Vísir - 24.07.1978, Page 13
VISIR
Mánudagur 24. júli 1978
13
glœða lífið í miðbœnum'
■samt Gesti ólafssyni sótt um að reka útimarkað á Lœkjartorgi
„Mér llst nú bara vel á þetta”,
sagði Agúst Guðlaugsson. „Ég
hef einmitt veriö að hugsa um að
eitthvað þyrfti að gera til aö
glæða Hfið hérna i miöbænum. En
það þarf auðvitað aö passa vel
upp á ailan þrifnað I sambandi við
svona útimarkaði”, sagði Agúst.
Sigurjón Þóroddsson kaupmaður
I Aðalstrætisbúðinni var nú ekk-
ert yfir sig hrifinn af hugmynd-
inni. „Ef ég á aö segja eins og er
þá list mér nú bara illa á þetta,
svona markaður dregur aö sjálf-
sögðu úr verslun frá manni. Ann-
ars getur svo sem vel verið að
þetta lifgi upp á bæjarlifið”.
„Svona útimarkaður er alveg
bráönauðsynlegur fyrir bæjariif-
ið”, sagði Inga Guðmundsdóttir.
„Mér finnst nú lika að ef svona
markaöur verður settur á fót þá
veröi að hafa grænmetiö á þannig
verði aö venjulegt fóik geti keypt
þaö”, sagði Inga.
Marteinn Reynisson tók i sama
streng og Inga og taldi að svona
útimarkaður yrði til mikilla bóta
fyrir lifiö I miðbænum.
Hún var nú ekki eins ákveöin hún
Halldóra Thoroddsen sem var á
fleygiferð eftir Austurstrætinu.
„Mér finnst bara ekkert um þessa
hugmynd og get ekki tjáð mig
neitt um grænmetismarkaöi yfir-
leitt”.
Þær stöllur Valgeröur Jónsdótt-
ir og Asta Maria Þorkelsdóttir
voru I óða önn að borða is þegar
viö svifum á þær. „Okkur finnst
þetta stórsniðug hugmynd og
svona útimarkaður lifgar örugg-
lega upp á bæinn”.
A/klæðning er fáanleg í mörgum fallegum litum sem eru inn-
brenndir og þarf aldrei að mála.
A/klæðning er seltuvarin og hrindir frá sér óhreinindum.
Fáanlegir eru ýmsir fylgihlutir með A/klæðningu sem hefur þurft að
sérsmíða fyrir aðrar klæðningar, auk þess er hún þykkari og þolir
því betur hnjask. A/klæðning hefur sannað yfirburði sína,
og reynst vel í íslenskri veðráttu.
Leitið nánari upplýsinga og kynnist möguleikum A/ltlæðningar.
Sendið teikningar og við munum reikna út efnisþörf og gera verð-
tilboð yður að kostnaðarlausu.
„Ég er ekki I nokkrum vafa að
svona útimarkaöur myndi lifga
mikið upp á miðbæinn okkar og
væri ekki vanþörf á”, sagði Eva
Vilhelmsdóttir. „Ég held Hka aö
það væri ekki svo vitlaust að selja
á þessum markaði ýmsa smáhluti
til dæmis úr leöri ásamt græn-
metinu”, sagði Eva. —SE
INNKAUP HE
ÆGISGÖTU 7, REYKJAVÍK - SÍMI 22000 - PÓSTHÓLF 1012.
TELEX 2025 - SÖLUSTJÓRI: HEIMASÍMI 71400.
Sjóðheitir sumarleikir
í ferðalagið!
Bráðskemmtilegir útileikir fyrir alla fjölskylduna.ómissandi í ferðalagið.
Þrír saman í pakka á kr. 3.370- Fæst á helstu bensínsölum Esso.