Morgunblaðið - 09.01.2001, Blaðsíða 50
KIRKJUSTARF
50 ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Hjartahópur
Fjölbreytt þjálfun fyrir hjartasjúklinga
Tækjasalur
úrval þol-og styrktartækja
Kvennaleikfimi
hressileg leikfimi fyrir konur
Sjúkraþjálfarinn ehf
Strandgötu 75, sími 555 4449
220 Hafnarfirði
Einungis fagfólk sem leiðbeinir.
Nánari upplýsingar gefur
Eftir mikil uppskipti er komið upp
gott skólabókardæmi um sterkt bisk-
upapar á móti hrók og peði. Hrein
unun er að fylgjast með hversu bisk-
uparnir njóta sín vel á móti lélegum
hrók 27. ... Bc3 28. Hd3 Bf6 29. f4
Bg6 30. Hd1 h5! 31. Kf2 Bc2 32. Hd2
Bb1 33. Kf3 a5 34. g3 Bc3 35. He2
Bf5
Biskuparnir ráða lögum og lofum!
36. He7 Kc6 37. Ke2 Bf6 38. He3 Kc5
Nú hefst lokaatlagan 39. Kd2 Kb4
40. Kc1 Ka3 41. He2 a4 42. bxa4
Kxa4 43. He8 Kb4 44. Hh8 g6 45.
Hh7 c6 46. Hc7 Be4 47. h3 Kxc4 48.
g4 hxg4 49. hxg4 c5 50. Kd2 b5 51.
Hf7 Bc3+ 52. Ke3 Bb1 53. f5 gxf5 54.
g5 b4 55. g6 f4+ 56. Hxf4+ Bd4+ 0–1
Leko náði strax að saxa á forskot
Kramniks þegar hann vann fimmtu
skákina. Þegar einvígið var hálfnað
var staðan því 3½–2½ Kramnik í vil.
Fimmta skákin einkenndist af mikilli
stöðubaráttu. Kramnik hafði hvítt.
Upp kom enskur leikur og þróaðist
byrjunin snemma í svonefnda brodd-
galtarstöðu sem þykir afar traust
uppbygging. Líkja má henni við
Maroczy í drekanum, en einn ís-
lenskur skákmaður er frægur fyrir
sín „þrumuskot“ í þeirri byrjun!
Annars hafa skákirnar verið óvenju
vel tefldar miðað við atskákir, ef frá
er talin sjötta skákin, en þar kom upp
kóngspeðsbyrjun. Leko fékk loksins
leið á að tefla á móti Berlínarvörninni
og lék Rc3 í öðrum leik. Kramnik var
greinilega vel undirbúinn fyrir þann
leik líka, því hann jafnaði taflið létti-
lega og var kominn með unna stöðu,
en lék þá af sér peði og endaði skákin
að lokum í jafntefli. Fimmta skákin,
og fyrsta tapskák Kramniks sem
heimsmeistara, tefldist þannig:
Hvítt: Vladimir Kramnik (2.770)
Svart: Peter Leko (2.743)
Enskur leikur [A30]
1. Rf3 c5 2. c4 Rf6 3. Rc3 e6 4. g3
b6 5. Bg2 Bb7 6. 0–0 Be7 7. d4 cxd4
8. Dxd4 Rc6 9. Df4 0–0 10. Hd1 Db8
Drottningin víkur sér úr skotlínu
hróksins 11. e4 Í skákinni Kramnik–
Leko, Linares 1999, varð framhaldið
11. b3 Hd8 12. Bb2 h6 og eftir 13.
Hd2 Dxf4 14. gxf4 Ra5 15. Had1 d5
náði svartur að jafna taflið 11. ... d6
12. b3 a6 13. Bb2 Dc7 14. h3 Hac8
15. De3 Re5 16. Rd4 h6
Sjá stöðumynd 6.
Upp er komin dæmigerð brodd-
galtarstaða, en hún getur sprottið úr
hinum ýmsu byrjunum. Samlíkingin
er til komin vegna staðsetningar
svörtu peðanna. Aðal hugmynda-
fræðin hjá svörtum er að stilla mönn-
unum upp á sem ákjósanlegastan
hátt og bíða átekta 17. Hd2 Hfe8 18.
