Vísir - 08.09.1978, Side 2
Föstudagur 8. september 1978 visir
.2
Hvernig líst þér á
gengisfellinguna?
Eirikur Rúnar Sigurftsson
trúboði: ,,Hún er ólán. Hún
skapar erfiðleika. Fólkið i
landinu ætti að snúa sér til
Drottins af öllum mætti. Ef
það gerði það kæmi blessun
yfir landið.”
isleifur isleifsson: ,,Ég hef
nú litið vit á henni. Þetta á
vist að vera ráðstöfun til að
bæta efnahag þjóöarinnar.”
Erna Leósdóttir nemi: „Iss,
þetta er bölvuð vitleysa. Ég
held það þýði ekkert að gera
þetta."
Jason övarsson „Djókari”:
„Mér list bara vel á hana.
Annars held ég nú að engum
litist vel á hana.”
Willie Hanssen trúboði:
„Gengisfelling er aldrei góð.
Ég held að hún muni ekki
bæta efnahaginn hjá okkur
að neinu marki.”
ÁLIT BANKASTJÓRA Á
FÆKKUN RÍKISBANKA
t starfslýsingu rfkis- kerfið verði tekið til Visir leitaði álits Búnaðarbanka á þessu
stjórnarinnar segir endurskoðunar og bankastjóra rikisbank- atriði i starfslýsingunni
undir liðnum um hag- rikisbönkum fækkað i anna þriggja, Lands- og fara svör þeirra hér
ræðingarmál: „Banka- tvo”. banka, tJtvegsbanka og á eftir.
„Skiptar skoðanir
um hugmyndina"
• segir Stefán Hilmarsson, bankastjóri í
Stefán Hilmarsson bankastjóri i
Búnaðarbankanum.
Búnoðarbonkanum
„Þetta er stór spurning, og ég
veit ekki frekar en aðrir,
hvernig stjórnin ætlar sér að
haga framkvæmd þessarar
hugmyndar”, sagði Stefán
Hilmarsson þegar Visir lagði
fyrir hann spurninguna um
sameiningu bankanna.
Stefán sagði að hann gæti ekki
tjáð sig um þetta mál að svo
stöddu, „en þaö er hins vegar
ábyggilegt að skoðanir eru mjög
skiptar um það, hvort fækka
eigi rikisbönkum með samein-
ingu”, sagði Stefán Hilmarsson
bankastjóri I Búnaöarbankan-
um.
— AHO
„Til bóta
að einfalda
bankakerfið"
• segir Helgi Bergs, bankastjóri
í Landsbankanum
„Hugmyndin um að einfalda
rikisbankakerfið með þvi að
fækka rikisbönkunum f tvo er i
sjálfu sér athyglisverð, og
stefnir i rétta átt”, sagði Helgi
Bergs bankastjóri i Lands-
bankanum, þegar Visir innti
hann álits á sameiningu rfkis-
Helgi Bergs bankastjóri i
Landsbankanum.
bankanna, en I samstarfslýs-
ingu rikisstjórnarinnar segir að
þeim skuli fækkað i tvo.
„Hins vegar kemur ekki fram
I yfirlýsingu rikisstjórnarinnar,
með hverjum hætti það skuli
gert. Þegar þessi hugmynd kom
fyrst til umræöu fyrir nokkrum
árum, var taiað um að einfalda
kerfið með þvi að sameina tvo
minni rikisbankana, Otvegs-
bankann og Búnaðarbankann. i
yfirlýsingunni er ekkert minnst
á það og yfirleitt ekki rætt um
hvernig stjórnin hyggst standa
að þessu”, sagöi Heigi.
Helgi sagði að fyrirtæki yröu
nú sifellt stærri i sniðum og þvi
yrði æ erfiðara fyrir litla banka
að fást viö þau og veita þeim að-
stoð. „Þvi væri það til bóta, ef
bankakerfið yrði einfaldað með
þvi að sameina einhverja af
rikisbönkunum. Einnig er þess
að gæta, að i okkar bankakerfi
er mikið misvægi milli ein-
stakra banka. Hver þeirra hefur
sitt útlánasviö, sem nær mis-
jafnlega mikið tii einstakra at-
vinnugreina. Það veröur til þess
að útlánadreifing verður með
óeðlilegum hætti. Auk þess má
gera ráð fyrir, að af þessu veröi
sparnaöur I rekstri, að minnsta
kosti þegar til lengdar lætur.
Það verður þvi fróðlegt að fylgj-
ast með þvi, hvernig þessi hug-
mynd mótast og hvenig stjórn-
völd hyggjast hrinda henni i
framkvæmd”, sagöi Heigi
Bergs bankastjóri Landsbank-
ans.
— AHO
„Hlyntur
skipulags-
breytingum"
• segir Jónas Haralz, bankastjóri í
Landsbankanum
,,t tiu ár hafa verið uppi tillög-
ur um skipuiagsbreytingar 1
bankakerfinu, en þessu máli
hefur ekkert þokað i áttina, að
þvi er virðist vegna pólitiskra
erfiðleika”, sagði Jónas Haralz
bankastjóri i Landsbankanum,
þegar hann var inntur eftir
sameiningarmálum bankanna.
„Það er ekki hægt að hafa
neina skoðun á þvi hvaða
þýðingu þessi yfirlýsing hefur,
nema að vita nánar um það
hvernig rikisstjórnin ætlar að
framkvæma þetta atriöi, sem
hefur reynst svona örðugt”,
sagði Jónas Haralz.
Hann sagði að tillögur þessa
efnis hefðu komið frá Seðla-
bankanum fyrir tiu árum og
margir hefðu tekið undir þær,
og Landsbankinn hefði verið
hlynntur skipulagsbreytingum I
bankakerfinu. —KP.
„San banki leining nnna þró-
un í i rétta ótt"
• segir Jónas G. Rafnar, bankastjóri
í Útvegsbankanum
„Hugmyndin um sameiningu
rikisbankanna er upphafiega
byggðá áliti bankamálanefndar
sem skilað var I janúar árið
1973. Ég var sammála þviálitiá
sinum tima og siðan hefur ekk-
ert gerst til að breyta afstöðu
minni”, sagöi Jónas G. Rafnar
bankastjóri i Otvegsbankanum,
þegar leitað var álits hans um
sameiningu bankanna.
„Ég tei, að sameining bank-
anna væri þróun i rétta átt. Hún
gæti orðið til þess að útibúin
nýttust betur og myndi þvi leiða
tU rekstrarsparnaðar. Einnig
má nefna að útián til atvinnu-
veganna eru misjöfn á hverjum
tima. Stundum þarf meiri útlán
til landbúnaðar, stundum þarf
sjávarútvegurinn á auknum
lánum að haida. Það veldur
okkur f Otvegsbankanum erfið-
ieikum, að of stór hluti af útlán-
um okkar fara til sjávarútvegs-
ins, eða yfir 60 prósent. Að visu
eru þá endurseld lán i Seöla-
bankanum tekin með.
En að þvi er varðar stefnu-
yfirlýsingu rikisstjórnarinnar
er enn allt á huldu með, hvernig
hún hyggst taka á málinu. Fyrr
en það iiggur ljóst fyrir er aö
sjálfsögðu ekki unnt að taka af-
stöðu til áforma rikisstjórnar-
innar I þessum efnum”.
AHO/KP
Jónas G. Rafnar bankastjóri f
Otvegsbankanum.
Visismynd: JA
Jónas Haralz bankastjóri i
Landsbankanum.