Vísir - 08.09.1978, Síða 19
Föstudagur 8. september 1978
23
VÍSIR
Húsgangur Júns
og Bryndísar
Fyrir einum átta árum
komu þau hingað vestur
Jón Baldvin og Bryndís
að stofna menntaskóla á
isafirði/ þar sem enginn
slíkur var áður fyrir.
Komu þau vestur með
einn móköggul einsog
Húsavíkurjón.
í þeim köggli var
reyndar fólgin glóð bjart-
sýni og þrautseigju að
koma á fót menningar-
stofnun við góðar undir-
tektir alþýðu.
Skólinn var i fyrstu niður-
setningur i gamla barnaskólan-
um, þar sem kennslustofur eru
að visu enn svo og skrifstofur.
Myndarlegt heimavistarhús
hefur risið, en siðan ekki söguna
meir. Þar er ekki við þau hjón
að sakast.
Að hinu leytinu hafa þau átt
drýgstan hlut að gera tsafjörð
að menningarplássi ásamt með
þeim Sigriði og Ragnari H.
Ragnar i músikinni.
Þessar staðreyndir eru svo
augljósar að mér dettur ekki i
hug að rökstyöja málið. Aðrar
staðreyndir eru lika á almanna-
vitorði. Sumsé þær, að Jón og
Bryndis hafa verið á hrakhólum
með húsnæði alla tið siðan þau
komu vestur. Til marks um það
þá hefur Jón Baldvin ekki árætt
að opna bókakassa sina fyrr en
þau komu i Pólgötuna með bevis
uppá að menntamálaráöuneytiö
ætlaði að kaupa húsið. Lauk Jón
upp kössum sinum i þeirri full-
vissu að þau stöldruðu við nokk-
ura hrið. Nú á dögunum mátti
hann rifa niður hilluvirki sin er
hann haföi upp tildrað með ær-
inni fyrirhöfn og sjá fimmþús-
und bókum fyrir nýjum legstað i
pappakössum.
t stað þess að einbeita kröft-
um sinum aö undirbúningi nýrr-
ar vertiðar i andrúmslofti fastr-
ar búsetu og jafnvægi þess, sem
veit sig eiga tryggan samastað
hafa þau hjón i miöjum önnum
orðið að taka saman pjönkur
sinar og ryöja þeim út i gáma
Eimskipafélagsins. Þeir hafa
siðan verið fluttir út i óvissuna.
Þegar svo var komið málum
stóðu bréfaskiptin við ráðu-
neytið þannig að persónu-
gervingur menntamálaráðu-
neytisins Birgir Thorlacius,
sendi Jóni Baldvin nótu i föður-
legri tóntegund embættisvalds-
ins. og baö hann halda allri still-
ing'u þar við gáminn meö þvi
húsnæðisleysi hans væri mál
sérlega erfitt úrlausnar.
Raunar er það ekki ætlun min
að rekja hér húsgang Jóns og
Bryndisar á tsafirði. Þvi hafa
veriö gerð góð skil á öðrum
stööum. Hinsvegar er það fram-
koma ráðuneytisins i þessu máli
sem vert er að gefa gaum.
Sem titt gerist i málum sem
þessu, þegar einhver veit uppá
sig sökina er engu likara en hún
erfist þartil málið er komið i
óleysanlegan hnút. Enginn
hefur manndóm i sér til að
leiðrétta afglöpin af ótta við aö
stugga við heilögum kúm i
stjórn- og embættismannakerfi.
Er þeim hjónum raunar mikil
vorkunn eftir átta ára baráttu
að uppskera annað eins og þetta
af hálfu þeirra manna sem gerst
ættu að vita um menntunar-
ástand dreifbýlisins.
I stað þess að styðja það fólk
með ráðum og dáð sem kosið
hefur að starfa i fiskiplássi við
litla uppörvun hvunndagsins,
segir ráðuneytið þvi strið á
hendur. Um leið foragtar það
allt það starf sem unnið hefur
f
Finnbogi
Hermanns-
son skóla-
stjóri ó
Sóðavik
skrifar
veriö og gerir alla viöleitni skól-
ans tortryggilega.
Hér erum við reyndar komin
að mikilvægum punkti i um-
ræðunni, semsé hverslags stofn-
un menntamálaráöuneytiö er.
Eru menn þar almennt
meðvitaðir um þá baráttu sem
háð er á menningarlegum út-
kjálkum þessa lands? Gera þeir
sér almennt grein fyrir þeirri
nauðsyn að reka áróöur fyrir
mennt og menningu en ekki hinu
gagnstæða. Hafa þeir yfirleitt
einhverja tilfinningu frá degi til
dags fyrir þeim markmiðum
sem starf þeirra lýtur að?
Ef við ætlum að leysa dæmið
með þvi að nota formúluna um
Jón Baldvin veröur útkoman
neikvæð.
Með framkomu sinni hefur
stofnunin þegar lýst vanþóknun
sinni á uppbyggingu skólastarfs
á torfnesinu og þarmeð hróflað
við viðkvæmum gróöri á timum
mikillar yfirvinnu.
Þegar þessar linur eru festar
á blað er ekkert sýnna en þau
hjón hverfi á braut héðan úr
fjórðungnum ef allt gengur eftir
þvi sem á undan hefur gerst.
