Vísir - 22.06.1978, Blaðsíða 3
VISIR Fimmtudagur 22. júni 1978
ORKUSJODUR
GREIÐIR
ÁHVÍLANDI
SKULDIR
Formleg eignayfir-
færsla til Orkubús
Vestfjarða á eignum
Rafmagnsveitna rikis-
ins á Vestfjörðum hef-
ur farið fram. Er hér
um að ræða eignir sem
eru metnar á tæpa þrjá
miiljarða króna og
verða þær afhentar
skuldlausar að mestu.
Guðmundur H.
Ingólfsson stjórnarfor-
maður Orkubús Vest-
fjarða sagði i samtali
við Visi að þetta hefði
verið ákveðið I haust
þegar Orkubúið var
stofnað til þess að
tryggja rekstrargrund-
völl fyrirtækisins.
Þessar eignir eru stofn-
framlag rikissjóös til Orkubús-
ins. Um þriggja milljón króna
skuld hvfldi á þessum eignum
og hefur rikisstjórnin ákveöiö
að Orkusjóöur endurgreiði Raf-
magnsveitum ríkisins þær meö
þvf aö hann yfirtekur lán
RARIK vegna þessara eigna
sem nema sömu upphæö og
eignarveröiö.
Guömundur sagöi aö Orkubú-
ið myndi hins vegar gefa út 740
Guömundur H.
mynd:GVA
Ingólfsson Visi-
milljón króna skuldabréf til 13
ára til Orkusjóðs vegna þessara
skulda. Kjörin á þessu skulda-
bréfi yrðu þau aö greiddir væru
7,36% vextir á ári og bröfiö væri
visitölubundið upp að 500
milljónum.
Einnig er ætlunin aö Orkubúiö
yfirtaki eignir rikissjóös vegna
virkjana á Vestfjöröum en frá
þvi hefur ekki veriö gengiö enn-
þá. Er hér einkum um aö ræöa
eignir vegna Suðurfossárvirkj-
unar sem byrjað var á fram-
kvæmdum við á sinum tima en
hætt viö.
—KS.
VÍSITALA HÆKKAR
UM 57 PRÓStNT
Samkvæmt bráöabirgöatölum
er hækkun visitölu bygginga-
kostnaöar 57 af hundraöi á
timabilinu frá miöjum júnl i
fyrra tii júni I ár.
Er hér um einna mestu hækk-
un á byggingarvisitölu sem
oröið hefur á tólf mánaöa tima-
bili að ræða og vandfundiö ann-
aö jafnlangt timabil frá striös-
lokum með samsvarandi hækk-
un.
A sama tima áriö 1976 til 1977
nam hækkunin 24.3 af hundraöi.
Rétt er aö hafa I huga, aö rétt
upp úr miöjum júnl I fyrra uröu
miklar launahækkanir sem aö
nokru leyti valda þessari gifur-
legu hækkun, en sé aðeins tekiö
tillit til verölags, þ.e.
launahækkunum sleppt og þá
tekiö tlmabiliö frá júli 1977 til
júli 1978 verður hækkunin 43 af
hundraöi.
Akveönar tölur munu liggja
fyrir hjá Hagstofunni siðar I
dag.
—ÓM.
Mikil aukning
umferðarslysa
Mikii aukning hefur oröiö á
umferöarslysum fyrstu fimm
mánuöi þessa árs miöaö viö sama
timabil I fyrra. Þá uröu um-
feröaróhöppin 2335 en uröu i ár
2738, eöa 401 fleiri.
Alvarleg slys I umferöinni eru
einnig mun fleiri i ár en I fyrra
miðaö viö sama tima, eða 135 á
móti 176, eöa 41 fleiri. Er hér átt
við slys meö meiöslum. Bana-
slysin eru blessunarlega færri.
Fimm létust fimm fyrstu mánuöi
þessa árs, en tólf á sama tima s.l.
ár.
1 áðurnefndum 135 slysum meö
meiðslum i fyrra slösuöust
1976, en i ár hafa 258 slasast I
fyrrnefndum 176 slysum.
Malmánuður hefur hæstu
slysatölu meö meiöslum, og eru
áberandi slys á tvlhjóla ökutækj-
um, átta slösuöust á bifhjólum og
sex á reiðhjólum.
—Gsal.
Þessa krakka rákust Visismenn á fyrir utan félagsheimiliö á Reyöar-
firöi. Þau kváöust vera frá Fáskrúösfiröi og komin tii aö keppa viö
heimamenn. Fylkir nefnist Iþróttafélag Fáskrúösfiröinga en Valur liö
Reyöfiröinga.
mynd: JA
Indverskur
jógi
heimsœkir
ísland
Dada Karunanda< ind-
verskur jógi dvelst á is-
landi á vegum samtak-
anna Ananda Marga
fram til 30. júní. Hann
mun halda fyrirlestra um
andleg og þjóðfélagsleg
málefni á ráðstefnu
mannúðarsálfræðinga í
Reykjavík. Þá heldur
hann þrjá fyrirlestra um
sama efni fyrir almenn-
ing. Sá fyrsti verður í
fundarsal Laugavegi 42 3.
hæð mánudaginn 26. júní<
næsti að Þingvallarstræti
14 daginn eftir. Síðasti
fundurinn verður að
Hótel Esju fundarsal 2.
hæð fimmtudaginn 29.
júní.
SJALFSTÆÐI GEGN SOSIALISMA
ÚTIFUNDUR
SJÁLFSTÆÐISMANNA i REYKJAViK
Á LÆKJARTORGI
fimmtudaginn 22. júní kl. 18
DAGSKRÁ:
Fundurinn hefst með ávarpi Birgis ísl. Gunnars-
sonar, borgarfulltrúa, sem verður fundarstjóri.
Þá munu þau Geir Hallgrimsson, forsætisráðherra,
Pétur Sigurðsson, alþingismaður og Ragnhildur
Helgadóttir, alþingismaður, flytja stutt ávörp.
LÚÐRASVEITIN SVANUR
LEIKUR FRAKL. 17:30.
FRAM TIL SIGURS
X
ATVINNUÖRYGGI í STAÐ ATVINNULEYSIS X"