Vísir - 08.09.1978, Síða 28
Bráðabirgðalög vœntanleg é morgun
TvöfaMa ferða-
maimagjakleyrB
• 7% tekjuskattsauki á hluta tekna • Eignaskattsauki á
einstaklinga og ffélög • Hœkkun vörugjalds á „munaðara
vörum" • Reglum um skráningu ffyrninga breytt
Gert er ráð fyrir i bráðabirgðalögum hvort lagt verður 10% álag á allan
rikisstjórnarinnar sem gefin verða út á gjaldeyrisskammtinn eða 20% á það
morgun, að ferðamannagjaldeyrir sem yrði umfram gamla skammtinn.
verði tvöfaldaður. Er ekki enn ljóst
1 bráðabirgðalögunum
er ennfremur gert ráð
fyrir 7% tekjuskattsauka
á tekjur einstaklinga og
hjóna.
Kemur hann á tekjur
einstaklinga fyrir ofan 2.8
milljónir og tekjur hjóna
yfir 3.7 milljónum.
Sérstakur eignaskatts-
auki verður og lagður á.
Verða 50% lögð á álagn-
ingu einstaklinga og 100%
á álagningu félaga. Þá
eru fyrirhugaðar ýmsar
auknar álögur á atvinnu-
rekstur ogkoma þær m.a.
fram i breyttum reglum
um heimild til skráningar
fyrningar.
Rikisstjórnin hyggst
leggja sérstakt vörugjald
á hljómflutningstæki,
hljómplötur, útvörp,
sjónvörp og fleiri vörur.
Vörugjald á þessum
vörum hefur veriði6% en
nú er áformað að það
verði á bilinu 24% til 30%.
Þessi skattur er lagður
á þessa vöruflokka þar eð
rikisstjórnin telur að hér
sé um munaðarvöru að
ræða, en i flokki þeirra
vara, sem taldar hafa
verið koma hér undir, eru
einnig snyrtivörur, ýms-
ar vörur til iþróttaiðkana
og hjólbarðar.
—ÓM.
Lœkka verslun-
arálagninguna
— 30% reglunni verður beitt,
segir Svavar Gestsson,
viðskiptaráðherra
Akveðið hefur verið að lækka versiunarálagningu
I kjölfar gengisfeilingarinnar eins og gert hefur ver-
ið yfirleitt þegar gengið hefur verið felit að þvi er
Svavar Gestsson viðskiptaráðherra tjáði VIsi i
morgun.
Svavar sagði að ýmis-
legthefði komið til tals i
þessum efnum en niður-
staðan hefði sem sagt
orðið sú að svokallaðari
30% reglu verði beitt. 1
þessari reglu felst að á-
lagning lækkar hlut-
fallslega sem nemur
70% af þeirri krónutölu
sem álagning hækkar
vegna hækkaðs inn-
kaupsverðs, en 30% af
þvi koma i hlut versl-
unarinnar. Þetta þýðir I
raun að þrátt fyrir
hækkað verð innfluttrar
vöru verður álagningin
hjá versluninni svo til
sú sama i krónutölu.-KS
Starfsmenn Landhelgisgæslunnar skoða hér
gömlu tækin sem Visir skýrði frá á dögunum að
hefðu fundist i mógröf við Borðeyri. Þau eru nú
geymd i skýli Gæslunnar. Sigurður Þorkelsson hjá
Landssimanum tjáði VIsi, að hér væri liklega um að
ræöa gamlan fjölsima frá Borðeyri. Tækin hafa þá
legiði jörðu I um 30 ár. Visismynd: JA.
Aukin saltfisksala
vegna togarakaupa
— rikisstjórnin beitir sér fyrir lánafyrirgreiðslu vegna
togarakaupa frá Portúgal
Rikisstjórnin hefur
ákveðið að beita sér fyrir
þvi að kaupendur
Portúgalstogaranna
tveggja fái lánafyrir-
greiðslu að upphæð um 47
milljónir islenskra króná á
hvort skip til að greiöa inn
á samning viö portúgalskar
skipasmiðastöðvar, að þvi
er Björgvin Guðmundsson
skrifstofustjóri i viðskipta-
ráðuneytinu sagði Visi i
morgun.
„Ætla að slá
heimsmetið"
„Égætla að reyna að
slá heimsmetið”, sagði
Ingvar Magnússon, sem
hér á myndinni gnæfir
yfir félaga sinn I Kjarr-
hólmanum i Kópavogin-
um.
Ingvar kvaðst hafa
æftsig á stultum slðustu
tvö árin. Þær, sem hann
er með á myndinni.eru
fjórir metrar á hæð.
„Heimsmetið er 6,40
metrarog ég ætla að slá
það”, sagði Ingvar. „Ég
á til stultur sem eru 5.40
á hæð, en ég ætla mér að
ganga á 7.40 metra
stultum fyrir jól”,
ESJ/Vísismynd: GVA.
Þessi ákvörðun er tekin
til að greiða fyrir saltfisk-
sölu til Portúgals. Björgvin
sagði að Sölusamband
islenskra fiskframleiðenda
hefði fengið vilyrði fyrir
þvi að Portúgalir keyptu af
okkur 10 þúsund lestir af
saltfiski sem ætti að af-
skipa fyrir septemberlok.
Aður var búið að semja um
8 þúsund lestir sem afskipa
átti I júli og ágúst. Þegar til
kom hefðu Portúgalir hins
vegar ekki tekiö á móti
nema um 4 þúsund tonnum.
SIF gerði þennan
viðbótarsamning i lok
ágúst og þá var ákveðið að
samningaviðræðum yrði
haldið áfram þegar ný
stjórn hefði verið mynduð á
Islandi að sögn Björgvins;
en við þyrftum aö selja á
Portúgalsmarkað um 20
þúsund lestir af saltfiski.
Hins vegar hefðu Portúgal-
ir gert það að skilyrði að
gengið yrði endanlega frá
togarakaupunum fyrst_KS
Meðvitundarlavs
Fjórtán ára piltur
varð fyrir bil á Akranesi
i gærkvöldi um klukkan
átta. Pilturinn var á
reiðhjóli þegar slysið
varö, á mótum Kirkju-
brautar og Akurgeröis.
Hann féll af hjólinu I
götuna og mun hafa
misst meðvitund. Pilt-
urinn var fluttur á
sjúkrahúsið á Akranesi
og lagður þar inn.
—EA
VÍSIR
SMÁAUCLÝSINCASÍMINN ER 86611
íSmáauglýsingamóttaka
:alla virka daga frá 9-22.
jLaugardaga frá 9-14 og
sunnudaga frá 18-22.