Að hinu ber að hyggja að
brottför þeirra hjóna af ísafirði
er ekki einkamál þeirra og
ráðuneytisins heldur mál sem
varðar alla Vestfiröinga. Og
vissulega saknar maður nú kyn-
borinna Vestfirðinga aö láta i
sér heyra eins og fyrir kosning-
arnar i vor þar sem boðuð var
vestfirsk þjóöernisstefna i há-
stemmdum ræðum.
Er ekki lika kominn timi til að
bæjarstjórn tsafjarðar og
Fjórðungssambandið fari að
ihuga hvaö til þeirra friðar
heyrir og sýni ráðuneytinu hvar
Davið keypti öliö.
Nýr bókafulltrúi í
menntamálaráðu-
neytinu
Kristin H. Pétursdóttir, yfir-
bókavörður við Borgarspital-
ann, hefur verið sett i starf
bókafulltrúa menntamálaráðu-
neytisins um eins árs skeiö.
Stefán Júliusson hefur gegnt þvi
starfi, en sagði þvi lausu frá 1.
sept. 1977. Menntamálaráðu-
neytið hefur skipað sérstaka
ráögjafanefnd um málefni al-
menningsbókasafna til fjögurra
ára. í nefndinni eiga sæti Jón Is-
berg og Finnur Sigurjónsson.
„Ekki" féll niður
Orðið ,,ekki” féll niður úr
setningu, sem höfð var eftir Jóni
G. Tómassyni, nýkjörnum for-
manni Sambands isl. sveitar-
félaga, i blaðinu i gær, og
breytti þaðalgjörlega merkingu
setningarinnar.
Rétt er setningin svohljoð-
andi:
„Embættismenn eru ekki
skoðanalausir um landsmál. Ég
lit hins vegar ekki á mig sem
fulltrúa neins stjórnmála-
flokks”, sagði hinn nýkjörni for-
maður Sambands isl. sveitar-
félaga, Jón G. Tómasson, skrif-
stofustjóri Reykjavikurborgar,
eftir aö lýst hafði verið kjöri
hans.
Ekki nœst sam»
komulag um nýtt
síldarverð
Fundir hafa verið haldnir i
yfirnefnd Verölagsráðs sjdv
arútvegsins. Fjallað er um
nýtt sfldar- og loðnuverö. Ekki
hefur náðst samkomulag enn
um nýtt verð.
—KP.
Skuttogarinn Engey.
Sölumet hjá Engey
Engey seldi 107 tonn af isuð-
um fiski i Hull i gærmorgun fyr-
ir 62.464 pund. Meðalverðið á
hvert kiló er þvi 340 krónur, sem
telst mjög gott. Helmingi afla
skuttogarans var landað i gær,
en ef sá afli sem landað verður i
dag selst eins vel, má búast við
nýju sölumeti hjá togaranum.
Nýr sveitarstjóri
í Ólafsvík
Jóhannes Pétursson bygg-
ingartæknifræðingur hefur
verið ráöinn sveitarstjóri i
Olafsvik. Jóhannes hefur starf-
að sem byggingafulltrúi i Ólafs-
vik s.l. 4 ár. —KP.
Faldur staðinn að
ólöglegum veiðum
Varðskipið Arvakur stóð vél-
bátinn Fald VE að ólöglegum
veiðum 35 milur innan við 12
milna fiskveiðimörkin á þriðju-
dagsmorgun. Faldur var við
veiðar innarlega á Skagafirði.
Báturinn var færður til hafnar
og við yfirheyrslur játuðu allir
skipverjar nema skipstjórinn.að
báturinn hefði verið að ólögleg-
um botnvörpuveiðum. Dómur
hefur ekki verið kveðinn upp i
málinu.
Byggingarverk-
takar á ísafirði
mótmœla
Félag byggingaverktaka á
Vestfjörðum hefur farið fram á
það viö formann félagsins að
hann mótmæli þvi aö Lands-
banki tslands skuli hafa samið
um smiöi einbýlishúss á Isafirði
við fyrirtækiö Armannsfell. Þaö
er Gunnar Þ. Lárusson
húsasmfðameistari, sem stend-
ur fyrir byggingunni, en hann er
verkstjóri hjá Armannsfelli.
Formaður félags byggingar-
verktaka segir i samtali við
Vestfirska fréttablaðið að ekki
hafi verið leitað til löggiltra
byggingaraðila á Isafirði um
byggingu hússins, heldur hafi
Gunnari Lárussyni veriö fengið
verkið. Með mótmælunum vilji
byggingarverktakar lýsa van-
þóknun sinni á þvi að opinberar
þjónustustofnanir skuli ganga
framhjá aðilum á tsafiröi á
þennan hátt. —KP.
Skotfœrum stolið
Brotist var inn á fjórum stöð-
um á Seltjarnarnesi sömu nótt-
ina eða i fyrrinótt. Meðal annars
var brotist inn i geymslu i húsi
við Tjarnarból og þaðan stolið
skotfærum, haglabyssu, riffli og
skotum.
Þá var einnig reynt að brjót-
ast inn i bilskúra á tveimur
stöðum við sömu götu og loks
var brotist inn i bil og þaðan
stolið ávisanahefti og skilrikj-
um. Mál þessi eru i rannsókn.
—EA.