Vísir - 08.09.1978, Síða 6
6
Óvenjuleg keppni...
Þaö var von á söng-
konunni Dolly Parton í
bæinn næsta dag, og
þar sem sj-á má marg-
ar konur i Ameríku
sem líkjast Dolly,
fengu starfsmenn út-
varpsstöðvar þá hug-
mynd aö efna til nokk-
urs konar Dolly Parton
keppni. Allar konur i
bænum sem líkjast
söngkonunni voru boð-
aðar á vettvang, og
mættu tuttugu og
þrjár. Allar hafa þær
sjálfsagt gert sér vonir
um verðlaunin sem sú
sem líkust er söngkon-
unni átti að hreppa.
Þeir sem að keppninni
stóðu ákváðu að
brjóstastærð skyldi
engu ráða um það hver
færi með sigur af
hólmi. (En þeir sem
séð hafa Dolly Parton,
t.d. i sjónvarpinu ekki
alls fyrir löngu, vita
sjálfsagt að þar um sig
er hún fremur mynd-
arleg.) Andlitið skyldi
vera númer eitt sögðu
þeir, og sú sem verð-
launin hreppti, er hár-
greiðslukona og heitir
Dianne Holler (önnur
frá hægri á meðfylgj-
andi mynd). Það var
erfitt að gera upp á
milli, sögðu þeir sem
dæmdu, en hvað um
það, Holler þessi fór
heim 250 dollurum rík-
ari.
Með 40 þúsund
býflugur skríð-
andi um sig alla
Olivia de Havilland
sem segist hreinlega
hafa andstyggð á bý-
flugum, varð að sætta
sig við 40 þúsund stykki
skriðandi yfir sig alla
fyrir kvikmyndina
,,The Swarm". Hún
kveið upptökunni ein-
hver ósköp en ákvað að
láta til skarar skríða.
Hún tók það fram að
sem krakki hafi hún
margoft verið stungin
af býflugum, sérstak-
lega i fætur þegar hún
gekk um berfætt, og
brást það ekki að fót-
urinn bólgnaði upp og
varð tvisvar, þrisvar
sinnum breiðari en
venjulega. En hún
harkaði af sér i upp-
tökunni, lagðist á
gólfið og beið 40 þús-
und býflugna. Þær
fengu síðan að skriða
yfir hana alla og allt
gekk vel, þar til ein tók
sig til og stakk hana i
handlegginn. En Olivia
lá kyrr og lét ekkert
frá sér heyra, enda gat
hún ímyndað sér hvað
gerðist ef hún færi að
æpa eða láta öllum ill-
um látum. Þá hefði
víst ekki verið um að
ræða aðeins eina
stungu öllu lengur....
C-vítamínið gerir
fœðinguna
auðvéldari
Dr. Robert S. Scott
prófessor við háskól-
ann í Suður-Kaliforníu,
heldur þvi fram að
stórir skammtar af C-
vítamíni geti gert það
að verkum, að auð-
veldara sé fyrir barns-
hafandi konur að fæða.
Hann segir að f leiri en
þúsund sjúklinga sinna
hafi reynt C-vítamín
kúrinn og árangurinn
haf i ekki látið standa á
sér. Hriðir gangi yf ir á
skemmri tíma, til
dæmis fimm eða sex
klukkustundum hjá
konum sem eru að
fæða i fyrsta sinn,
miðað við 15-16 klukku-
stundir sem oft er.
Fæðingin sjálf virðist
konunni auðveldara og
sársaukaminni og við-
komandi konur séu
jafnvel fljótari að ná
sér.
i Umsjón: Edda Andrésdóttir