Kh1 Red7 Það eru kannski ekki allir
ATSKÁKEINVÍGI þeirra
Kramniks og Lekos hefur bæði
reynst stórskemmtilegt og sögulegt.
Tíu skákum af tólf er nú lokið og er
staðan 6–4 Kramnik í vil. Eftir fjórar
skákir var staðan 3–1 Kramnik í vil
og Leko sem um þessar mundir er
fimmti stigahæsti skákmaður heims
hafði ekki sótt gull í greipar Kramn-
iks í byrjanavali. Í fyrstu skákinni
hafði Leko svart og upp kom Grün-
feldsvörn. Kramnik reyndist öllum
hnútum kunnugur og vann öruggan
sigur, enda kom einmitt sama byrjun
upp í fyrstu skákinni í heimsmeist-
araeinvíginu á móti Kasparov, sem
Kramnik vann. Í þeim skákum sem
Leko hefur stýrt hvítu mönnunum
hefur hann teflt á móti Berlínarvörn í
spænskum leik, nema í sjöttu skák-
inni og þeirri tíundu. Sú byrjun var
að stórum hluta lykillinn að heims-
meistaratign Kramniks. Þar tókst
honum að draga vígtennurnar úr ein-
um mesta sóknarskákmanni allra
tíma, Garry Kasparov, með því að
skipta upp á drottningum í áttunda
leik! Í fjórðu skákinni sem hér er til
umfjöllunar var umrædd byrjun ein-
mitt fyrir valinu. Endataflið í skák-
inni er mjög lærdómsríkt.
Hvítt: Peter Leko (2.743)
Svart: Vladimir Kramnik (2.770)
Spænski leikurinn [C67]
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 Rf6 4.
0–0 Rxe4 5. d4 Rd6 6. Bxc6 dxc6 7.
dxe5 Rf5 8. Dxd8+ Kxd8 9. Rc3 Bd7
10. Hd1 Nýr möguleiki í stöðunni, en
tilgangur leiksins er að knýja svart-
an til að ákveða staðsetningu kóngs-
ins 10. ... Kc8 11. Rg5 Be8! Ólíkt öðr-
um byrjunum skiptir tíminn litlu
máli í Berlínarafbrigðinu. Svartur
byggir upp Berlínarmúr og lætur
hvítan um að reyna að brjóta hann á
bak aftur! 12. Rge4 b6 13. b3 c5!?
Kramnik ákveður nú að gefa eftir d5-
reitinn, en í staðinn fær hann reit fyr-
ir riddarann á d4 og eins getur svarti
biskupinn hreiðrað um sig á c6 14.
Bb2 Rd4 15. Hd2 Kb7 16. Rd5 Hd8
Með þessum leik lokkar svartur c-
peðið fram, en við það geta peðin á
drottningarvæng orðið skotspónn
hvítreita biskupsins þegar fram líða
stundir. Kramnik skynjar stöðuna
rétt með peðsfórninni og við það
vaknar svartreita biskupinn til lífsins
17. c4 Bc6! 18. Bxd4 cxd4 19. Hxd4
Ba3 20. Hd2 Hhe8 21. He1?
Leko sér ekki að flækjurnar sem
upp koma eftir nánast þvingaða
leikjaröð eru hliðhollar svörtum.
Betra var 21. Rg5 Hd7 (ef 21. ... Bxd5
22. cxd5 Hxe5 23. Rxf7 Hdxd5 24.
Rxe5 Hxd2 25. Rc4! og hvítur vinnur)
og eftir 22. Rf3 er staðan í dýnamísku
jafnvægi. 21. ... f6! 22. exf6 Bb4 23.
f7 Ef 23. Rxb4 Hxd2 24. f7 Hxe4 og
svartur vinnur 23. ... Hxe4 24. Hxe4
Bxd2 25. He7 Bxd5 26. He8 Bxf7 27.
Hxd8
sem skilja tilgang riddaratilfærsl-
unnar c6–e5–d7. En þumalputtaregl-
an í stöðum eins og þessari er að
forðast uppskipti á léttu mönnunum,
því þá verður æ erfiðara að verja
bakstæðu peðin á d6 og b6 19. f4 Bf8
20. Hf1 Db8 21. g4 Rh7 22. Hdf2 Ba8
Langtímamarkmið leiksins er að
undirbúa b5 seinna meir 23. Dg3 g6
24. f5? Kramnik verða nú á dæmi-
gerð mistök þegar hann blæs til at-
lögu á vitlausu augnabliki Bg7 25.
