Alþýðublaðið - 15.03.1996, Síða 29
FÖSTUDAGUR 15. MARS 1996
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 29
Stjórn Stefáns Jóhanns
tók við völdum í gær
Flytur stefnuyfirlýsingu
sína á alþingi í dag
5. febrúar 1947. Hin nýja ríkis-
stjórn Stefáns Jóhanns Stefánsson-
ar tók við völdum á ríkisráðsfundi
síðdegis í gær, eftir að hin fráfar-
andi stjóm Olafs Thors hafði verið
leyst frá störfum.
Það er höfuðhlutverk ríkisstjómar-
innar, að vemda og tryggja sjálfstæði
manna og áframhaldandi velmegun og
að halda áfram og auka nýsköpun í ís-
lenzku atvinnulífi.
Þannig hljóðar upphafið að mál-
efnasamningi þeim, sem lagður hefur
verið til gmndvallar hinni nýju ríkis-
stjóm. En í málefnasamningnum er í
fyrsta sinn hér á landi gert ráð fyrir
þjóðarbúskap eftir fyrirfram saminni
áætlun til þess að tryggja áframhald-
andi nýsköpun atvinnulífsins, stór-
felldar byggingaffamkvæmdir til þess
að útrýma húsnæðisskorti og heilsu-
spillandi íbúðum um land allt og víð-
tækar ráðstafanir til fjái'öflunai', meðal
annars með eignakönnun og skyldu-
lánum, til þess að hin nýju atvinnu-
tæki geti orðið landsmönnum undir-
staða nægrar atvinnu og ömggra lífs-
kjara í framtíðinni.
Rikisstjórnin nýja á fundi með forseta íslands, talið frá vinstri: Bjarni
Asgeirsson, Eysteinn Jónsson, Stefán Jóh. Stefánsson forsætisráðherra,
Sveinn Björnsson forseti, Bjarni Benediktsson, Emil Jónsson og Jóhann
Þ. Jósefsson.
landsins, að koma í framkvæmd end-
urskoðun á stjómarskránni, að tryggja
góð og örugg lífskjör allra lands-
Vilmundur
Gylfason
genginn úr
Alþýðu-
flokknum
- boðaði framboð Banda-
lags jafnaðarmanna
20. nóvember 1982.Vilmundur
Gylfason hefur sagt skilið við Alþýðu-
flokkinn. Greindi hann ffá þessu á Al-
þingi síðastliðinn fimmtudag, er hann
kvaddi sér hljóðs utan dagskrár.
Sömuleiðis hefur hann boðað form-
lega stofnun Bandalags jafnaðar-
manna og lagt fram á Alþingi fyrsta
mál þessa væntanlega bandalags, en
það Qallar um aðskilnað löggjafar- og
ffamkvæmdavalds og um beina kosn-
ingu forsætisráðherra. í ræðu sinni
sagði Vilmundur m.a.:
„Það munu vera þinglegir siðir að
láta forseta sameinaðs Alþingis og
háttvirta alþingismenn um það vita, að
ég, fjórði þingmaður Reykvíkinga,
hefi með bréfi, dagsettu 18. nóvember
1982 til háttvirts annars þingmanns
Reyknesinga, Kjartans Jóhannssonar,
sagt skilið við minn gamla stjómmála-
flokk, Alþýðuflokkinn, og telst því
ekki lengur til þingflokks þess
flokks.“
Vilmundur sagðist enn vera í stjóm-
arandstöðu og að það væri fólksins
vegna sárt að skilja við sinn gamlá
flokk. „Við myndum bandalag gegn
flokkunum. Þetta er tilraun sem
kannski heppnast, kannski misheppn-
ast. Það verður að koma í ljós. Innan
tíðar verður lögð fram málaskrá og
nafnalisti miðstjórnar og enn síðar
verða framboð kynnt.“
Vilmundur Gylfason: „Viö mynd-
um bandalag gegn flokkunum.
Þetta er tilraun sem kannski
heppnast, kannski misheppnast."
Heildarlausn
í framleiðslu
auglýsingamerkinga
Prentun risastórra mynda er leikur einn
með staerstu tölvustýrðu bleksprautu-
prentvél landsins. Prentun beint af
tölvuskjaii tryggir skamman
framleiðslutíma, hagkvæm - „
verð og óendanlega
möguleika í fjöl-
breytni, litum og ^
stærðum.
Meðal þess sem tölvuprentarar okkar framleiða eru
veggspjöld af öllum stærðum og gerðum, strætóborðar,
seglborðar, veltiskilti, skilti af öllu tagi, bilamerkingar, merkingar í Ijósaskilti,
gluggamerkingar, leiktjöld og fieira.
Samhliða tölvuprentuninni býður Eureka aðra ifðbundna valko: í
framleiðslu auglýsinga, s.s. silkiprentun, skiltagerð, skurð á limstöfum, frágang
og uppsetningar.
Starfsfólk Eureka veitir allar nánari upplýsingar um verð og möguleika