Morgunblaðið - 09.01.2001, Blaðsíða 6
FRÉTTIR
6 ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
SKÓLAHALD hófst í framhalds-
skólunum í gær eftir tveggja mánaða
langt kennaraverkfall. Búast má við
því að næstu vikur verði æði
strembnar hjá mörgum nemendum,
því lokapróf haustannar verða víða
haldin eftir tvær vikur og strax í
kjölfarið hefst næsta önn. Nokkur
munur er á skipulagningu skóla-
halds eftir skólum og skiptir þá
mestu hvort um er að ræða skóla
með áfangakerfi eða bekkjakerfi.
Skólarnir sem eru með áfangakerfi
þurfa að ljúka haustönn áður en vor-
önn hefst.
Nemendur í Fjölbrautaskólanum í
Breiðholti, þar sem áfangakerfi er,
mættu á fund skólayfirvalda klukkan
11 í gærmorgun en á honum var farið
yfir skipulagningu skólahalds það
sem eftir er af þessum vetri. Kennsla
samkvæmt stundaskrá hófst síðan
klukkan 13.15 og var ekki laust við
að greina mætti áhyggjusvip í andlit-
um nemenda enda aðeins tvær vikur
í próf.
Hugsa að margir
fái taugaáfall
„Þetta á eftir að verða ansi erfitt,“
sagði Hrund Jóhannsdóttir sem er á
3. ári á skrifstofubraut. „Ég var að
kíkja aðeins í bækurnar í gær, á
stærðfræðina, og ég man eiginlega
ekkert af þessu, þannig að maður
verður að byrja alveg upp á nýtt.“
„Ég hugsa að margir fá tauga-
áfall,“ sagði Unnur Stefánsdóttir,
sem er nú á snyrtifræðibraut eftir að
hafa útskrifast af hagfræðibraut.
„Ég sé fram á það að það verði alveg
vitlaust að gera í þessum mánuði.“
Unnur og Hrund sögðu að það
væri fínt að vera kominn aftur í skól-
ann. Þær sögðu að það hefði reyndar
mátt gefa nemendum einn dag til að
undirbúa sig, sérstaklega þar sem
margir nemendur skólans væru utan
af landi og ættu því erfitt með að
koma með stuttum fyrirvara.
Unnur sagðist í upphafi hafa gert
ráð fyrir um tveggja vikna verkfalli
en ekki tveggja mánaða. Hún sagðist
hafa átt von á því að verkfallið myndi
leysast í þessari viku en ekki í fyrra-
dag eins og raunin varð. Hrund
sagðist hins vegar alveg eins hafa
búist við því að verkfallið myndi
standa mun lengur eða langt fram
eftir vetri.
Unnur og Hrund sögðust báðar
lítið hafa lært í verkfallinu.Unnur
sagðist hafa nýtt tímann til þess að
vinna en Hrund sagðist aðeins hafa
unnið um helgar enda ekki búist við
löngu verkfalli í upphafi. Hún sagði
að í lok desember hefði hún verið
orðin ansi þreytt á þessu aðgerða-
leysi.
„Sólarhringurinn var alveg búinn
að snúast við, maður sofnaði ekki
fyrr en fjögur á nóttunni og svaf til
tvö á daginn,“ sagði Hrund.
Kennarar eiga eftir að setja
pressu á nemendur
Unnur sagði að það hefði hvarflað
að henni að hætta bara alveg í skól-
anum og byrja að vinna en foreldrar
hennar hefðu haldið henni við efnið.
Hrund sagði aftur á móti að það
hefði aldrei hvarflað að henni að
hætta.
Hjalti Axelsson, nemandi á 4. ári á
myndlistarbraut, sagði að það væri
dálítið skrýtið að vera aftur byrjaður
í skólanum eftir svona langt verkfall
en hann sagðist reyndar alltaf hafa
búist við löngu verkfalli. Hann sagð-
ist ekki hafa lært mikið í verkfallinu
enda verið í tveimur vinnum. Hann
sagði að næstu vikur yrðu því mjög
strembnar.
„Kennararnir eiga eftir að setja
pressu á nemendur að læra mikið og
þetta bitnar því fyrst og fremst á
okkur,“ sagði Hjalti.
Að sögn Hjalta kom aldrei til
greina að hætta alveg í skólanum.
Hann sagði að þetta væri lokaárið
hans og og að hann stefndi utan í
nám að því loknu.
Sverrir Teitsson, nemandi í 6.
bekk í Menntaskólanum í Reykjavík,
sagði að það væri ánægjulegt að vera
byrjaður aftur í skólanum. Hann
sagðist ekki hafa verið að vinna í
verkfallinu en nýtt tímann til að fara
yfir námsefnið, skrifað ritgerðir og
unnið ýmis verkefni fyrir vorönnina.
Þá sagðist hann einnig hafa tekið 7.
stigspróf á selló.
Vann á hverjum
degi í verkfallinu
Sverrir sagðist ekki vera hlynntur
verkföllum en taldi þó mikilvægt að
kjör kennara yrðu bætt. Hann sagði
að verkfallið ætti eftir að koma niður
á nemendum og að þeir sæju fram á
erfiða vorönn. Aðspurður sagðist
hann ekki þekkja neinn í MR sem
hefði hætt í skólanum vegna verk-
fallsins.
