Vísir - 08.09.1978, Page 7
i
Reiður vegfarandi
hafði samband við
blaðið út af eftirfar-
andi:
Mér brá heldur en ekki i brún
er ég.fyrir stuttu fékk sent bréf
frá lögreglustjóra þess efnis aö
ég skuldaöi 2000 krónur. Skuld
þessi átti aö vera tilkomin
vegna stöðumælasektar sem
ekki var greidd.
Bifreiðin min átti að hafa
staðið við Laugaveg þann 18.
ágúst og miðinn þvi settur á bil-
inn þann sama dag. Siðan veit
égekki fyrr en að tilmin er sent
bréf þar sem mér er tilkynnt aö
ég skuldi 2000 krónur.
Nú væri allt i lagi að borga
þessar 2000 krónur ef ég heföi
einhverntima fengiö miöa á bil-
inn minn.Ensökum þess aö svo
var ekki er ég staðráðinn i að
borga ekki þessa „skuld”.
Mér finnst þetta i hæsta máta
óeðlileg vinnubrögö og er næst-
um viss um að hér hafa einhver
mistök átt sér staö.
Bréfritari segist hafa fengið tilkynningu um stöðumælasekt án þess
að miði hafi veriö hengdur á bil hans.
Takk fyrir róð-
herrakynninguna
Lesandi skrifar:
Ég verð að fá að lýsa ánægju
minni meö þá ráðherrakynn-
ingu er Visir var með fyrir
stuttu. Visir gaf út sérstakan
blaðauka þar sem i voru viðtöl
við ráöherrana og maka þeirra
og fannst mér þetta óvenjuleg
og skemmtileg tilbreytni auk
þess sem þetta var heilmikill
fróðleikur.
Það gera sér ekki allir grein
fyrir þvi hvað svona efni er vin-
sælt ogmikið lesið. Fólk er ótrú-
lega mikið fyrir að kynnst hög-
um og áhugamálum háttsettra
manna.
Ég vona bara að Visir haldi
áfram á sömu braut. Ég hef
heyrtfjölda fólks tala um þessa
kynningu blaösins og hefur hún
hvarvetna mælst vel fyrir.
Að lokum vil ég þakka VIsi
fyrir þessar skemmtilegu grein-
ar.
Hin nýja rikisstjórn lslands.
Leigubílstjórar
eru frekjur
L.ó. skrifar:
Mér hefur undanfarið alveg
ofboðið sú frekja og það tillits-
leysi sem leigubifreiðastjórar
sýna i umferðinni. Þeir svina
fyrir bila miskunnarlaust. Aka
á vegum miöjum þar sem um
tvær akgreinar er aö ræða
hvorum megin. Þetta finnst mér
ekki hægt.
Og annað er það með þessa
frekjustétt: iöulega eftir að
dansleik lýkur i veitingahúsinu
Hollywood safnast þangað sam-
an fleiri tugir af leigubilum og
leggja þeir bilum sinum báðum
megin við götuna. Það þarf ekki
að spyrja að þvi að þetta er
ólöglegt en samt er það svo, fyr-
ir einhverra hluta sakir, aö lög-
reglan skiptir sér aldrei af þess-
um mönnum. Þetta finnst mér
mjög undarlegt sökum þess að
leigubilarnir trufla umferðina
með þvi aö leggja þarna og
þetta hefur mikla hættu i för
með sér. Það er oft þannig um
helgar að þaö er vart hægt að
mætast við veitingahúsiö.
Ég vona að þessar miklu
frekjur og mikilmenni fari aö
virða Islensk umferðarlög. Það
gera þeir yfirleitt ekki. Þeir
hljóta að þurfa að gera þaö eins
og aðrir.
7
SANS SOUCIS
snyrtivörur
Viðurkennd og vel þekkt þýsk gæðavara, sem nýtur
mikilla vinsælda hér. All fjölbreytt snyrtivörulína
fyrir allar húðgerðir framleidd úr bestu hráefnum
við bestu skilyrði. Sérstaklega eru hin ýmsu húð-
krem viðurkennd og vinsæl hér sem annarsstaðar.
Verð fremur hagstætt.
Einnig aðrar snyrtivörur, t.d.:
CKristian Dior Ow4n(|fuLifi jnmrrotiwy
Rpc maxFactor phyris REVLON
LÍTIO INN OG lÍTIO Á
LAUGAVEGS APOTEK
snyrtK'örudeikl
Blómaskáli
Paul Michelsen
Það eru ekki orðin tóm
ætla ég flestra dómur verði
að frúrnar prísi pottablóm
frá Páli Mich. í Hveragerði.
Sýnishorn af verði blóma
frá Blómaskála Michelsen
Pálmar 1500
Cróton 1200-1500
Gúmmitré 1200-1500-1800
Burknar 950-1500
Hengiplöntur 1000
Monstera 1500
Diffenbakkia 1500
Koleus 750
Grœnmeti alltaf á lœgsta verði.
Landsins mesta úrval.
Mjög gott af spœnskum styttum.
Alls konar gjafavörur fyrir alla.
OPIÐ tíl kl. 6 e.h. alla daga
. v Smurbrauðstofan
t Á
BJORIMINIM,
Njálsgötu 49 — Simi 15105
1