Rce2 Rc5 26. fxg6 fxg6 27. De3 e5
28. Rc2
28. ... b5! Nú fær hvítur að kenna á
broddunum! 29. cxb5 Rxe4! Krókur
á móti bragði 30. Bxe4 Hxc2 31. Rc3
Hxf2 32. Hxf2 Rg5!
Hvíta staðan riðar nú til falls 33.
Bg2 Bxg2+ 34. Kxg2 Db7+ 35. Kg1
axb5 Leko hefur haft peð upp úr
krafsinu. Einnig er kóngsstaða hvíts
í molum. Eftirleikurinn er auðveldur
36. h4 Re6 37. Re4 De7 38. g5 Rf4
39. gxh6 Bxh6 40. Dg3 De6 41. Kh2
d5 42. Rg5 Bxg5 43. hxg5 He7 44.
Hc2 Df5 0–1
Jafntefli varð í sjöundu skákinni,
en í þeirri áttundu tókst Leko að
sigra á nýjan leik og jafna metin. Það
er athyglisvert, að enn var Berlínar-
vörnin uppi á teningnum og Kramnik
tapaði þar sinni fyrstu skák í þeirri
vörn. Kramnik lét þetta þó ekki slá
sig út af laginu og sigraði mjög sann-
færandi í níundu skákinni, þar sem
Leko sá aldrei til sólar. Tíunda skák-
in varð söguleg. Leko hafði hvítt og
fékk örlítið betra tafl út úr byrjun-
inni. Kramnik tefldi hins vegar af
miklum krafti og náði að jafna taflið.
Eftir gífurlegt tímahrak beggja tef-
lenda féll Leko síðan á tíma eftir 133
leiki. Kramnik hafði þá hrók á móti
biskup og Leko vantaði einungis 12
leiki til þess að ná jafntefli skv. 50-
leikja reglunni. Þar með er staðan í
einvíginu 6–4 Kramnik í vil þegar
tveimur skákum er ólokið.
Kramnik á sigurbraut
SKÁK
B ú d a p e s t
RWE GAS
ATSKÁKEINVÍGIÐ
2.–8.1 2001
Daði Örn Jónsson
Hannes Hlífar Stefánsson
Stöðumynd 6
DIGRANESKIRKJA í
Kópavogi kynnir nú
fyrsta Alfa-námskeið
sitt og hefst það 18.
janúar 2001. Kynning-
arkvöld verður fimmtu-
daginn 11. janúar nk. kl. 20 í
Digraneskirkju. Þar verður kynn-
ing á námskeiðinu og tilhögun
þess. Námskeiðið stendur yfir í tíu
vikur, eitt kvöld í viku og fjallar
um grundvallaratriði kristinnar
trúar. Verð 5.000 kr.
Námskeiðin hafa farið sigurför
um heiminn á undanförnum árum.
Á þessu ári er áætlað að 1,2
milljónir manna muni sækja þau á
Bretlandseyjum eða um 2% þjóð-
arinnar. Um 13.000 Alfa-námskeið
eru nú haldin í yfir hundrað lönd-
um. Hér á landi eru haldin um 20
Alfa-námskeið í vetur. Áhersla er
lögð á að fólk sé í afslöppuðu um-
hverfi og kennslan er sett fram á
einfaldan og skiljanlegan hátt.
Hvert kvöld hefst með léttum
kvöldverði, að því loknu er fyr-
irlestur og umræður. Heimasíða
Alfa á Íslandi er á slóðinni
www.alfa.is.
Magnús B. Björnsson,
prestur, Digraneskirkju.
Áskirkja. Opið hús fyrir alla ald-
urshópa í safnaðarheimilinu kl. 10–
14. Skemmtiganga kl. 10.30. Létt-
ur hádegisverður framreiddur.
Mömmu- og pabbastund í safnað-
arheimilinu kl. 14–16.
Grensáskirkja. Kyrrðarstund í há-
degi kl. 12.10. Orgelleikur, ritning-
arlestur, altarisganga, fyrirbænir.
Léttur málsverður í safnaðarheim-
ilinu eftir stundina.