Eva Björk Rúnarsdóttir, nemandi
á 3. ári í Kvennaskólanum í Reykja-
vík, sagðist hafa unnið á hverjum
degi í verkfallinu. Hún sagðist telja
að verkfallið ætti eftir að hafa áhrif á
námsárangur nemenda og að eflaust
ættu einkunnir flestra eftir að
lækka. Eva Björk sagðist styðja
launabaráttu kennara og að þeir
ættu skilið launahækkun vegna þess
að þeir ynnu eitt mikilvægasta starf-
ið í landinu. Aðspurð sagðist hún
ekki vita um neinn sem hætt hefði í
skólanum í verkfallinu en segist þó
viss um að einhverjir hafi gert það.
Framhaldsskólanemar mættu í skólann í gær eftir tveggja mánaða verkfall
Nemar búast við
erfiðum vetri
Morgunblaðið/Rax
Þær Hrund Jóhannsdóttir og Unnur Stef-
ánsdóttir, nemendur í FB, sögðu að næstu
vikur yrðu erfiðar.
Morgunblaðið/Rax
Hjalti Axelsson, nemandi í Fjölbrautaskól-
anum í Breiðholti, sagði að verkfallið bitn-
aði fyrst og fremst á nemendum.
Morgunblaðið/Ásdís
Sverrir Teitsson, nemandi Menntaskólan-
um í Reykjavík, sagðist hafa farið yfir
námsefnið í verkfallinu.
Morgunblaðið/Ásdís
Eva Björk Rúnarsdóttir, nemandi í
Kvennaskólanum í Reykjavík, sagðist ekki
vita um neinn sem hefði hætt í skólanum.
KENNARAR í Fjölbrautaskól-
anum í Breiðholti voru í gær
ánægðir með að vera komnir til
starfa eftir langt verkfall. Kristín
Arnalds skólameistari sagði að
hljóðið væri almennt gott í kenn-
urum og að þeir væru jákvæðir á
að það tækist að bjarga skólaárinu
fyrir horn. Hún sagði að það væri
ekki gott að segja til um það
hvaða áhrif verkfallið myndi hafa
á skólastarfið, en að svo hefði
virst sem flestir nemendanna
hefðu komið aftur í skólann í gær.
Kristín sagði að tíu kennsludag-
ar yrðu notaðir til þess að ljúka
haustönninni. Hún sagði að prófin
myndu standa yfir í sjö daga og að
fyrsta prófið yrði laugardaginn
20. janúar. Hún sagði að í byrjun
febrúar yrði frí í viku, því gera
þyrfti nýjar stundatöflur fyrir
nemendur.
Vorönnin hefst þann 8. febrúar
og sagði Kristín að hún myndi
standa út maímánuð en kennt
verður á öskudag og sumardaginn
fyrsta og þá verður dymbilvikan
nýtt í kennslu og páskafríið því
stytt.
Reikningarnir fara ekki í frí
Magnús Ingvason, kennari í
Fjölbrautaskólanum í Breiðholti,
sagði að það væri mjög gott að
vera kominn til vinnu á ný eftir
verkfall, sem hann sagði að hefði
verið alltof langt. Hann sagðist
hafa verið bjartsýnn á að verk-
fallið yrði stutt, rétt áður en það
hefði hafist í nóvember, en annað
hefði komið í ljós.
„Þetta er skelfilegt fyrir nem-
endur því þegar verkfall er svona
langt þá hefur það áhrif, en von-
andi tekst að gera gott úr þessu,“
sagði Magnús. „Ég held að þetta
ætti að ganga og að í vor þegar
útskrifað verður standi menn
svona sæmilega sáttir.“
Magnús sagðist sjálfur ekki hafa
haft efni á því að vera í tveggja
mánaða verkfalli og því hefði
hann orðið sér úti um aukavinnu.
Hann sagði að þessi tími hlyti að
hafa verið erfiður fyrir flesta
kennara og þá ekki síst fjárhags-
lega yfir hátíðarnar. Hann sagði
að þetta hefði þó örugglega verið
erfiðast fyrir þá kennara sem
væru í sambúð, því í þeim tilfellum
hefðu báðir aðilar verið í verkfalli.
„Það hlýtur að hafa einhver
áhrif á heimili að hafa ekki tekjur
í tvo mánuði. Reikningarnir fara
ekki í frí.“
Torfi Magnússon, kennari í Fjöl-
brautaskólanum, sagði að það
væri skemmtilegt að vera mættur
aftur til vinnu. Hann sagðist hafa
búist við því við upphaf verkfalls-
ins að það yrði annað hvort örstutt
eða langt, en sagðist þó engan
veginn hafa búist við tveggja mán-
aða löngu verkfalli.
„Það er gott að þetta er yf-
irstaðið,“ sagði Torfi. „Það er von-
andi að sem flestir nemendur mæti
í skólann, en maður alltaf hrædd-
ur um að það verði eitthvert brott-
fall eftir svona langt verkfall.“
Að sögn Torfa hafði hann nóg
að gera í verkfallinu við þjálf-
unarstörf, en auk þess að kenna
þjálfar hann úrvalsdeildarlið Vals/
Fjölnis í körfuknattleik.
Vongóðir um að
það takist að
bjarga skólaárinu
Morgunblaðið/Rax
Magnús Ingvason kennari sagði að það væri gott að
vera kominn til vinnu á ný eftir alltof langt verkfall.
Morgunblaðið/Rax
Torfi Magnússon kennari sagðist engan veginn hafa
búist við tveggja mánaða löngu verkfalli.
Morgunblaðið/Rax
Kristín Arnalds, skólameistari í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti, greindi nemendum frá námsáætlun vetrarins
á fundi í hátíðarsal skólans í gærmorgun.
Kennarar í FB voru ánægðir
að vera komnir til starfa á ný