirihluta
þingsins að baki sér. Standa að henni
þrír flokkar: Sjálfstæðisflokkurinn,
Alþýðuflokkurinn og Sósíalistaflokk-
urinn.
I því sambandi er rétt að taka það
hispurslaust fram, að Alþýðuflokkur-
inn hafði enga ástæðu til þess, að vera
sérstaklega óðfús til stjómarmyndunar
með þeim flokkum, sem sæti eiga í
hinni nýju stjóm ásamt honum. Annar
þeirra, Sjálfstæðisflokkurinn, er flokk-
ur stóratvinnurekendastéttarinnar í
landinu, sem frá upphafi hefur staðið
fastast gegn umbótastefnu Alþýðu-
flokksins; en hinum, Sósíalistaflokkn-
um, er stjómað af kommúnistum, sem
hingað til hafa boðað hér rótlausa, er-
lenda byltingarstefnu og alveg sér-
staka áherzlu lagt á það, að afflytja og
skaða Alþýðuflokkinn; og báðir Sjálf-
stæðisflokkurinn og Sósíalistaflokkur-
inn, hafa um langt skeið haft með sér
meira og minna náið samstarf, utan
þings og innan, á móti honum.
Alþýðusam
bandið endur-
skipulagt
19. nóvember 1940. Á Al-
þýðusambandsþingi í gær voru
samþykkt ný lög fyrir Aiþýðu-
samband íslands. Samkvæmt
lögum þessum verður Alþýðu-
sambandið samband íslenzkra
stéttarfélaga, án allra skipu-
lagstengsla við stjórnmála-
flokka. Allir félagar hafa kosn-
ingarétt og kjörgengi, án tillits
til stjórnmálaskoðana.