Hallgrímskirkja. Fyrirbænaguðs-
þjónusta í dag kl. 10.30. Beðið fyrir
sjúkum.
Langholtskirkja. Kirkjan er opin
til bænagjörðar í hádeginu.
Laugarneskirkja. Morgunbænir
kl. 6.45–7.05. Fullorðinsfræðsla kl.
20. Markviss kennsla um trú í
umsjá sóknarprests. Þriðjudagur
með Þorvaldi kl. 21 þar sem Þor-
valdur Halldórsson leiðir lofgjörð,
Gunnar Gunnarsson leikur á flygil
og sr. Bjarni Karlsson flytur guðs
orð og bæn. Fyrirbænaþjónusta kl.
21.30 í umsjón bænahóps kirkjunn-
ar.
Neskirkja. Tíðasöngur kl. 12. Litli
kórinn, kór eldri borgara kl. 16.30–
18. Stjórnandi Inga J. Backman.
Seltjarnarneskirkja. Foreldra-
morgunn kl. 10–12. Kaffi og spjall.
Verið öll hjartanlega velkomin.
Fríkirkjan í Reykjavík. Bæna-
stund í kapellunni í safnaðarheim-
ilinu, 2. hæð, kl. 12. Koma má bæn-
arefnum á framfæri áður en
bænastund hefst eða með því að
hringja í síma 552 7270 og fá bæn-
arefnin skráð. Safnaðarprestur
leiðir bænastundirnar. Að bæna-
stund lokinni gefst fólki tækifæri
til að setjast niður og spjalla. Allir
eru hjartanlega velkomnir.
Árbæjarkirkja. Foreldramorgunn
í safnaðarheimilinu kl. 10–12. Hitt-
umst, kynnumst, fræðumst.
Breiðholtskirkja. Bænaguðsþjón-
usta með altarisgöngu kl. 18.30.
Bænarefnum má koma til sókn-
arprests í viðtalstímum hans.
Æskulýðsstarf á vegum KFUM&K
og kirkjunnar kl. 20.
Digraneskirkja. Starf eldri barna
KFUM&K og Digraneskirkju (10–
12 ára) kl. 17.
Fella- og Hólakirkja. Foreldra-
stundir kl. 10–12. Starf fyrir 11–12
ára stúlkur kl. 17–18. Æskulýðs-
félag fyrir 8. bekk kl. 20–22.
Grafarvogskirkja. Opið hús fyrir
eldri borgara kl. 13.30. Helgistund,
handavinna, spil og spjall. Alltaf
eitthvað gott með kaffinu. Kirkju-
krakkar í Rimaskóla kl. 18–19 fyrir
börn á aldrinum 7–9 ára.
Hjallakirkja. Bæna- og kyrrðar-
stund kl. 18.
Kópavogskirkja. Foreldramorg-
unn í dag kl. 10–12 í safnaðarheim-
ilinu Borgum.
Seljakirkja. Foreldramorgnar. Op-
ið hús milli kl. 10–12. Kaffi og
spjall.
Víðistaðakirkja. Aftansöngur og
fyrirbænir kl. 18.30.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyr-
ir 10–12 ára börn í Vonarhöfn,
Strandbergi, kl. 17–18.30.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Opið hús
kl. 17–18.30 fyrir 7–9 ára börn.
Vídalínskirkja. Helgistund í
tengslum við félagsstarf aldraðra
kl. 16. Starf fyrir stúlkur 10–12 ára
í samstarfi við KFUK kl. 17.30 í
safnaðarheimilinu.
Grindavíkurkirkja. Foreldramorg-
unn kl. 10–12.
Borgarneskirkja. TTT, tíu – tólf
ára starf, alla þriðjudaga kl. 17–18.
Helgistund í kirkjunni sömu daga
kl. 18.15–19.
Þorlákskirkja. Mömmumorgnar á
þriðjudögum kl. 10–12.
Krossinn. Almenn samkoma kl.
20.30 í Hlíðasmára 5. Allir vel-
komnir.
Fíladelfía. Bænastund kl. 20. Allir
hjartanlega velkomnir.
Frelsið, kristileg miðstöð. Biblíu-
skóli í kvöld kl. 20.
Safnaðarstarf
Alfa-nám-
skeið í
Digra-
neskirkju
Digraneskirkja.